Fréttablaðið - 04.06.2004, Side 44
32 4. júní 2004 FÖSTUDAGUR
FRAKKINN SEBASTIEN HINAULT
Fær hér að launum tvöfaldan koss frá
fögrum blómarósum. Tilefnið var sigur á
einni leið í Þýskalandshjólreiðakeppninni,
sem fram fer þessa dagana.
HJÓLREIÐAR
FÓTBOLTI Núverandi og fimmfaldir
heimsmeistarar Brasilíu sigruðu
tvöfalda heimsmeistara Argent-
ínu, 3-1, í undankeppni heims-
meistarakeppninnar í knatt-
spyrnu.
Leikurinn fór fram í Ríó í
Brasilíu og öll mörk heimamanna
gerði Ronaldo, framherjinn
snjalli hjá Real Madrid, en þau
komu öll úr vítaspyrnum. Brassar
komust í 2-0, Juan Pablo Sorin
minnkaði muninn en Ronaldo inn-
siglaði sigurinn í blálokin.
Í sömu keppni bar Ekvador
sigurorð af Kólumbíu, 2-1 á
heimavelli sínum í Quito,
höfuðborg Ekvador.
Eftir sex umferðir í und-
ankeppni Suður-Ameríkuríkja eru
Brassar efstir og taplausir með
tólf stig, Argentínumenn koma
næstir í öðru sæti með ellefu stig.
Chile og Paragvæ eru í þriðja
og fjórða sæti með tíu stig og
Venesúela í því fimmta með níu
stig. Perú er með átta stig,
Ekvador og Úrúgvæ sjö, Bólivía
sex og á botninum sitja Kólumbíu-
menn með aðeins fjögur stig. ■
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
1 2 3 4 5 6 7
Föstudagur
JÚNÍ
CostadelSol
Sólarlottó
Komdu
út í Plús!
• Þú velur áfangastað og ferðadag og tekur
þátt í lottóinu um hvar þú gistir.
• Viku fyrir brottför staðfestum
við gististaðinn.
Sama sólin, sama fríið
en á verði fyrir þig.
*Innifalið er flug, gisting í 7 nætur,
ferðir til og frá flugvelli erlendis,
flugvallarskattar og íslensk fararstjórn.
á mann miðað við 2 eða 4 í stúdíói eða íbúð.
Enginn barnaafsláttur.
Spilaðu með!
Krít
28. júní, 5. 12. 19. og 26. júlí
Costa del Sol
15. júní
Portúgal
29. júní, 6. 13. 20. og 27 júlí
Benidorm
16. 23. 30. júní, 7. 14. og 21. júlí
Bikarmeistararnir mæta
HK í Kópavogi:
Dregið í
bikarnum
FÓTBOLTI Dregið var í 32-liða úr-
slitum bikarkeppni KSÍ í hádeg-
inu í gær. Bikarmeistarar ÍA
hefja titilvörn sína í Kópavogi en
liðið tekur á móti HK og Íslands-
meistarar KR mæta Víði úr Garði.
Hann verður einnig athyglis-
verður slagur Gróttu og Fram á
Seltjarnarnesi.
Leikirnir fara fram dagana 11.
og 12. júní. ■
32 LIÐA ÚRSLIT
Afturelding - Haukar
KFS - Þróttur Reykjavík
Reynir Sandgerði - Þór Akureyri
ÍR - Fylkir
Tindastóll - KA
Fjölnir - ÍBV
Ægir - FH
Sindri - Víkingur
Fjarðabyggð - Valur
Breiðblik - Njarðvík
Víðir - KR
KS - Stjarnan
HK - ÍA
Selfoss - Grindavík
Grótta - Fram
Völsungur - Keflavík
Undankeppni Suður-Ameríku í HM í knattspyrnu:
Brassar höfðu betur
gegn Argentínu
■ ■ SJÓNVARP
17.40 Olíssport á Sýn. Endursýndur
þáttur frá kvöldinu áður.
18.30 Saga EM í fótbolta á RÚV.
Upphitunarþættir fyrir EM í fót-
bolta sem hefst í Portúgal 12.
júní.
18.55 Trans World Sport á Sýn.
19.50 Gilette-sportpakkinn á Sýn.
19.45 Hnefaleikar á Sýn. Útsend-
ing frá bardaga Shane Mosley og
Ronald Wright sem haldinn var í
Las Vegas þann 13. mars sl.
00.40 Hnefaleikar á Sýn. Útsend-
ing frá bardaga Oscar de la Hoya
og Arturo Gatti sem haldinn var í
Las Vegas þann 24. mars 2001.
