Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.06.2004, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 05.06.2004, Qupperneq 39
LAUGARDAGUR 5. júní 2004 27 ÍSLANDSHANDBÓKIN – náttúra, saga og sérkenni Dýrmæt leiðsögn um landið, 3000 staðir í byggðum og óbyggðum. Tvö bindi í öskju, 1000 bls., 1300 litmyndir. Efninu er skipt eftir sýslum. Sýslukort með öllum þeim stöðum sem fjallað er um. Allar helstu hálendisleiðir. Súðarvogi 48, Kænuvogsmegin, sími 588 2013 Einsta kt sumart ilboð! Fimmþ úsund króna afsláttu r 9.900. - í stað 14.90 0.- í öllum bókab úðum Kelsey Grammer, stjarnan úrFrasier-þáttunum, íhugar að sækjast eftir þingsæti, en hefur ekki enn gert upp við sig fyrir hvaða ríki en nokkur koma til greina þar sem leikarinn á eignir í Kaliforníu, New York, Flórída og Colorado. Hann er repúblikani og hefur verið hvattur til að etja kappi við Hillary Clinton í New York. Hann segir sjálfur að rætur sínar liggi í Flórída þar sem hann ólst upp. Margir telja að barátta Grammers fyrir þingsæti verði erfið. Grammer, sem er 49 ára, hefur lifað tímana tvenna og átti um tíma við alvarlegt áfengis- vandamál að stríða. Talið er að það verði rifjað upp í kosningabaráttu ásamt tveimur skilnuðum hans og fjölskylduharmleikjum, en bæði faðir hans og systir voru myrt. Bent er á að Grammer hafi ekki mótaða pólitíska stefnu. Þeg- ar hann er spurður um baráttu- mál svarar hann að hann vilji láta gott af sér leiða og nánari skýr- ingar er erfitt að toga upp úr hon- um. Hins vegar má svo sem segja að ríkisstjórinn í Kaliforníu, Arnold Schwarzenegger, hafi ekki heldur haft sérlega ígrund- aða pólitíska stefnu þegar hann tilkynnti á sínum tíma um fram- boð sitt. Skortur á stefnumálum þarf því ekki að hefta pólitískan frama Grammers. Næstu vikur ætlar Grammer að einbeita sér að leiklistinni. Eins og kunnugt er hefur hann sagt skilið við Frasier í bili en útilokar þó ekki framhald. Hann var ný- lega í Bretlandi þar sem hann lék í gamanmyndaþætti og er að hefja leik í sjónvarpsmynd eftir sögu Charles Dickens, A Christmas Carol, en þar fer hann með hlut- verk hins ódauðlega nirfils, Scrooge. ■ TOM HANKS Hann hefur tvisvar hlotið Óskarsverðlaun og samkvæmt nýjum rannsóknum má hann eiga von á að verða langlífur. Velgengni eykur langlífi Því hefur verið haldið fram aðþví betra lífi sem fólk lifi, því langlífara verði það. Ítrekaðar rannsóknir staðfesta þessa kenn- ingu. Ríkt fólk lifir lengur og á betra líf en fátækt fólk. Rann- sóknir leiða einnig í ljós að því meiri sem velsæld þeirra ríku er, því lengra lífi lifir það. Allt þetta er útskýrt nákvæmlega í væntan- legri bók eftir enska prófessorinn Michael Marmot. Hann segir að gott starf og góð laun geri það að verkum að fólk hafi meiri stjórn á lífi sínu, hafi frjálsari vinnutíma og geti hagað lífi sínu að eigin vild í mun meiri mæli en þeir sem ekki eru jafn vel settir. Allt þetta skapi vellíðan og auki líkur á langlífi. Marmot segir að jafnvel það að búa í fjögurra herbergja íbúð í stað þriggja auki lífslíkur manna. Aðrar kannanir styðja þessar nið- urstöður Marmots. Til dæmis sýn- ir nýleg kanadísk könnun að kvik- myndaleikarar sem fá Ósk- arsverðlaun lifa að meðaltali fjór- um árum lengur en Hollywood- leikarar sem aldrei hljóta Óskar- inn. Einn af forsvarsmönnum rannsóknarinnar sagði að gleðin sem fylgdi því að vinna Óskar gæti fylgt vinningshöfum allt lífið og dregið þar með úr álagi og það yki líkur á langlífi. ■ KELSEY GRAMMER Stjarnan úr Frasier hyggur á pólitískan frama. Grammer vill verða þingmaður Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.