Fréttablaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 05.06.2004, Blaðsíða 6
6 5. júní 2004 LAUGARDAGUR Afmælishátíð vegna innrásar bandamanna í Normandí: Lengsta dagsins minnst FRAKKLAND Það þykir kaldhæðnis- legt að einhverjar mestu öryggis- ráðstafanir sem gerðar hafa verið í Frakklandi eru vegna 60 ára af- mælis innrásardags bandamanna í Normandí þar sem þúsundir hermanna létu lífið í einum allra hörðustu átökum í seinni heims- styrjöldinni. Þann 6. júní 1944 fluttu sex þúsund skip tæplega 160 þúsund hermenn innanborðs yfir Ermarsundið að ströndum Normandí. Þrátt fyrir gríðarlega mótspyrnu tókst strandhöggið og um kvöldið hafði Þjóðverjum ver- ið stökkt á flótta. Dagsins verður minnst með pompi og prakt á morgun og hefur hvergi verið til sparað enda eru margir á þeirri skoðun að innrásin hafi breytt gangi sög- unnar enda markaði hún upphaf endaloka Adolfs Hitler og herja hans. Fjölmargir þjóðarleiðtogar munu taka þátt í hátíðarhöldun- um, þar á meðal forseti Banda- ríkjanna og óttast margir að hann muni líkja aðstæðunum við Normandí við þær sem herir hans glíma við í Írak í dag. Búist er við fjölda almennra mótmælenda sem eingöngu munu mótmæla komu Bush en öflug mótmæli virðast fylgja honum hvert sem hann fer í heiminum. ■ Ákærður fyrir kynferðis- brot gegn sjö drengjum Rúmlega þrítugur maður á Patreksfirði hefur verið ákærður fyrir alvarleg kynferðisbrot. Fórnarlömbin voru á aldrinum 13-14 ára þegar maðurinn framdi brotin. Brotin varða allt að 12 ára fangelsi. DÓMSMÁL Rúmlega þrítugur mað- ur á Patreksfirði hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn sjö drengjum. Maðurinn er ákærður fyrir alvarleg brot gegn fimm þeirra, það er kynferðis- mök af einhverju tagi, sam- kvæmt upplýsingum Fréttablaðs- ins. Þá er hann ákærður fyrir minni brot gagnvart tveimur drengjum. Brot mannsins eru talin varða við 202. grein almennra hegning- arlaga. Brotin gegn drengjunum fimm eru talin varða við 1. máls- grein, þar sem segir að hver sem hafi samræði eða önnur kynferð- ismök við barn yngra en 14 ára skuli sæta fangelsi allt að 12 árum. Brotin gegn hinum drengj- unum tveim eru talin varða við 2. málsgrein sömu laga, þar sem segir, að önnur kynferðisleg áreitni varði fangelsi allt að fjórum árum. Hinn ákærði er fæddur árið 1973. Hann hefur starfað mikið að félagslífi með börnum og ungling- um á Patreksfirði í gegnum tíðina. Fyrr á árum var hann skátafor- ingi, auk þess sem hann vann mik- ið með grunnskólabörnum að upp- setningu leikrita og fleiru, til dæmis varðandi árshátíðir og fleiri atburði. Hann starfaði í lög- reglunni á Patreksfirði um skeið. Eftir það varð hann húsvörður í grunnskólanum. Jafnframt því var hann starfsmaður félagsmið- stöðvarinnar á Patreksfirði. Í vetur lögðu forráðamenn fjögurra ungra drengja fram kæru á hendur manninum og fljótlega bættist svo fimmta kær- an við. Það leiddi til þess að mað- urinn var handtekinn á heimili sínu 5. desember síðastliðinn. Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi til 15. desember en var sleppt eftir að Hæstiréttur hafnaði kröfu um frekara gæsluvarðhald. Í kjölfar lögreglurannsóknar er hann nú ákærður fyrir brot gegn sjö drengjum, eins og áður sagði. