Fréttablaðið - 30.06.2004, Page 23
Reyndu að spara með því að selja bílinn og
taka strætó. Þannig losnarðu við að finna
stæði og færð góða hreyfingu í leiðinni.
Góð ráð
INGÓLFUR HRAFNKELL INGÓLFSSON
SKRIFAR UM FJÁRFESTINGAR FYRIR
SPARNAÐ.
Sparnaður og fjárfestingar
Í síðasta pistli fjallaði ég um þrjár
ástæður fyrir sparnaði. Sparnaður er
í sjálfu sér eitt form fjárfestingar. En
hvernig nota má sparnað til þess að
auka við tekjur og eignir? Fyrir þá
sem ekki eru fæddir með silfurskeið
í munni eða komast á toppinn í at-
vinnulífinu er sparnaður eina leiðin
til þess að eignast meiri peninga en
maður fær fyrir brauðstritið. Í megin-
atriðum er hægt að fjárfesta með
tvennum hætti: í fasteignum og í
peningalegum eignum. Með fast-
eignum er ekki átt við húsnæði sem
við búum í heldur einhverja þá fast-
eign sem gefur af sér arð eða meiri
peninga heldur en hún kostar okkur.
Það er hins vegar ekki mjög fýsilegur
kostur að kaupa fasteignir í dag á
uppsprengdu verði svo við bíðum í
tvö til þrjú ár með slíkar hugleiðing-
ar og snúum okkur í þess stað að
peningalegum fjárfestingunum. Þar
er átt við kaup á verðbréfum.
Flestir eru líklega þeirrar skoðun-
ar að það sé bæði flókið og áhættu-
samt en svo er ekki. Það er hægt að
velja sér fjárfestingaform sem hentar
hverjum og einum. Þeir sem kjósa
öryggið kaupa hlutdeild í ríkistryggð-
um verðbréfasjóðum og hinir kaupa
hlutabréf í sjóðum eða einstökum
fyrirtækjum allt eftir því hvaða áhæt-
tu þeir eru tilbúnir að taka og ávöxt-
unarkröfu þeir gera. Það þarf hins
vegar að gefa sér örlítinn tíma til
þess að skoða þá kosti sem bankar
og verðbréfasjóðir bjóða upp á.
Ég mæli því með að allir sem
ætla að nota sparnað í fjárfestingar
gefi sér hálftíma á dag til þess að
hugsa um hann. Minna má það ekki
vera eftir að hafa stritað átta eða
jafnvel 12 tíma yfir daginn við að
afla peninganna. Eitt verða menn að
hafa í huga þegar sparnaður er ann-
ars vegar. Það er ekki upphæðin
sem skiptir meginmáli heldur ávöxt-
unin og tíminn sem sparað er. Í
sparnaði er þolinmæði dyggð og ein
af tveim meginástæðum þess að
sparnaður tekst ekki, er að maður
ætlar sér að spara of háa upphæð of
fljótt og springur á limminu. Í sparn-
aði vinnur tíminn með manni og er
eitt af því sem gerir það skemmtilegt
að eldast.
Kær kveðja,
Ingólfur Hrafnkell
Stokkaðu upp fjármálin
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfestingar-
bankanum, sem er kjörið til að skuldbreyta óhagstæðum lánum á borð við
skammtímabankalán. Þannig lækkarðu greiðslubyrðina hjá þér og eykur
fjárhagslegt svigrúm. Lánið er veitt til allt að 40 ára gegn veði í fasteign.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla
13A, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
www.frjalsi. is
– með hagstæðu fasteignaláni
H
im
in
n
o
g
h
a
f/
90
40
12
4
Vextir % 5,40% 5,95% 6,50% 7,50%
30 ár 5.610 5.960 6.320 6.990
40 ár 5.090 5.470 5.850 6.580
2 4.500 4.960 5.420 6.250Afborgunar-laust *
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði
af 1.000.000 kr.*
50% afsláttur aflántökugjalditil 1. júlí
Viltu leita ráða hjá Ingólfi? Sendu spurningar á fjarmal@frettabladid.is
Jóhanna Jónas fjár-
festi í sjálfri sér fyrir
átján árum og hefur
aldrei iðrast þess.
„Besta fjárfestingin
sem ég hef gert var
leiklistarnámið sem ég
fór í til Bandaríkjanna.
