Fréttablaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 19.06.2004, Blaðsíða 2
2 19. júní 2004 LAUGARDAGUR UTANRÍKISMÁL Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, er staddur hér á landi í tveggja daga heimsókn og fundaði með Davíð Oddssyni forsætisráð- herra og Halldóri Ásgrímssyni ut- anríkisráðherra í gær. Scheffer hrósar íslenskum stjórnvöldum fyrir rekstur flug- vallarins í Afganistan og segir Ís- lendinga setja öðrum þjóðum gott fordæmi og sanna að smáþjóðir geti skipt sköpum. Hann hefur rætt stöðu varnarmála á Íslandi við Davíð og Halldór og bauð þeim aðstoð sína í samningavið- ræðum við bandarísk yfirvöld væri þess óskað. Framkvæmda- stjórinn neitaði hins vegar að NATO myndi að einhverju leyti taka að sér varnir Íslands ef Bandaríkjamenn drægju herlið sitt burt. „Ég vona að íslensk og bandarísk stjórnvöld leysi málið sín á milli á grundvelli varnar- samningsins, en þetta er ekki mál sem varðar NATO.“ Davíð Odds- son tók undir orð framkvæmda- stjórans og sagði engan ágreining vera um skilning á stöðu mála. Í lok þessa mánaðar hittast ut- anríkisráðherrar aðildarríkja NATO á fundi í Tyrklandi, þar sem fjallað verður um þau mál sem eru efst á baugi, til dæmis ástandið í Afganistan, friðar- gæslu í Kosovo og hugsanlega að- komu bandalagsins í Írak. ■ Unglingar fundu fjölda hasspípa Unglingar og leiðbeinendur hjá Vinnuskóla Reykjavíkur fundu nokkra tugi af hasspípum á svæði austan við Rauðavatn. Fíkniefnalögreglan segir almenning duglegan að láta vita af stöðum sem þessum. LÖGREGLA Unglingar og leiðbein- endur hjá Vinnuskóla Reykjavík- ur hafa fundið fjölda af hasspíp- um á svæði austan við Rauðavatn. Krakkarnir hafa unnið í rúma viku að því að hreinsa svæðið og gera göngustíga. „Fyrsta daginn sem við komum hingað sá ég tvær hasspípur um leið og ég steig út úr rútunni. Það hefur ekkert verið gert til að reyna að fela þetta. Sums stað- ar höfum við fundið fimm til sex stykki saman í hrúgu,“ segir Hjördís Sigurðar- dóttir, leiðbein- andi hjá Vinnu- skóla Reykjavík- ur. Hjördís segir álpappír vera úti um allt. Þá hafa líka fundist sígar- ettur sem tóbakið hefur verið tek- ið úr. Þau hafa ekki fundið nein fíkniefni á svæðinu en öll tæki og tól til neyslu. Sérstaklega hafi fundist mikið af hasspípum eftir síðustu helgi. Hún segir að þau hafi misst töluna á pípunum þegar þær voru orðnar fleiri en 30. Hjördís segir alla leiðbeinend- ur fara á vikunámskeið hjá vinnu- skólanum áður en vinna hefst með krökkunum. Þar hafi meðal ann- ars verið lögð áhersla á hvernig skuli bregðast við hlutum sem þessum. „Fyrst reyndum við að leyna þessu fyrir krökkunum en þau vita öll af þessu. Nánast hafa þau öll fundið hasspípu. Við undir- búum krakkana og brýnum fyrir þeim að þetta sé langt frá því að vera eðlilegt,“ segir Hjördís. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, segir neyslustaði sem þessa ekki vera óþekkt fyrirbæri. Yfirleitt séu þeir á nokkuð af- skekktum stöðum skammt frá byggð. Talið er að helst séu neyt- endurnir unglingar sem hafi ekki í önnur hús að venda. Ásgeir segir fólk duglegt að láta lögregluna vita af stöðum sem þessum. Lögreglan skynji að almenningur sé á móti fíkniefnum og tilbúinn að láta lög- regluna vita ef þeirra verður vart. hrs@frettabladid.is ,,Fyrsta daginn sem við komum hingað sá ég tvær hasspípur um leið og ég steig út úr rútunni. „Það er voðalega langt síðan.