Fréttablaðið - 24.06.2004, Side 14
24. júní 2004 FIMMTUDAGUR
Össur hf. og Íþrótta-
samband fatlaðra:
Framlengja
samstarfs-
samning
Gestir sem gætu verið komnir til að vera:
Villtir fasanar
færa út kvíarnar
FUGLALÍF Svo virðist sem villtir
fasanar hafi verið að færa út
kvíarnar hér á landi.
„Fasönum var sleppt í
Hallormsstaðarskóg með leyfi
landbúnaðarráðuneytisins fyrir
nokkrum árum. Það voru allt
karlfuglar,“ sagði Kristinn
Haukur Skarphéðinsson, líf-
fræðingur hjá Náttúrufræði-
stofnun. „Svo hafa menn annað
hvort sleppt eða misst út fasana
á fleiri stöðum, þannig að þeir
hafa sést alla vega á tveimur
stöðum þar sem þeir eiga ekki
vera. Annars vegar hafa þeir
sést innarlega í Fljótsdal og hins
vegar úti í Jökulsárhlíð. Síðan
eru sögusagnir um að þeir hafi
sést á tilteknum stað í öðrum
landshluta, en það hef ég ekki
fengið staðfest.“
Kristinn Haukur sagði að
villtir fasanar gætu lifað góðu
lífi hér á landi. Þeir lifðu við
miklu verri skilyrði annars stað-
ar. Hins vegar væri ekki vitað
hvort þeir ættu auðvelt með að
fjölga sér við þau skilyrði sem
væru hér á landi.
Hann sagði enn fremur, að
þeir lifðu á grófu korni, fræjum
og skordýrum. Þeir væru mjög
duglegir að bjarga sér. ■
www.plusferdir.is
42.740 kr.
N E T
m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2ja-11 ára í 14 nætur á Benal Beach.
Innifalið er flug, gisting í 14 nætur, ferðir til og frá flugvelli erlendis,
íslensk fararstjórn og allir flugvallarskattar.
56.830 kr. ef 2 fullorðnir ferðast saman, gist í stúdíói á Benal Beach.
NETplús er einungis bókanlegur á www.plusferdir.is
13. júlí
Verð frá
Costa del Sol
– hefur þú séð DV í dag?
Tengdasonur
minn hótaði
að drepa mig
GEGN NAUTAATI
Félagar í dýraverndunarsamtökunum PETA
mótmæla nautaati og segja þar tíðkast
grimmilegar aðfarir gegn máttvana dýrum.
Mótmælendurnir nota nekt til að vekja
meiri athygli en ella.
M
YN
D
A
P
VIÐSKIPTI Össur hf. og Íþróttasam-
band fatlaðra (ÍF) hafa framlengt
samstarfssamning sinn sem er til
fjögurra ára. Um er að ræða fjár-
hagslegan styrk sem er ætlaður til
styrktar ÍF meðal annars við undir-
búning og þátttöku á Ólympíumóti
fatlaðra í Peking 2008.
Össur hf. hefur markað sér þá
stefnu að beina styrkveitingum
sínum til fatlaðra og þeirra sem
nota vörur fyrirtækisins. Um ára-
bil hefur Össur hf. starfað með
notendum við þróun á nýjum vör-
um og í auknum mæli styrkir Öss-
ur fatlaða íþróttamenn um heim
allan sem eru á meðal þeirra bestu
í heiminum í dag.
Þeir Íslendingar sem munu taka
þátt fyrir Íslands hönd á Ólympíu-
móti fatlaðra í Aþenu í september
eru Kristín Rós Hákonardóttir, Jón
Oddur Halldórsson og Jóhann Rún-
ar Kristjánsson. ■
UNDIRSKRIFT SAMNINGS
Á myndinni sjást Jón Sigurðsson, forstóri Össurar h/f, og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður
ÍF, handsala endurnýjun samningsins. Þeim á hægri hönd er Phil Craven, forseti IPC, og á
vinstri hönd Bob Price, formaður EPC. Einnig eru með þeim á myndinni tveir af Ólympíu-
mótsförum ÍF þau Kristín Rós Hákonardóttir og Jón Oddur Halldórsson.
FASANAR
Frést hefur af villtum fasönum á stöðum þar sem þeir eiga alls ekki að vera