Fréttablaðið - 02.05.2004, Side 32
20 2. maí 2004 SUNNUDAGUR
Versta vinna lífs míns
Hvert er versta starfið sem þú hefur unnið? Flestöll eigum við slæmar minningar frá grautfúlum störfum sem við
hreinlega urðum að vinna til að eiga fyrir salti í grautinn. Eflaust hafa fæstir áhuga á að rifja þau upp en Fréttablaðinu
tókst engu að síður að fá fimm kunna einstaklinga til að deila með sér þessari erfiðu lífsreynslu sem vafalítið gerði þá að
sterkari manneskjum, eða hvað?
Á mínum unglingsárum þá vann
ég á sumrin við gömlu virkjanirn-
ar við Sogið. Ég man að ég þurfti
að skúra og hreinsa klósett og
annað. Það er nú kannski það leið-
inlegasta sem ég hef upplifað en
jafnframt var það mjög góður
skóli fyrir mig. Maður lærði það
að öll störf skipta máli og það þarf
vissa auðmýkt í öllum störfum.
Maður veit þá hvað aðrir eru að
gera þegar maður er að hugsa til
baka. Mér leið ekki alltof vel en
reyndi bara að horfa jákvætt á
hlutina og hugsa um alla þá sem
þurftu að sinna svipuðu starfi og
eftir á að hyggja er ég er sann-
færður um það að þetta var ágæt-
is lexía á þeim tíma. Ég hef nú
lært margar lexíurnar síðan, gert
margar vitleysur og lært af
reynslunni og það hefur vonandi
safnast saman til að gera mann að
hæfari einstaklingi þó að manni
hafi fundist þetta alveg ferlegt
akkúrat á þeim tímapunkti sem
maður var settur í það. Auðvitað
kom það upp í hugann að það eina
rétta væri að hlaupa frá þessu öllu
en maður beit á jaxlinn.“ ■
Sindri Páll Kjartansson dagskrárgerðarmaður:
Rekinn sem pitsusendill
Ég hef verið í ýmsum störfum en
kannski einna leiðinlegasta vinn-
an sem ég hef verið í var að vera
pitsusendill, af því að ég fíla svo
illa FM-hnakkastemninguna. Það
er líka eina starfið sem ég hef
verið rekinn úr. Það var hringt í
mig um morgun og ég beðinn um
að koma í vinnu eftir klukkutíma.
Ég sofnaði aftur en vaknaði um
þrjú og þá mundi ég ekki neitt. En
mundi svo allt í einu eftir þessu
löngu síðar, hringdi upp eftir og
þá varð allt brjálað og mér var
sagt að fara til andskotans.
Einu sinni var ég sviðsmaður í
Þjóðleikhúsinu og það var ekkert
alltaf voða mikið að gera, sem var
stundum svolítið næs. Maður var
bara á vakt og þá var maður oft
látinn í rosalega vitlaus verkefni.
Gólfið á sviðinu er svart en það
er ekki svart hinum megin, sko
undir því. Þannig að ég var látinn
mála það svart undir gólfinu.
Þetta var til að finna eitthvað
fyrir okkur að gera því það var
eitthvað rólegt vor. Það er alltaf
leiðinlegt að vinna svona til-
gangslaus störf. Ég er náttúrlega
með blett á sálinni eftir þetta og
ekkert rosalega heill. Þessi klisja
um að það sem drepi mann ekki
styrki mann er bara rugl. Ég á
mjög erfitt með að feisa heiminn
eftir þetta.“ ■
Þó ég meti nú unglingavinnuna
mikils í seinni tíð, alla vega fyrir
börnin mín, þá verð ég að játa að
mér leiddist hrikalega að reyta
arfa sumarlangt í blóma lífsins.
Svo dettur mér líka í hug sumarið
‘76 þegar ég var að vinna á
sænsku sjúkrahúsi. Fyrsta vikan
mín þar var alveg hræðileg þegar
ég var að komast inn í málið og
setja mig inn í hlutina. Þá var ég
sett í að skræla kartöflur daginn
langan í eldhúsinu. Það fannst
mér ekki gaman og ég vorkenndi
mér voðalega mikið. Svo hækkaði
ég um tign og þetta varð eitthvert
skemmtilegasta sumar lífs míns.
Raunar var svipað upp á teng-
ingnum þegar ég fór sumarlangt
til Noregs að vinna við garðyrkju-
störf. Þá var ógurlega hlýtt og sól-
ríkt og var ég sett í að setja
agúrkur í plastpoka inni í sjóð-
heitum skúr. Það var einhvern
veginn ekki eins og ég hafði ekki
ímyndað mér að vinna við garð-
yrkju í Noregi. Ég hafði frekar
séð mig fyrir mér á bikiníinu að
tína jarðarber. En þetta var góð
reynsla og fínt í sarpinn. Að prófa
eitthvað leiðinlegt er mjög gott
veganesti því þá hefur maður
samanburðinn.“ ■
Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðar Reykjavíkur:
Reytti arfa í blóma lífsins
Eggert Magnússon, formaður KSÍ:
Beit á jaxlinn
ARFI
Hrefnu Haraldsdóttur leiddist hrika-
lega mikið að þurfa að reyta arfa
sumarlangt í unglingavinnunni.
PIZZA
Sindri Páll Kjartansson var rekinn
sem pitsusendill fyrir að mæta
ekki í vinnuna. Þetta var í fyrsta og
eina sinn sem hann hefur verið
rekinn úr starfi.
KLÓSETT
Eggert Magnússon þurfti að sýna
mikla auðmýkt þegar hann þreif
klósettin við gömlu virkjarnirnar
við Sogið.