Fréttablaðið - 02.05.2004, Page 41
Minnesota vann sitt fyrsta einvíg í NBA:
Garnett loksins áfram
KÖRFUBOLTI Eftir að hafa dottið út
úr fyrstu umferð úrslitakeppn-
innar síðustu sjö árin og aldrei
tekist að vinna einvígi í úrslita-
keppninni tókst Kevin Garnett og
félögum hans í Minnesota
Timberwolves loksins að komast
áfram í aðra umferð þegar þeir
unnu Denver Nuggets, 102-91, í
fimmta leik liðanna í átta liða úr-
slitum vesturdeildarinnar. Liðið
vann einvígið þar með 4-1. Minn-
esota hafði tapað 22 af 29 fyrstu
leikjum sínum í úrslitakeppninni
og Garnett hafði spilað þá alla.
„Ég gafst aldrei upp og ég
hætti aldrei,“ sagði Garnett sem
tók sjálfur á sig mikla gagnrýni í
hrakförum liðsins í úrslita-
keppninni. Í einvíginu við Denver
réð enginn við kappann sem skor-
aði 25,8 stig, tók 14,8 fráköst og
gaf 7,0 stoðsendingar að meðaltali
í leikjunum fimm.
Garnett hefur fengið góða
hjálp í vetur frá þeim Sam Cassell
og Latrell Sprewell sem hafa fært
liðinu nauðsynlega reynslu og
saman skoruðu þeir félagar 73
stig í fimmta leiknum, Garnett 28,
Casell 26 og Sprewell 19.
Minnesota mætir Sacramento í
næstu umferð en Kings slógu Jón
Arnór Stefánsson og félaga hans
út 4-1. Fyrsti leikurinn er á
þriðjudagskvöldið. Í hinum
undanúrslitunum mætast lið San
Antonio og LA Lakers. ■
29SUNNUDAGUR 2. maí 2004
FÓTBOLTI Enn skýrari mynd komst á
topp- og botnbaráttu ensku úrvals-
deildarinnar eftir leiki gærdagsins.
Chelsea náði þá fjögurra stiga
forskot á Manchester United í
baráttunni um annað sætið og 1–0
sigur Manchester City á Newcastle,
felldi Leicster og Wolves (eiga
óraunhæfa tölfræðilega möguleika)
og gerði stöðu Leeds afar erfiða.
Manchester City vann rosalega
mikilvægan heimsigur á Newcastle
og stigin þrjú sem Paolo Wanchope
tryggði með eina marki leiksins
fara langt með að bjarga liðinu frá
falli. Leeds, sem á leik í dag, er nú
sex stigum á eftir City og með mun
verri markatölu. Leeds þarf því
mörg hagstæð úrslit svo liðið falli
ekki líkt og Leicester og Wolves
gerðu í gær en sigur City gerði
vonir þeirra að engu þrátt fyrir að
Wolves hafi unnið Everton, 2–1, og
Leicester gert 2–2 jafntefli við
Charlton.
Chelsea vann 4–0 stórsigur á
Southampton þar sem Eiður Smári
Guðjohnsen lék allan leikinn og
lagði meðal annars upp síðasta
markið fyrir Glenn Johnson. Frank
Lampard skoraði tvö mörk í
leiknum. Á sama tíma tapaði
Manchester United sínum öðrum
leik í röð, þetta var þriðja tapið í
síðustu fjórum leikjum liðsins og
það níunda á tímabilinu. Chelsea er
með 2. sætið nánast tryggt því nú
hefur Chelsea fjögurra stiga
forskot á Man. United þegar aðeins
tveir leikir eru eftir en liðin berjast
um að komast beint inn í meistara-
deildina. Hinn ungi Jon Stead
tryggði Blackburn sigurinn hans
þriðja sigurmark í síðustu fjórum
leikjum og hefur þessi stóri og
skemmtilegi leikmaður með þeim
komið Blackburn úr allri fallhættu.
Baráttan um fjórða sætið heldur
áfram en tap Newcastle í gær gefur
Liverpool og Aston Villa tækifæri á
að bæta stöðu sína í leikjum liðanna
í dag. Fulham og Charlton gerðu
bæði jafntefli og hafa ekki mikla
möguleika á þessu eftirsótta sæti
sem kemur liðum inn í meistara-
deild Evrópu. ■
ÚRSLIT Í GÆR
Arsenal – Birmingham 0–0
Blackburn – Man Utd 1–0
1–0 Stead (85.).
Charlton – Leicester 2–2
0–1 Bent (5.), 1–1 Fortunhe (53.), 2–1 Di
Canio víti (76.), 2–2 Ferdinand (88.).
Chelsea – Southampton 4–0
1–0 Sjálfsmark (59.), 2–0 Lampard (75.),
3–0 Lampard (83.), 4–0 Johnson (85.).
Man. City – Newcastle 1–0
1–0 Wanchope (59.).