“ Eggert Þorleifsson vann Grímuna á dögunum fyrir bestan leik í aðalhlutverki fyrir frammistöðu sína í leikritinu Belgíska Kongó. SPURNING DAGSINS Eggert, ertu búinn að ná toppnum? Á VETTVANGI Iyad Allawi forsætisráðherra skoðaði verksummerki. Varnarmálaráðherra: Árásanna verður hefnt BAGDAD, AP „Við höggvum hend- urnar af þessum mönnum, við skerum þá á háls ef þörf krefur,“ sagði Hazem al-Shalan, varnar- málaráðherra Íraks, þegar hann ræddi við fjölmiðla um hvernig hryðjuverkamenn yrðu eltir uppi. Hann sagði að leitað yrði hús úr húsi að mönnunum sem stóðu fyrir sjálfsmorðsárásinni sem kostaði 35 manns lífið við ráðning- arstöð öryggissveita Íraks. Al-Shalan sagði til greina koma að lýsa yfir herlögum ef þörf krefði til að koma á öryggi. ■ FRAMKVÆMDASTJÓRINN OG RÁÐHERRARNIR Scheffer vonar að íslensk og bandarísk stjórnvöld komist að samkomulagi og býðst til að koma að viðræðum sé þess óskað. HASSPÍPUR Í TUGATALI HAFA FUNDIST Á SVÆÐINU Leiðbeinendur í Vinnuskólanum hafa lært á námskeiði hvernig bregðast skuli við finnist til að mynda hasspípur sem þessar. Brýnt sé fyrir unglingunum að slíkt sé ekki eðlilegt. DÓMSMÁL Úrskurður dóms-og kirkjumálaráðuneytisins um að afturkalla dvalarleyfi ungs Lit- háa árið 2002 vegna geðsjúkdóms var felldur úr gildi í Hæstarétti í gær. Litháinn kom til landsins seint á árinu 1999 og fékk hann tíma- bundið dvalar- og atvinnuleyfi. Hann hafði dvalið í landinu í nær tvö ár þegar lögreglan hafði spurnir af því að hann hefði brot- ið alvarlega af sér í heimalandi sínu. Í ljós kom að árið 1995 hafði hann nauðgað og drepið konu en verið talinn ósakhæfur vegna of- sóknarkennds geðklofa. Hann var á geðsjúkrahúsi til ársins 1999. Manninum var vísað úr landi vegna geðheilsu sinnar. Talið var að dvöl hans hér á landi gæti verið hættuleg hagsmunum almennings. Stuðst var við gögn litháenskra lækna en með réttu hefði átt að fá nýtt mat. Það þótti of kostnaðarsamt. Einn dómaranna skilaði sér- áliti og taldi að alvarleiki brotsins réttlætti að dvalarleyfið væri afturkallað og ævilangt ferða- bann hans til landsins sem og næstu þriggja ára til Norðurlanda og þar með Schengen-landa. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Ferðamálastefna Reykjavíkur: Ferðafólki fjölgi um 7% FERÐAMÁL Laugardalurinn verður að miðstöð fyrir fjölskyldur og heilsutengda ferðaþjónustu. Ferðamálastefna Reykjavíkur var kynnt í gær. Svanhildur Konráðs- dóttir, forstöðumaður Höfuðborg- arstofu, segir marga koma að und- irbúningnum. Fjörutíu verkefni eru í burðar- liðnum. Þau eiga að tryggja að ferðamönnum fjölgi um 7% á ári, að hótelgisting fari ekki undir 70% nýtingu í lok tímabilsins og að farþegum skemmtiferðaskipa fjölgi um 7%. Þá vill Höfuðborg- arstofa sjá 10% aukningu gjald- eyristekna á ári og að ekki færri en 80% gestanna verði ánægðir með dvöl sína á landinu. ■ ■ LÖGREGLUFRÉTTIR SLASAÐIST ILLA Í ÚTREIÐARTÚR Kona mjaðmagrindarbrotnaði þegar hestur sem hún reið datt þannig að hún lenti undir honum. Slysið varð á Eiðum á Héraði og var