Fréttablaðið - 24.06.2004, Side 22
Peningapólitík ríkis og skóla
Í fyrstu grein reglugerðar um fram-
haldsskóla (98/2000) kemur fram að
þeim sé skylt að sjá útskriftarnemend-
um grunnskólanna fyrir skólavist. Þar
segir: „Allir þeir sem lokið hafa námi í
grunnskóla eða öðru jafngildu námi
skulu eiga kost á að hefja nám í fram-
haldsskóla“. Vitað hefur verið í nokkurn
tíma að í óefni stefndi. Í grunnskólun-
um hefur heyrst af því að námsráðgjaf-
ar hafi reynt að róa áhyggjufull
börnin og foreldra þeirra með
því að þarna væri bara um að
ræða baráttu framhaldsskól-
anna fyrir auknum fjárfram-
lögum og að þótt útlitið væri
svart myndu mál leysast
að lokum, því þetta væri
samkomulagsatriði ríkis og skóla. Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra lét enda væl forsvars-
manna framhaldsskóla ekki hafa áhrif á
sig og kom með þann mótleik að
bregða sér bara í frí til sólarlanda.
Kannski að þetta sé samt blekkingar-
leikur á borð við það þegar útilegu-
menn á heljarþröm henda kjötlæri úr
helli sínum til að blekkja umsáturs-
menn sína. Þeim hundruðum grunn-
skólanema sem óttast að fá ekki skóla-
vist í framhaldsskóla næsta vetur er
tæplega skemmt yfir peningapóli-
tískum leik skóla og ríkis.
Orustur eða orrustur
Á tímum átaka í þjóðfélag-
inu verður mörgum heitt í
hamsi og geysast út á ritvöllinn, bæði á
prenti og svo ekki síður á netinu. Leitar-
vélin Google finnur til dæmis tæplega
rúmar 700 færslur með leitarorðinu
„stjórnmál“ í tengslum við orðin „átök“
eða „rimma.“ Færri virðast þó fjalla um
orrustur, en kannski er það af því í hve
miklum vafa pennar netsins eru varð-
andi rithátt orðsins. 364 skrifa „orrusta“
meðan 351 skrifar „orusta.“ Fólk ætti þó
ekki að þurfa að láta það aftra sér því
hvort tveggja er rétt.
Valddreifing er aðalsmerki lýðræð-
islegra stjórnarhátta. Með vald-
dreifingu er m.a. átt við skiptingu
valds í löggjafarvald, framkvæmd-
arvald og dómsvald, svo sem lýst
er strax í 2. gr. stjórnarskrár Ís-
lands. Þessi þrískipting valdsins er
órofa þáttur þeirrar lýðræðisskip-
anar, sem lýðveldið hvílir á. Um
þessa valdskiptingu segir James
Madison, einn helzti höfundur
stjórnarskrár Bandaríkjanna og
fjórði forseti landsins (1809-1817):
„Safnist löggjafarvald, dómsvald
og framkvæmdarvald á sömu
hendur… þá er það rétt nefnd ógn-
arstjórn.“
Skiptingu valds hefur verið
ábótavant á Íslandi. Einkum hefur
skort á skörp skil milli löggjafar-
valds og framkvæmdarvalds. Al-
þingismenn hafa ýmsir, þar á
meðal dr. Pétur Blöndal, fundið að
ásælni framkvæmdarvaldsins og
lýst því, hvernig ríkisstjórnin
hefur iðulega knúið lagafrumvörp í
gegn um þingið, án þess að þing-
menn fengju rönd við reist.