Portsmouth – Fulham 1–1
1–0 Ayegbini (80.), 1–1 McBride (85.).
Wolves – Everton 2–1
0–1 Osman (3.), 1–1 Camara (55.), 2–1
Cort (84.).
LEIKIR Í DAG
Bolton – Leeds
Aston Villa – Tottenham
Liverpool – Middlesbrough
Staðan
L U J T Mörk Stig
Arsenal 35 24 11 0 69:24 83
–––––––––––––––––––––––––––––––
Chelsea 36 23 6 7 65:29 75
Man. Utd. 36 22 5 9 61:34 71
Liverpool 35 14 11 10 49-36 53
–––––––––––––––––––––––––––––––
Newcastle 35 13 14 8 47-35 53
Aston Villa 35 14 10 11 46:41 52
Fulham 36 13 10 13 50:45 49
Charlton 36 13 10 13 46:47 49
Birmingh. 36 12 13 11 42:44 49
Bolton 35 12 11 12 42:52 47
Southamp. 35 12 9 14 39:39 45
Middlesbr. 35 12 9 14 41-44 45
Blackburn 36 12 7 17 50:57 43
Portsm. 35 11 8 16 40:49 41
Everton 36 9 12 15 43:50 39
Tottenham 35 11 6 18 44:56 39
Man. City 36 8 14 14 49:51 38
–––––––––––––––––––––––––––––––
Leeds 35 8 8 19 36:71 32
Wolves 36 7 11 18 37:74 32
Leicester 36 5 15 16 44:62 30
FÓTBOLTI Arsene Wenger sagði
eftir markalaust jafntefli Arsenal
gegn Birmingham að þrátt fyrir
að Martin Keown hafi ekki spilað
marga leiki með liðinu í vetur þá
eiga hann mikinn þátt í titlinum.
Wenger skipti Keown inn undir
lokin en þessi 37 ára varnarmaður
þarf að spila alla þrjá leiki liðsins
sem eftir eru til þess að fá verð-
launapening en leikmenn verða
að spila 10 leiki fyrir sín lið. Kolo
Toure sló Keown út úr liðinu en
Wenger þakkar Keown fyrir
framlög sín í búningsklefanum.
„Martin hefur verið frábær leik-
maður fyrir Arsenal og allir í lið-
inu vilja að hann nái þessum tíu
leikjum og fái pening. Hann hefur
kannski ekki verið mikið með inn
á vellinum en í búningsklefanum
hefur hann verið liðinu afar dýr-
mætur,“ sagði Wenger um Kewon,
sem hefur leikið með Arsenal
síðustu 11 ár og orðið þrisvar
sinnum meistari með liðinu. ■
Arsene Wenger skipti Martin Keown inn á í lokin:
Keown á þátt í titlinum
HANDBOLTI Nú er orðið ljóst
hvenær leikir íslenska hand-
boltalandsliðsins fara fram á
Ólympíuleikunum í Aþenu í ágúst
en fyrsti leikur íslensku strák-
anna er gegn heimsmeisturum
Króata laugardaginn 14. ágúst.
Það er því ljóst að Guðmundur
Guðmundsson landsliðsþjálfari og
lærisveinar ráðast ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur í fyrsta
leik á þessu sterka móti.
Leikir íslenska liðsins eru á
tveggja daga fresti og síðasti leik-
urinn er gegn hinu geysisterka
liði Rússa (22.8.). Í millitíðinni
kemur íslenska landsliðið til með
að spila tvo morgunleiki, klukkan
9.30 að íslenskum tíma gegn
Slóvenum (18.8.) og klukkan 7.30
gegn Kóreubúum (20.8.) og í há-
deginu gegn Spánverjum (16.8.).
Það er því ljóst að leikir ís-
lenska liðsins gætu haft töluverð
áhrif á vinnustaði landsins því
búast má við því að margir vilji
horfa á íslensku strákana sem
eru staðráðnir í að bæta fyrir
slakt gengi á Evrópumótinu í Sló-
veníu. ■
FJÖGUR MÖRK OG FJÖGURRA STIGA FORUSTA Á MANCHESTER UNITED
Leikmenn Chelsea, með Eið Smára Guðjohnsen, fagna hér einu af fjórum mörkum sínum gegn Southampton í gær.
HEIMSMEISTARANIR Í FYRSTA LEIK
Fyrsti leikur íslenska handboltalandsliðsins
á ÓL í Aþenu er gegn heimsmeisturum
Króata. Hin litríki Vlado Sola
verður örugglega í markinu.
Leikir íslenska handboltalandsliðsins á ÓL í Aþenu:
Fyrsti leikur gegn
heimsmeisturunum
Enn tap hjá United
Leicester er fallið úr ensku úrvalsdeildinni og Wolves á aðeins
óraunhæfa tölfræðilega möguleika um að bjarga sæti sínu.