Fréttablaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 50 00, fax: 550 50 16 Ritstjórn: 550 50 05, fax: 550 50 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 50 10 - fax 550 57 27, auglysingar@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Þ að fór sem ég hélt. Lífið hér íheitu löndunum er nokkuð frábrugðið lífinu heima, en þetta veistu sennilega allt. Samt er eitt og annað sem mig langar að segja frá í þessu bréfkorni. ÞEGAR ég kom var svo ástatt að þrír heimamenn, allt karlmenn á besta aldri að sjá, voru að mála garðhlið við blokkina þar sem ég bý meðan ég dvel hér. Einn þeirra var með pensil, ekki stór- an, svona ámóta og eru seldir í Litabæ og Húsasmiðjunni til að mála ofna og annað smálegt. Hin- ir tveir horfa á þann með pensil- inn. Málningardósina hef ég ekki séð en sannað er að hún er ein- hvers staðar nærri. Þeim gengur verkið ekki vel. Mér mörlandan- um þykir ekki mikill sómi af verki þeirra. Samfélagið sjálft skaðast samt lítt af þessum seina- gangi. Blómlegt mannlíf og snyrtilegt. HÉR er það til siðs að fá sér hænublund upp úr hádegi. Eins er til siðs að fara sér ekki hratt. Þetta er erfitt fyrir okkur, af- komendur skútukarla og togara- jaxla, að skilja. Sem dæmi get ég nefnt er ég fór eftir jógurtdós um daginn. Ekki langa leið, kannski fimmhundruð metra. Svona skammargöngu hef ég aldrei áður farið á eins löngum tíma. Þannig er háttað að fortófið er ekki breitt en á undan mér gengu þrír aldraðir heimamenn, lágvaxnir. Þeir gengu hlið við hlið á sama hraða og þeir hafa farið í gegnum lífið. Mér var ómögulegt að komast fram úr og þeim virt- ist alveg sama, létu sem ég væri ekki til. Eins og mig vantaði jógúrtina. ÞAÐ er fólk frá mörgum löndum í þessu sveitarfélagi. Ég sé að þeir frá Englandi hafa tekið upp sið frænda sinna í Ameríku að fitna meira en gott getur þótt. Ekki svo að skilja að mér líki það ekki. Í öllum samanburði hér er ég ekki feitur eins og heima, kannski þybbinn – en alls ekkert umfram það. GEGNT mér á ganginum búa nokkrir ungir menn frá Ítalíu. Ég hef lesið að í þeirra landi teljist áfengisdrykkja til menningar. Þessir ungu menn eiga það sam- eiginlegt með rónunum okkar á Fróni að þeir koma óorði á menn- inguna á sama hátt og rónarnir eru sagðir koma óorði á áfengið. En það segja aðeins drykkjurút- ar, eins og alvitað er. NÚ er liðin vika. Enn mála heimamennirnir hliðið og lítt miðar. Einn mundar pensilinn og hinir horfa. Samt gengur sam- félagið. Skrýtið. Kæri landi Settu hlýlegan svip á heimilið 1.490,- BODACKE körfur 3 stk. h 27-29 sm, Ø 20-28 sm 1.990,- ALKOV karfa úr bananalaufum h 55, Ø 34 sm 690,- BILLINGSFORS karfa h 22, Ø 35 sm 1.490,- ALKOV diskur úr bananalaufum 60 sm 690,- BLOMSFORS karfa 41x26x14 sm ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N EH F/ SI A. IS IK E 24 98 3 06 .2 00 4 © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 00 4 Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is KITTE bastskreyting 50 sm 1.250,- KITTE bastskreyting 12 sm 190,- 590,- GRUNDSUND bastkarfa h 20, Ø 13 sm 95,- GULLARP box 11 sm 390,- HAKEBO körfur úr víði 4 stk. AGEN stóll úr bambus 2.990,- 99 kr/skeytið. Sendu SMS skeytið JA POPP á númerið 1900 & þú gætir farið á tónleikana. Við sendum þér spurningu sem þú svarar með SMS skeyti JA A, B eða C á númerið 1900. Við sendum þér STRAX til baka númer hvað þú ert og hvort þú hafir unnið eða ekki. BAKÞANKAR SIGURJÓNS M. EGILSSONAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.