Fréttablaðið - 05.06.2004, Síða 22
Íþróttamót fyrir afkomendurna
Robert F. Kennedy var skotinn áþessum degi fyrir 36 árum.
Hann var í framboði til forseta
Bandaríkjanna þegar hann varð
fyrir árásinni og hafði nýlokið við
að halda ræðu í tilefni sigurs í for-
kosningum í Kaliforníu.
Skotmaðurinn, Palestínumaður-
inn Sirhan Sirhan, var handtekinn á
staðnum. Auk Kennedys slösuð-
umst fimm aðrir í árásinni.
Kennedy var fluttur í flýti á
sjúkrahús þar sem hann barðist
fyrir lífi sínu í 24 klukkutíma en
hann lést að morgni 6. júní, aðeins
42 ára að aldri. Hann var jarðaður
tveimur dögum seinna við hlið
bróður síns, John F. Kennedy.
Robert F. Kennedy fæddist árið
1925 í Massachusetts. Hann starf-
aði seinna sem kosningastjóri í bar-
áttu bróður síns í forsetakosningum
og starfaði hjá honum eftir að hann
var kjörinn. Eftir morðið á John
starfaði Robert fyrst um sinn fyrir
nýjan forseta, Lyndon B. Johnson,
en sagði fljótlega af sér til að bjóða
sig fram til setu í öldungadeild
Bandaríkjaþings. Sem þingmaður
var hann þekktur fyrir að berjast
fyrir réttindum minnihlutahópa og
gagnrýni sína á Víetnamstríðið.
Árið 1968 var hann hvattur til að
bjóða sig fram til forseta Banda-
ríkjanna fyrir hönd demókrata og
tilkynnti hann um framboð sitt 16.
mars. Tilræðismaðurinn var
dæmdur til dauða en þeim dómi var
breytt í lífstíðarfangelsi þegar
Kalifornía lét af dauðarefsingum. ■
■ ÞETTA GERÐIST
1883 Hagfræðingurinn John Maynard
Keynes fæðist. Hann setti mark
sitt á söguna en hann taldi að
stjórnvöld ættu að hafa afskipti
af efnahagsmálum.
1944 Bretar varpa meira en 5.000
tonnum af sprengjum á bæki-
stöðvar Þjóðverja í Normandí. Á
meðan sigla skip bandamanna
eftir Ermarsundi og undirbúa
innrás í Normandí.
1947 George Marshall hvetur Banda-
ríkin til að hjálpa við uppbygg-
ingu í Evrópu eftir stríðið. Verk-
efnaáætlunin sem fór í gang í
kjölfarið gekk undir nafninu
Marshall-aðstoðin en gífurlegt
fjármagn fór til Evrópu frá
Bandaríkjunum í kjölfarið.
1949 Spennusagnarithöfundurinn frá
Wales, Ken Follett, fæðist. Hann
hefur gefið út hverja metsölu-
bókina á fætur annarri.
ROBERT F. KENNEDY
Var myrtur fyrir 36 árum. Hann var þá í
framboði til embættis forseta Bandaríkj-
anna.
Robert F. Kennedy myrtur
Ég var nú aðallega að berjastfyrir því í vikunni að fá að
koma sjónarmiðum mínum á
framfæri í fjölmiðlum og vakti til
að mynda athygli Ríkisútvarpsins
á því hversu einkennilegt það
væri að kalla alla spekinga lands-
ins til að tjá sig um synjunarvald
forsetans, nema forsetaframbjóð-
endurna tvo sem eru í framboði
með stuðningi þúsunda manns,“
segir forsetaframbjóðandinn Ást-
þór Magnússon milli þess sem
hann er svikinn um stöðugt síma-
samband í lestarjarðgöngum í
Hollandi, þar sem hann eyðir
helginni.
„Það tekur nú tímann sinn að
hringja og skrifa vegna þessa
misréttis, en mér tókst allavega
að koma skoðun minni á framfæri
í ríkissjónvarpinu eftir mikinn
barning en vitaskuld ekki í Norð-
urljósafjölmiðlunum, því þar fæ
ég ekki að segja neitt nema hvað
Fréttablaðið birti eftir mig grein
nú í gær. Ég hringi ítrekað í Stöð 2
til að bjóða þeim að vera við-
stadda okkar viðburði, eins og t.d.
þegar ég fór og hitti útvarpsstjóra
vegna ofangreinds máls, en þeir
vilja ekki mæta, og ég fæ aldrei
að koma inn á teppi Norðurljósa
til að segja eitt né neitt. Það er
engu líkara en að fyrirtækið sé
auglýsingastofa fyrir forseta-
framboð Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, því hinir forsetaframbjóð-
endurnir fá ekki einu sinni að
koma stefnumálum framboðs síns
á framfæri með málefnalegum
hætti. Mér finnst þetta voða
skrýtið land, Ísland, og lýðræðið
með afar sérstökum hætti. Líkist
helst lýðræði í Írak, en allavega
Fékk að koma skoðun sinni á fram-
færi í ríkissjónvarpinu
lýðræði undir Norðurljósum. En
það breytist nú kannski þegar
þjóðin samþykkir þetta fjölmiðla-
frumvarp og brýtur upp þessa
einhæfu eignaraðild.“ ■
22 5. júní 2004 LAUGARDAGUR
■ AFMÆLI
■ JARÐARFARIR
■ ANDLÁT
MARK WAHLBERG
Leikarinn, söngvarinn og gítaristinn er 33
ára í dag.