Nokkrum ákvæðum stjórnar-
skrár Íslands er ætlað að skerpa
þrískiptingu valds. Aðild forseta
Íslands að löggjafarvaldinu skv. 2.
gr. stjórnarskrárinnar er ætlað að
dreifa valdi, og sama á við um aðild
forsetans að framkvæmdarvaldi
skv. sömu grein. Í þessu ljósi þarf
að skoða 19. gr. stjórnarskrárinnar,
en þar stendur: „Undirskrift for-
seta lýðveldisins undir löggjafar-
mál eða stjórnarerindi veitir þeim
gildi, er ráðherra ritar undir þau
með honum.“
Málskotsrétt forseta Íslands
skv. 26. gr. stjórnarskrárinnar ber
að skoða í líku ljósi. Þar stendur
m.a.: „Nú synjar forseti lagafrum-
varpi staðfestingar, og fær það þó
engu að síður lagagildi, en leggja
skal það þá svo fljótt sem kostur er
undir atkvæði allra kosningabærra
manna í landinu til samþykktar eða
synjunar með leynilegri atkvæða-
greiðslu.“ Það verður ekki séð, að
ríkisstjórnin hafi hingað til lagt sig
fram um að virða þetta ákvæði,
enda hefði hún þá látið þjóðar-
atkvæðagreiðslu um fjölmiðla-
frumvarpið fara fram um leið og
forsetakjör á laugardaginn kemur.
Það var ekki gert, heldur var at-
kvæðagreiðslan dregin á langinn.
Til dráttarins liggja engar hald-
bærar ástæður, að því er séð verð-
ur, heldur virðist það helzt hafa
vakað fyrir ríkisstjórninni að vinna
tíma til að geta hagað atkvæða-
greiðslunni á þann veg, að sem
minnstar líkur væru til þess, að
frumvarpinu yrði hafnað – þ.e. til
að hunza þjóðarviljann.
Íslendingar hafa langa reynslu
af þjóðaratkvæðagreiðslum, því að
forsetakjör á fjögurra ára fresti er
í reyndinni þjóðaratkvæðagreiðsla,
þar sem atkvæði allra Íslendinga
vega jafnþungt óháð búsetu. Því er
eðlilegt og nauðsynlegt, að at-
kvæðagreiðslan um fjölmiðlafrum-
varpið lúti sömu reglum og forseta-
kjör. Það er ótækt, að einn aðili
máls, Alþingi, setji nýjar reglur um
atkvæðagreiðsluna í miðjum klíð-
um, því að Alþingi er af velsæmis-
ástæðum vanhæft til þess verknað-
ar. Ástæðan blasir við: Alþingi er
sjálft aðili að málinu. Þess vegna
þurfa núgildandi reglur að gilda, án
íþyngjandi viðbótarákvæða. Regl-
urnar eru skýrar. Kjósendur þurfa
að geta greitt atkvæði utan kjör-
fundar í allt að átta vikur fram að
kjördegi skv. gildandi lögum, svo
að fjarvera á kjördegi svipti þá
ekki kosningarrétti sínum. Engar
hömlur má leggja á kosninguna,
svo sem kröfu um aukinn meiri-
hluta atkvæða, heldur verður ein-
faldur meirihluti kjósenda að fá að
ráða lyktum málsins svo sem
tíðkast um forsetakjör og aðrar
þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi
til þessa. Alþingi getur ekki við
þessar aðstæður sett íþyngjandi
lög, þ.e. lög, sem takmarka rétt
meirihluta kjósenda til að ráða nið-
urstöðu málsins, enda veitir stjórn-
arskráin ekki heimild til slíks, því
að þar segir aðeins, að leggja skuli
frumvarpið „undir atkvæði allra
kosningabærra manna í landinu til
samþykktar eða synjunar með
leynilegri atkvæðagreiðslu.“
Stjórnarskráin fjallar um
þjóðaratkvæðagreiðslu í 11. gr. Þar
stendur: „Forseti verður leystur
frá embætti, áður en kjörtíma hans
er lokið, ef það er samþykkt með
meirihluta atkvæða við þjóðar-
atkvæðagreiðslu, sem til er stofnað
að kröfu Alþingis, enda hafi hún
hlotið fylgi 3/4 hluta þingmanna.