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins voru drengirnir 13-14 ára þegar brotið var gegn þeim. Flest brotanna er hann tal- inn hafa framið á árunum 2002 og 2003. Málið verður þingfest í Hér- aðsdómi Vestfjarða síðar í þess- um mánuði og málsmeðferðin sjálf fer fram eftir réttarhlé, í ágúst eða september. jss@frettabladid.is Danskir hermenn: Sekir um ofsóknir DANMÖRK Athugun danska varn- armálaráðuneytisins hefur leitt í ljós að danskir hermenn voru í hópi þeirra hermanna sem pyntuðu og ofsóttu íraska þegna meðan á dvöl þeirra í Írak stóð. Hafa nokkrir þeirra viðurkennt að hafa hýtt hóp kvenna við útdeildingu mat- væla sem þeir höfðu umsjón með vegna þess eins að þær héldu ekki ró sinni. Er ástæðan sú að slíkt hafi verið eina leiðin til að halda nauðsynlegum aga, meðal annars vegna þess að enginn þeirra talaði tungumál innfæddra. ■ GERHARD SCHRÖDER Skoðar þýskt flugvélamódel í upplýsinga- og samskiptasafni þýska hersins nálægt Bonn. 60 ár frá Normandí: Schröder tekur þátt ÞÝSKALAND, AP Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, tekur fyrst- ur kanslara þátt í minningar- athöfn um stríðsátökin milli bandamanna og Þjóðverja í Norm- andí fyrir 60 árum. Schröder leggur blómsveig á gröf óþekkta þýska hermannsins og á minnisvarða annarra sem féllu. Hann heimsækir einnig gröf 322 þýskra hermanna. Þeir eru grafnir við hlið 2.200 hermanna Breta og Bandaríkjamanna. Kanslarinn er fæddur tveimur mánuðum fyrir innrásina í Norm- andí og er heimsóknin talin mikil- vægt merki þess að menn hafi sæst við fortíðina og að heift og biturleiki seinni heimsstyrjaldar sé að baki. ■ ■ ORKUSTOFNUN GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 71,46 -0,42% Sterlingspund 131,35 -0,12% Dönsk króna 11,74 -0,36% Evra 87,26 -0,39% Gengisvísitala krónu 122,52 0,15% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 293 Velta 4.540 milljónir. ICEX-15 2.654 -0,01% MESTU VIÐSKIPTIN Össur hf 500.084 Actavis Group hf. 97.746 Straumur Fjárfestb. hf 77.297 MESTA HÆKKUN Össur hf 2,73% Bakkavör Group hf. 1,72% Landsbanki Íslands hf. 1,29% MESTA LÆKKUN Burðarás hf. -1,05% Actavis Group hf. -0,74% Marel hf. -0,70% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ* 10.256,7 0,6% Nasdaq* 1.985,6 1,3% FTSE 4.454,4 0,4% DAX 3.961,9 1,1% NK50 1.380,3 0,1% S&P* 1.123,4 0,6% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 VEISTU SVARIÐ? 1Í gær voru liðin 15 ár frá því að kín-versk stjórnvöld beittu hernum til að kveða niður stúdentamótmæli í Peking. Hvað heitir torgið sem mótmælin eru kennd við? 2Hver er framkvæmdastjóri Íslands-deildar Amnesty International? 3Þjálfari hvaða liðs í Landsbanka-deildinni setti nýverið fjölmiðlabann á leikmenn liðsins? Svörin eru á bls. 50 www.netsalan.com Knarrarvogur 4 - 104 Reykjavík - Sími 517 0220 OPIÐ LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 13.00 - 16.00 Til afgreiðslu! Dodge Ram 2500 Quad Cap Laramie 4x4 FYRSTUR KEMUR - FYRSTUR FÆR Síðustu eintökin koma til landsins eftir helgina! TNT-sprengja: Ellefu létust RÚSSLAND, AP Eins kílós TNT- sprengja grandaði ellefu manns og slasaði aðra 38 á markaði í bænum Samara í Mið-Rússlandi síðastliðinn föstudag. Hjálparstarfsfólk hafði gefið út að gashylki til eldunar hefði sprungið en sjónarvottar töldu sig finna púðurlykt sem benti til sprengjutilræðis. Yfirvöld hafa ekki gefið út hvort um hryðjuverk hafi verið að ræða. ■ AP /M IC H AE L SO H N PATREKSFJÖRÐUR Hinn ákærði hefur unnið mikið í félagslífi með börnum og unglingum á Patreksfirði á undanförnum árum. ÓBREYTT STJÓRN Litlar breyting- ar urðu á stjórn Orkuveitu Reykjavíkur á síðasta borgar- stjórnarfundi. Kosið er til árssetu í nefndinni í senn. Tveir nýir menn taka sæti í vara- stjórn, Óskar Dýrmundur Ólafs- son fyrir Reykjavíkurlista og Gísli Marteinn Baldursson fyrir Sjálfstæðisflokk. Kolbeinn Ótt- arsson Proppé og Alda Sigurðar- dóttir viku. Alfreð Þorsteinsson var endur- kjörinn sem formaður stjórnar og Steinunn Valdís Óskarsdóttir verður áfram varaformaður. INNRÁSAR BANDAMANNA MINNST Bandarískir fótgönguliðar vaða að landi í Normandí í júní 1944. Varnir Þjóðverja voru ægilegar á þessum stað og mannfall varð mikið þennan dag. M YN D /AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.