Suðurnesjamenn takast á við varnarliðsmenn í hnefaleikakeppni í Grindavík:
Götuslagsmál færð inn
í hnefaleikahringinn
HNEFALEIKAR Mjög athyglisverð og
spennandi hnefaleikakeppni fer
fram í íþróttahúsinu í Grindavík í
kvöld en þá verða á dagskrá fimm
bardagar. Keppnin er setning
Sjóarans síkáta, sem er sjómanna-
hátíðin í Grindavík. Fréttablaðið
náði tali af Guðjóni Vilhelm, sem
er einn skipuleggjenda keppni-
nnar:
„Þetta verður fyrsta hnefa-
leikakeppnin í ólympískum hnefa-
leikum sem fram fer í Grindavík
svo vitað sé. Það er því vel við
hæfi að helgin byrji á því að menn
takist á að sjómannasið. Það verða
fimm bardagar á dagskrá og af
þeim eru þrír nokkuð sérstakir.
Þar munu Suðurnesjamenn takast
á við varnarliðsmenn og þá verð-
ur háð barátta sem oft á tíðum
hefur verið háð á öðrum stöðum,
nema hvað nú verður það á lög-
legum vettvangi,“ segir Guðjón
skellihlæjandi og bætir við:
„Núna ætlum við bara að taka það
að okkur hérna á Suðurnesjunum
að kenna þeim mannasiði í eitt
skipti fyrir öll. Þetta verða hörku-
bardagar, ég veit að það ætlar
fullt af varnarliðsmönnum að
mæta og styðja sína menn og það
er mikið púður í þessu. Síðan
verður einn hreinræktaður Suður-
nesjabardagi en þá mætast þeir
Vikar Karl Sigurjónsson og Þor-
kell Óskarsson. Einnig mun síðan
heimamaður úr Grindavík takast
á við Reykvíking og verður það
lokapunktur kvöldsins. Við hvetj-
um alla til að mæta og við viljum
fá fullt hús og brjálaða stemn-
ingu. Húsið opnar klukkan hálf
átta og þá stígur dönsk kvenna-
hljómsveit á stokk og opnar dag-
skrána en fyrsti bardaginn byrjar
rétt um hálf níu,“ sagði Guðjón og
lofaði hörkufjöri. Verði keppnin
eitthvað í líkingu við aðra hnefa-
leikabardaga sem Guðjón hefur
komið nálægt er þetta málið. ■
HNEFALEIKAKEPPNI Í GRINDAVÍK
Fimm hörkubardagar og mikið um dýrðir.
Úr landsliðsþjálfarastöðu Frakka í úrvalsdeildarbasl:
Santini til Tottenham
FÓTBOLTI Jacques Santini, núver-
andi þjálfari franska landsliðsins,
var í gær óvænt ráðinn knatt-
spyrnustjóri Tottenham Hotspur í
ensku úrvalsdeildinni. Santini
mun hætta með franska liðið
strax að lokinni Evrópukeppninni
í Portúgal, sem hefst eftir rúma
viku.
„Ég er mjög ánægður með að
hafa fengið tækifæri hjá Totten-
ham. Það hefur alltaf verið minn
æðsti draumur að þjálfa stórt
félag í mest spennandi deilda-
keppni heims. Ég hef rætt við for-
ráðamenn félagsins og metnaður
okkar er á sömu leið. Við erum
ákveðnir í því að gera Tottenham
að stórveldi á nýjan leik,“ sagði
hinn 52 ára Santini þegar hann
var kynntur fyrir fjölmiðlum í
gær. ■
Heiðar D. Bragason:
Kominn í 16
manna úrslit
GOLF Heiðar Davíð Bragason,
kylfingur úr Golfklúbbnum Kili í
Mosfellsbæ gerði sér lítið fyrir í
gær og tryggði sér sæti í 16
manna úrslitum Opna breska
áhugamannamótsins í golfi sem
fram fer á hinum fornfræga St
Andrews velli í Skotlandi.
Heiðar Davíð bar sigurorð af
Skotanum Kevin McAlpine í 32ja
manna úrslitum í gær og spilar í
16 manna úrslitum í dag.
Örn Ævar Hjartarson féll út í
64ra manna úrslitum þar sem
hann beið lægri hlut fyrir
Brandon Knaub. ■
TIL TOTTENHAM
Santini mun hætta með franska landsliðið
að lokinni Evrópukeppninni í sumar.