Þjóðaratkvæðagreiðslan skal þá
fara fram innan tveggja mánaða,
frá því að krafan um hana var sam-
þykkt á Alþingi.“ Af þessum orðum
má ráða, að einfaldur meirihluti at-
kvæða við þjóðaratkvæðagreiðslu
dugir til að ráða málinu til lykta,
enda þótt aukinn meirihluta Al-
þingis þurfi til að vísa málinu til
þjóðarinnar. Af orðunum „innan
tveggja mánaða“ má einnig leiða
líkur að því, hvað vakti fyrir höf-
undum stjórnarskrárinnar með
orðalaginu „svo fljótt sem kostur
er“ í 26. gr. um þjóðaratkvæða-
greiðslur um þau mál, sem forset-
inn kýs að skjóta til þjóðarinnar.
Einfaldur meirihluti atkvæða
hlýtur því að fá að ráða lyktum
fjölmiðlafrumvarpsins í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni í sumar.
Ákvæði nýrra laga til að skerða
rétt meirihlutans til að ráða niður-
stöðu málsins virðast mundu
brjóta í bága við stjórnarskrána.
Er ekki komið nóg? ■
S ú var tíð að það þótti nánast ókurteisi að mynda ríkisstjórnhér á landi án þess að leita fyrst álits ritstjóra Morgunblaðs-ins. Voru ritstjórarnir á tímabili orðnir svo heimaríkir á
þeim vettvangi að þeir settu ofan í við forseta Íslands léki hann
ekki að kosningum loknum menúett að þeirra skapi. Var þó forset-
inn á þeim tíma næstum því Guð almáttugur í huga fólks. Og rit-
stjórarnir vildu oft ráða því hverjir sætu í ríkisstjórnum eins og
af eru frægar sögur.
Því miður eru þessir skemmtilegu tímar að baki. Í hálfan ann-
an áratug hefur varla verið búið að telja upp úr kjörkössunum
áður en Davíð Oddsson er kominn í kjól og hvítt og farinn að
draga ráðherra upp úr pípuhattinum sínum – án þess að spyrja
kóng eða prest, hvað þá ritstjóra úti í bæ.
Enn má þó treysta því að ritstjórar Morgunblaðsins – eða nú
orðið ritstjórinn – séu öðrum mönnum flinkari við að lesa hug
stjórnarherranna hverju sinni og miðla til lesenda – ef ekki ber-
um orðum þá á milli línanna. Í því efni og ýmsu öðru minnir
Morgunblaðið um sumt á hið virðulega rússneska stórblað Pravda
á tíma Sovétríkjanna sálugu. Á síðum þess blaðs var ekkert
„stríðsletur“ að finna, jafnvel þótt stríð væri, og leiðtogarnir
þurftu aldrei að spyrja í hugaræsingi umkringdir fréttamönnum:
„Hefurðu ekki séð stríðsfyrirsagnirnar, hefurðu ekki séð árásirn-
ar, hefurðu ekki séð gauraganginn?“.
Vanir lesendur Stjórnartíðinda – afsakið, Morgunblaðsins –
gátu spáð fyrir um fjölmiðlalögin ólánlegu löngu áður en fjöl-
miðlanefndin hafði komist að niðurstöðu. Og nú þykjast sumir
þeirra geta lesið á milli línanna í blaðinu að þótt ríkisstjórnin sé
búin að tapa einu stríði við þjóðina sé hún þegar farin að búa sig
undir aðra stórorrustu.
Í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins á sunnudaginn var að finna
vangaveltur um væntanlega löggjöf „til þess að skapa eðlilegan
starfsramma utan um umsvif stóru viðskiptasamsteypanna“, eins
og það var orðað. Spádómsorðin voru þessi: „Líklegt má telja að
átökin um fjölmiðlalögin verði barnaleikur í samanburði við þau
átök sem fram undan kunna að vera um þetta mál“.
Fjölmiðlalögin barnaleikur í samanburði við átökin fram und-
an? Hvað er maðurinn að fara?
Getur verið að ritstjóranum sé alvara? Eða er veruleikafirring-
in í hinum þrönga hópi handgenginna orðin algjör? Væri ekki við
hæfi að við fengjum meira að heyra áður en lengra er haldið?