5. JÚNÍ
„Besti vinur minn er Hjalti Snær Ægisson,
kærastinn minn,“ segir umsjónarkona
Hjartsláttar á ferð og flugi, Dagbjört Há-
konardóttir. „Hann er alltaf til í að hlusta
á nöldrið í mér og kann að hugga mig
þegar ég er leið, en hann er líka voðalega
fyndinn og góður félagi.“
[ BESTI VINURINN ]
DAGBJÖRT HÁKONARDÓTTIR
Hjörtur Pálsson rithöfundur er 63 ára.
Kristín Arngrímsdóttir myndlistarkona
er 51 árs.
Guðmundur Oddur Magnússon, graf-
ískur hönnuður, er 49 ára.
Sigrún Waage leikari er 43 ára.
Fjóla Haraldsdóttir lést miðvikudaginn
2. júní.
Halldór Guðmundsson, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri, Njarðvík, lést þriðjudag-
inn 1. júní.
Ingibjörg Svava Helgadóttir, frá Hlíðar-
enda í Fljótshlíð, lést mánudaginn 31.
maí.
Ingimundur Ólafsson, Frostafold 49,
Reykjavík, lést miðvikudaginn 2. júní.
Ída Ingólfsdóttir, fyrrv. forstöðukona á
barnaheimilinu Steinahlíð, lést fimmtu-
daginn 3. júní.
Jóhanna Edda Sumarliðadóttir lést
sunnudaginn 23. maí. Útförin fór fram í
kyrrþey.
Kristjón Ómar Pálsson lést þriðjudag-
inn 1. júní.
Marinó Jónsson, Höfðahlíð 1, Akureyri,
lést þriðjudaginn 18. maí. Útförin fór
fram í kyrrþey.
Rósa Halldóra Hansdóttir, Hrafnistu í
Reykjavík, lést miðvikudaginn 2. júní.
Sigríður Kristín Halldórsdóttir, Ásgarði
119, lést miðvikudaginn 2. júní.
Sigríður J. O’Brien, Klapparstíg 1,
Reykjavík, lést laugardaginn 22. maí. Út-
förin fór fram í kyrrþey.
Svava Hildur Halldórsdóttir, Sörlaskjóli
7, lést fimmtudaginn 27. maí.
Þórir Guðmundsson, Kleppsvegi 62,
Reykjavík, lést mánudaginn 31. maí.
11.00 Hólmfríður Jónsdóttir frá Nauta-
búi verður jarðsungin frá Sauðár-
krókskirkju.
14.00 Margrét Magnúsdóttir Öfjörð,
áður til heimilis að Staðarbakka,
Eyrarbakka, verður jarðsungin frá
Eyrarbakkakirkju.
14.00 Signý Sigmundsdóttir verður
jarðsungin frá Hómavíkurkirkju.
Af því sem ég hef gert er égstoltastur af börnum mínum
og barnabörnum og ég ætla að
vera með þeim á afmælisdaginn,“
segir Vilhjálmur Einarsson, fyrr-
verandi skólameistari og frjáls-
íþróttakappi, en hann er sjötugur í
dag.
Í tilefni dagsins munu afkom-
endur Vilhjálms spreyta sig í
frjálsíþróttum, kraft- og knatt-
þrautum en það verður að teljast í
anda Vilhjálms, sem hlaut silfur-
verðlaun í þrístökki á Ólympíu-
leikunum í Melbourne 1956. „Ég
ætla að setja upp eftirlíkingu af
íþróttaskólanum sem ég starf-
rækti ásamt félaga mínum Hösk-
uldi Goða Karlssyni á sjöunda
áratugnum. Þetta voru námskeið
sem við héldum fyrir krakka og í
tilefni afmælisins ætla ég að
skylda fjölskylduna til að fara í
þetta með mér.“
Blásið verður til fjölskyldu-
mótsins á Laugardalsvellinum en
afkomendur Vilhjálms eru tutt-
ugu og tveir talsins. Aðspurður
hvort hann muni ekki fara með
sigur af hólmi segir Vilhjálmur
það líklega ekki gerast. „Ég hef
ákveðið að vera í dómarastöðu og
það verða stífar mælingar. Ég
eyði mestum tíma fyrir framan
strigann og trönurnar þessa dag-
ana, sem er alls ekki góður undir-
búningur fyrir stökk og hlaup.“
Auk þess að halda íþróttamót er
Vilhjálmur að skipuleggja afmæl-
issýningu í Eden í Hveragerði sem
verður opnuð 14. júní. „Ég ætla að
sýna myndir mínar af þessu tilefni
enda hef ég eytt drjúgum tíma í
myndlistina undanfarin ár.“
Að kappleikunum loknum ætlar
Vilhjálmur að skunda með fjöl-
skylduna í sund en grillmatur verð-
ur einnig á boðstólum: „Síðan fá all-
ir þátttakendur auðvitað viðurkenn-
ingarskjal fyrir þátttökuna,“ segir
Vilhjálmur að lokum. ■
AFMÆLI
VILHJÁLMUR EINARSSON ER 70
ÁRA Í DAG
■ Hann heldur upp á afmæli sitt með
sérstökum hætti í Laugardalnum.
VIKAN SEM VAR
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON FOR-
SETAFRAMBJÓÐANDI
■ Eyddi bróðurparti vikunnar í að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri í fjöl-
miðlum.
5. JÚNÍ 1968
ROBERT F. KENNEDY VAR
MYRTUR ER HANN FAGNAÐI
■ stórsigri í forkosningum fyrir forseta-
kosningarnar í Bandaríkjunum.
VILHJÁLMUR EINARSSON
Ákvað að halda íþróttamót í tilefni stórafmælis síns.