konan flutt með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Egilsstöðum. Í gær stóð til að konan yrði flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur. GLEÐSKAPUR HJÁ FERÐALÖNGUM Gleðskaður var meðal ferðalanga á Kirkjubæjarklaustri í fyrrinótt og þurfti lögregla að hafa afskipti vegna hávaða. Þá fór einn ferða- langanna of snemma af stað á bíln- um og var tekinn fyrir ölvunarakst- ur um klukkan tíu í gærmorgun. TVÖ INNBROT Brotist var inn í Bú- vörudeildina á Hvolsvelli í fyrrinótt og þaðan stolið fartölvu. Þá var far- ið inn á rafmagnsverkstæði en engu stolið. Málið er í rannsókn lögreglu. Hættulegur hagsmunum almennings: Rangt að vísa manninum úr landi KB banki tekur lán: Fjörutíu milljarðar VIÐSKIPTI KB banki hefur tekið víkjandi lán upp á tæpa 40 millj- arða króna. Lánið er tekið vegna fjármögnunar á kaupum á danska FIH bankanum í Danmörku. Deutsche Bank hafði yfir- umsjón með útgáfu skuldabréfa vegna lánsins. KB banki keypti danska bankann á 84 milljarða króna og kemur því tæplega helmingur fjárins með útgáfu nýja lánsins. KB banki hyggst fara í hlutafjárútboð til þess að afla þess sem á vantar til þess að kaupa bankann. ■ ■ EVRÓPA ÓLYMPÍUFANGELSI Nýtt fangelsi verður opnað stutt frá Aþenu, höfuðborg Grikklands, áður en Ólympíuleikarnir hefjast þar í ágúst. Fangelsið á að hýsa útlend- inga sem verða handteknir með- an á leikunum stendur og til stendur að vísa úr landi. SKIPULAGÐI HRYÐJUVERK Franskur maður sem sakaður er um að skipuleggja hryðjuverk í Bretlandi hefur verið úrskurðað- ur í gæsluvarðhald fram yfir réttarhöld sem hefjast í nóvem- ber. Á honum fundust leiðbein- ingar um hvernig ætti að setja saman sprengjur og sprengja þær með fjarstýringu. ENGIN SPILLING Stjórnendur norska olíufélagsins Statoil segja innanhússrannsókn hafa leitt í ljós að stjórnendur hafi ekki gert sig seka um nein lögbrot. Ráðgjafar- samningur fyrirtækisins í Írak vakti grunsemdir um mútu- greiðslur. Norska efnahagsbrota- lögreglan og bandaríska fjármála- eftirlitið rannsaka málið enn. HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS Útlendingaeftirlitið ræddi við geðlækna Landspítala - háskólasjúkrahúss. Þeir staðfestu að sjúkdómurinn væri næsta ólæknanlegur. Fólk þurfi almennt að vera á lyfjum alla ævi og undir stöðugu eftirliti. Taldi einn læknanna sjúkdómsgreininguna jafnvel ranga þar sem maðurinn gat stundað vinnu. Framkvæmdastjóri NATO: Ísland og Bandaríkin komist að samkomulagi Al-Kaída: Afhöfðuðu gísl sinn SÁDI-ARABÍA, AP Hryðjuverkamenn í Sádi-Arabíu afhöfðuðu banda- rískan gísl sinn. Skömmu síðar birtu þeir þrjár myndir af af- höggnu höfði hans á netinu. Hryðjuverkamennirnir tóku manninn í gíslingu um síðustu helgi og hótuðu að myrða hann ef al-Kaídaliðum sem eru í fangelsi í Sádi-Arabíu yrði ekki sleppt. Frestur til þess rann út í gær og var maðurinn þá afhöfðaður. Í yfirlýsingu hryðjuverkamann- anna sagði að hann hefði fengið að kenna á því sama og múslimar sem hefðu orðið fyrir árásum her- þyrla Bandaríkjahers. Maðurinn vann við miðunarbúnað sem er notaður í þyrlunum. ■ FYRIR AFTÖKUNA Maðurinn var klæddur í svipuð föt og fangar í Guantana- mo.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.