Væri til dæmis ekki þjóðráð að byrja á því að leiða okkur í sann-
inn um hvaða vandamál það eru sem „stóru viðskiptasamsteyp-
urnar“ hafa skapað og hver „lausnin“ geti þá verið? ■
24. júní 2004 FIMMTUDAGUR
SJÓNARMIÐ
GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Ritstjóri Morgunblaðsins segir átökin um
fjölmiðlalögin barnaleik í samanburði við átök
sem fram undan séu.
Nýtt stríð í
undirbúningi?
Lýðræði í skjóli laga
ORÐRÉTT
Má hún ekki kjósa?
Sá sem kastaði stríðshanskan-
um var enginn annar en Ólafur
Ragnar Grímsson. Með því að
neita að staðfesta lögin gekk
hann gegn rétti mínum, kosn-
ingaréttinum. Sem ríkisborgari í
lýðræðislegu þjóðfélagi tel ég
þetta mitt mikilvægasta verk-
færi til að hafa áhrif. Ég hafna
slíkri lítilsvirðingu við kosninga-
rétt minn.
Þórunn Jóna Hauksdóttir skrifar um
neitun forsetans og þjóðaratkvæða-
greiðslu og lítur ekki svo á að henni
hafi verið færður réttur til að kjósa.
Morgunblaðið 23. júní.
Evrópusambandið til bjargar
Raunar eru það ekki bara mál
neytenda, sem sitja á hakanum
hjá núverandi ríkisstjórn. Al-
mennt hefur hún lítinn áhuga á
hagsmunum smælingja. Hún
sveltir sjúkrahús og skóla. Hún
reynir að brjóta niður velferðar-
kerfið og búa til kerfi þar sem
menn greiða sjálfir sem mest
fyrir opinbera þjónustu [...] Gegn
þessari hugmyndafræði er lítið
um varnir nema helzt frá reglu-
gerðum Evrópusambandsins,
sem íslenzk stjórnvöld neyðast
til að láta þýða á íslenzku vegna
skuldbindinga sinna á vegum
Evrópska efnahagssvæðisins. Í
þessum reglum er oft mikil vel-
ferðarhugsun, margvísleg vernd-
un smælingja.
Jónas Kristjánsson
DV 23. júní.
Varnar- eða atvinnuhagsmunir?
Það þarf ekki að fjölyrða um
hagsmuni okkar Íslendinga í
varnar- og öryggismálum. Stefna
okkar um að tryggja varnir
landsins í tvíhliða samstarfi við
Bandaríkin innan vébanda
NATO breytist ekki.
Einar Benediktsson
Morgunblaðið 23. júní
FRÁ DEGI TIL DAGS
Getur verið að ritstjóranum sé alvara? Eða er
veruleikafirringin í hinum þrönga hópi handgeng-
inna orðin algjör? Væri ekki við hæfi að við fengjum
meira að heyra áður en lengra er haldið? Væri til dæmis
ekki þjóðráð að byrja á því að leiða okkur í sannleikann
um hvaða vandamál það eru sem „stóru viðskiptasam-
steypurnar“ hafa skapað og hver „lausnin“ geti þá verið?
,,
Í DAG
ÞJÓÐARATKVÆÐA-
GREIÐSLA UM FJÖL-
MIÐLAFRUMVARP
ÞORVALDUR
GYLFASON
Engar hömlur má
leggja á kosninguna,
svo sem kröfu um aukinn
meirihluta atkvæða, heldur
verður einfaldur meirihluti
kjósenda að fá að ráða lykt-
um málsins svo sem tíðkast
um forsetakjör og aðrar
þjóðaratkvæðagreiðslur á
Íslandi til þessa.
,,
ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Gunnar Smári Egilsson FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson RITSTJÓRNARFULLTRÚAR: Steinunn Stefánsdóttir og Jón Kaldal
AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 515 75 06
NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift
ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar, 1.100 krónur á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
degitildags@frettabladid.is