Fréttablaðið - 30.06.2004, Side 1
● íbv sigraði í eyjum og árbæ
Landsbankadeildirnar:
▲
SÍÐA 25
Tveir sigrar hjá
ÍBV
● útlitið slæmt og allt í rugli
Hróarskelda:
▲
SÍÐA 28
Brjálað veður og
Bowie afboðar
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
MIÐVIKUDAGUR
STÓRMÓT Á AKUREYRI Essó-mót-
ið í fótbolta hefst á Akureyri í dag. Reikn-
að er með að allt að fimmtán þúsund
manns komi til Akureyrar vegna mótsins.
Um það bil 1.400 drengir á aldrinum 11-
12 ára í 130 liðum taka þátt í mótinu
sem lýkur á laugardaginn.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
RIGNING EÐA SKÚRIR Þannig verður það
víða í dag, sýnu mest á austur- og suðaust-
urlandi. Hægt kólnandi veður. Sjá síðu 6.
30. júní 2004 – 176. tölublað – 4. árgangur
GEIR VINSÆLASTUR Sjötíu prósent
þeirra sem afstöðu tóku vilja sjá Geir Haar-
de sem formann Sjálfstæðisflokksins ef
Davíð Oddsson lætur af störfum. Sjá síðu 4
ÓPRÚTTNIR SKULDARAR Fjöldi
manns leikur þann leik að gegna ekki boð-
un sýslumannsembættisins í Reykjavík,
þannig að ekki er hægt að ná til þeirra til
að gera fjárnám hjá þeim. Sjá síðu 2.
MEINATÆKNAR REKNIR Sex af sjö
meinatæknum sem vinna við blóðrann-
sóknir á heilsugæslustöðvum á höfuðborg-
arsvæðinu hefur verið sagt upp störfum.
Sjá síðu 2
VILJA ENGAR TAKMARKANIR
Þjóðarhreyfingin telur ólýðræðislegt að
setja takmarkanir um þjóðaratkvæða-
greiðslu. Atkvæðagreiðslan er prófsteinn á
vilja þjóðarinnar um hvort viðhalda eigi
málskotsrétti. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 34
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 22
Sjónvarp 36
Eggert Kaaber:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Gerði kjarakaup
í hjóli
● fjármál
Þórey Edda Elísdóttir:
▲
SÍÐA 20
Æfir fyrir ólympíu-
leikana alla daga
● 27 ára í dag
TÓNLISTARHÁTIÐ Forsvarsmenn
MTV-sjónvarpsstöðvarinnar tóku
vel í hugmyndir kynningarhóps
um að halda tónlistarverðlaun
stöðvarinnar hér á landi eftir tvö
ár, á fundi sem fram fór í gær.
Að sögn Ingvars Sverrissonar
sem stendur meðal annarra að út-
boðinu ætlar MTV að senda lið
hingað til lands eftir mánuð til að
kanna aðstæður. „Þeir voru mjög
jákvæðir og vilja halda hátíðina
hér ef við uppfyllum sett skil-
yrði. Þetta yrði langstærsti við-
burður sem haldinn hefur verið
hér á landi,“ segir Ingvar. Hann
segir að mikið hafi verið lagt í að
sannfæra yfirmenn MTV um að
þetta væri hægt, til dæmis hefði
um átta til tíu milljónum króna
verið varið í undirbúning kynn-
ingarfundsins. Ingvar segir að
auglýsingagildið sé metið á ann-
an milljarð. Þá á eftir að taka með
í reikninginn aðra innkomu, til
dæmis af skatttekjum og neyslu,
„sem verður gríðarleg“.
Tveir staðir koma til greina að
hýsa hátíðina, Laugardalshöll og
Egilshöll, og yrðu þær báðar not-
aðar. Þá þarf einnig að leysa önnur
mál, til dæmis megi gera ráð fyrir
að um fjögur til fimm þúsund hót-
elpláss þyrfti til að hýsa allan
þann mannskap sem hingað kæmi,
en hótelpláss eru um tvöþúsund í
Reykjavík núna. Ingvar segir
einnig að auka þyrfti framboð á
fimm stjörnu hótelum. „Við þyrft-
um sennilega að leigja eitt eða tvö
skemmtiferðaskip og koma þeim
fyrir í Reykjavíkurhöfn til að
leysa það,“ segir Ingvar.