Skólinn hét School for
the Arts at Boston Uni-
versity og það var
blómsturupplifun að
vera í þessum skóla í
fjögur ár. Námið um-
breytti mér bókstaf-
lega og það myndaðist
alveg splunkuný
manneskja. Skóla-
gjöldin voru svakalega
há en ég fékk styrk frá
skólanum og tók svo
námslán sem ég er enn
að borga og verð alla
ævi. En ég borga af
þeim með glöðu geði
því þessi menntun er
mér svo dýrmæt. Ég
fékk alls konar
skemmtilega vinnu í
framhaldi af náminu,
lék í sápuóperu í Am-
eríku og á sviði í New
York og Los Angeles
og svo hef ég fengið
fjöldann allan af
spennandi verkefnum
hér á Íslandi eftir að
ég kom heim. Ég er til
dæmis núna að leika í
söngleiknum Á frama-
braut en skólinn þar er
ekki ólíkur skólanum
sem ég fór í. Ég leik
skólastýruna svo það
er hægt að segja að ég
sé komin í hring á viss-
an hátt. Fjárfestingin
hefur ekki bara skilað
sér í veraldlegum hlut-
um heldur í ótrúlegum
þroska og lífsreynslu,
því dýrmætasta sem
ég á.“ ■
Verð á hráolíu lækkaði í
fyrradag og hefur því
ekki verið lægra í tvo
mánuði. Ástæðu þessarar
lækkunar má væntanlega
rekja til aukins útflutn-
ings á olíu frá Írak og
Noregi. Verkfall norskra
olíuverkamanna lauk á
föstudaginn og á laugar-
daginn var lokið við við-
gerð á olíuleiðslu í Írak
sem hafði orðið fyrir
s k e m m d a r v e r k u m .
Einnig bar það til tíðinda
að Írak endurheimti full-
veldi sitt í fyrradag eftir
fimmtán mánaða hernám
og hefur því útflutningur
um Persaflóann hafist að
nýju.
Á fundi sem haldinn
var í Beirút 3. júní ákváðu
OPEC-ríkin að auka olíu-
framboð sitt um tvær millj-
ónir tunna á dag strax 1.
júlí. Þá fer framboðið úr
23,3 milljónum tunna í 25,5
milljónir tunna og eykst
framboðið aftur um 500
þúsund tunnur á dag í
ágúst. Einnig kom fram á
þessum fundi að samtökin
framleiddu meiri olíu til að
lækka verð en verð á olíu
lækkaði um 3,7 prósent í
seinustu viku sem er mesta
lækkunin á einni viku í þrjá
mánuði. Olíuverð hefur
lækkað um þrettán prósent
frá 1. júní en þá var það í
hámarki. Nú er olíuútflutn-
ingur frá Noregi kominn í
eðlilegt horf og OPEC ríkin
auka framboð sitt þannig
að búist er við því að fram-
boð á olíu sé nægilegt til að
mæta vaxandi eftirspurn. ■
■ Verðlag á veitingastöðum er mis-
jafnt en kvöldverður fyrir fjölskyld-
una án víns kostar á bilinu 3000
til 6000 krónur.
■ Aðgangseyrir í sundlaugar- eða
ævintýragarða 8000 til 12.000
krónur fyrir alla fjölskylduna.
■ Leiga á sólbekk á ströndinni kostar
250 til 500 krónur.
■ Leiga á hjólabát fyrir fjóra í klukku-
tíma kostar 1000 krónur en jet-ski
í fimmtán mínútur fyrir tvo kostar
4000 krónur.
■ Skipulagðar dagsferðir á vegum
ferðaskrifstofu kosta mismikið eftir
því hvort máltíðir eru innifaldar
eða ekki. Meðalverð á slíkum ferð-
um er 2000–5000 krónur á mann.
■ Bílaleigubíll hjá spænskri bílaleigu
kostar 3000 til 6000 þúsund
krónur á dag.
■ Ís í sjoppu eða sjálfsala kostar 100
til 200 krónur en í ísbúð 400 til
700 krónur.
■ Verð á bjór er háð því hvar verslað
er, stór bjór á bar kostar 300 til
500 krónur en í matvöruverslun
kostar flöskubjór 150 til 250 krón-
ur.
■ Kaffi eða gos kostar 120 til 200
krónur.
■ Það er því varlegt að gera ráð fyrir
100.000 krónum að algeru lág-
marki í eyðslueyri fyrir fjölskylduna
í viku og líklega er 150.000 nær
raunveruleikanum.
Spánn er vinsæll frístaður
fyrir Íslendinga og á undan-
förnum árum hafa fluggjöld
þangað sem og til annarra
vinsælla áfangastaða lækk-
að til muna í verði. En þótt
hægt sé að krækja í ódýrar
pakkaferðir til Spánar kost-
ar dvölin þar sitt. Hjón sem
ferðast með tvö börn og
búa á hóteli á Spáni í viku
þurfa að eiga fyrir ýmsu.
Hvað kostar að vera í útlöndum með tvö börn?
Gera verður ráð fyrir eyðslueyri
Ekki er allt fengið með því
að fá ódýra ferð á sólar-
strönd, dvölin kostar sitt.
Verð á hráolíu lækkar:
Aukinn útflutningur frá Írak og Noregi
Olíuverð hefur lækkað um þrettán prósent frá 1. júní
en þá var það í algjöru hámarki.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Jóhanna Jónas
fjárfesti í sjálfri
sér þegar hún fór
í leiklistarnám til
Bandaríkjanna.FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Besta fjárfestingin:
Blómsturupplifun
í leiklistarskóla í
Bandaríkjunum