MTV-tónlistarhátíðin er haldin
í Róm í ár. ■
UTANRÍKISMÁL „Það kom ekkert
fram um íslensk varnarmál á
fundinum, þau voru rædd á göng-
um og í tveggja manna tali,“ segir
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra um fund aðildarríkja Atl-
antshafsbandalagsins í Tyrklandi
sem lauk í gær.
Staðan í varnarmálum milli
Bandaríkjanna og Íslands er því
óbreytt. Bæði Halldór og Davíð
Oddsson forsætisráðherra hafa
rætt við Jaap de Hoop Scheffer,
framkvæmdastjóra NATO, um
þessi mál en ekkert frekar hafi
komið úr þeim viðræðum. Þeir
hafi fylgt eftir þeim samtölum
sem þeir áttu við hann þegar hann
kom til Íslands fyrir skömmu. Þá
sagði framkvæmdastjórinn að
hann væri reiðubúinn að aðstoða
við samningaviðræður en NATO
gæti ekki fyllt skarð bandaríska
hersins, þetta væri mál sem
Bandaríkin og Ísland yrðu að
leysa sín á milli. Davíð Oddsson
átti fund með George W. Bush,
forseta Bandaríkjanna, en Halldór
vildi ekki tjá sig um hvað þeim
hafi farið á milli. „Davíð verður að
greina frá því.“
Halldór segir stöðu öryggis-
mála gjörbreytta frá því að Atl-
antshafsbandalagið var stofnað.
„Friðargæsluhlutverk NATO hef-
ur stóraukist og sem dæmi eru Ís-
lendingar farnir að taka mikinn og
virkan þátt í því starfi, til dæmis
með flugumferðarstjórn í Kosovo
og umsjón með flugvellinum í
Kabúl. Þetta hefði verið óhugs-
andi fyrir nokkrum árum.“
Íslenskir friðargæsluliðar sem
starfa innan vébanda NATO fá
stöðu hermanna og hljóta þjálfun
sem slíkir. Halldór segir þó að það
sé „út í hött“ að ætla að þetta sé
skref í átt til hervæðingar Íslands.
„Það að vinna að friði og stuðla að
uppbyggingu annarra þjóða er
ekki að hervæðast. Það þarf að
hafa í huga að það er alltaf ein-
hver hætta á ferðum og menn
verða að geta varið sig og læra
þess vegna sjálfsvörn en það er af
og frá að íslendingar séu að her-
væðast.“
bergsteinn@frettabladid.is
Enn óvissa í varnar-
málum Íslendinga
Halldór Ásgrímsson segir að staða varnarliðsins á Miðnesheiði hafi ekki breyst á fundi aðildarríkja
NATO. Ísland tekur sífellt aukinn þátt í öryggisstarfi NATO en er ekki að hervæðast, segir ráðherra.
TÁKNRÆNN ÓLYMPÍUELDUR Leiðtogi Palestínumanna, Yasser Arafat, kveikir í bálkesti með kyndli til þess að hafa táknrænan ólymp-
íueld í höfuðstöðvum sínum í Ramallah á Vesturbakka Jórdanar. Arafat hefur óskað eftir vopnahléi við Ísraela meðan á ólympíuleikunum
í Aþenu stendur, frá 13. til 29. ágúst.
Mumbai:
Hlébarðar
hræða íbúa
INDLAND, AP Yfirvöld í Mumbai á
Indlandi hafa skorið upp herör gegn
mannskæðum hlébörðum sem und-
anfarnar vikur hafa ráðist á fólk í
borginni. Það sem af er þessu ári
hafa þeir orðið rúmlega 30 manns
að bana og í júní drápu þeir tólf.
Flestar árásirnar hafa verið í út-
hverfum borgarinnar, sem er í
námunda við Sanjay Gandhi-þjóð-
garðinn. Í garðinum ganga um 30
hlébarðar lausir og fram til þessa
hafa þeir verið taldir meinlausir.
Þjóðgarðsverðir segja hins vegar að
um 200 þúsund íbúar hafi sest ólög-
lega að í og við garðinn. Hlébarð-
arnir ráðist á fólkið á næturna á
svæði þar sem þeir hafa um árabil
veitt sér villisvín í matinn. ■
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Ekkert frekar kom fram um íslensk varnarmál
í viðræðum við framkvæmdastjóra NATO.
MTV-sjónvarpsstöðin:
Vill halda tónlistarhátíð á Íslandi