Fréttablaðið - 17.07.2004, Side 8
8 17. júlí 2004 LAUGARDAGUR
Starfsmenn við Kárahnjúka kvarta yfir matnum:
Einhæfur og vondur
KÁRAHNJÚKAR „Það er rétt að
sífellt fleiri kvarta yfir matnum
í aðalbúðum en það virðist ekki
hafa neitt að segja,“ segir Oddur
Friðriksson, yfirtrúnaðarmaður
starfsmanna við Kárahnjúka.
Hafa allnokkrir haft samband
við Fréttablaðið vegna þessa og
segja það fæði sem boðið sé upp
á fyrir neðan allar hellur. Undir-
verktaki Impregilo, Universal
Sodexho, sér um alla matreiðslu
í búðum starfsmanna sam-
kvæmt sérstökum samningi þar
um.
Oddur segir að við þau erfiðu
störf sem unnin eru við fram-
kvæmd Kárahnjúkastíflu og það
hversu lítið annað er við að hafa
sé það algjört lágmark að
þreyttir starfsmenn gangi að
því vísu að fá góðan og næring-
arríkan mat hvern dag. „Það er
erfitt að benda á eitthvert eitt
atriði. Menn tala um vondan mat
og einhæfan. Það sama er alltaf
í boði og það er ákaflega auðvelt
að fá nóg af slíku þegar menn
puða hér mánuð eftir mánuð. ■
KÁRAHNJÚKAVIRKJUN Útlit er fyrir
að Landsvirkjun þurfi að kalla
eftir að land verði tekið eignar-
námi á allt að fimm jörðum vegna
línustæðis fyrir háspennulínur úr
Fljótsdal yfir í
R e y ð a r f j ö r ð
sem flytja eiga
strauminn úr
K á r a h n j ú k a -
virkjun. Línu-
stæðið fer um
20 jarðir og búið
að semja við um
við um 15 land-
eigendur.
Albert Guð-
mundsson, verk-
f r æ ð i n g u r
Landsvirkjunar,
sem hefur yfir-
umsjón með
lagningu lín-
anna yfir í
R e y ð a r f j ö r ð ,
segist búast við
að farið verði fram á eignarnám
síðar í mánuðinum. „Þá fer í gang
ákveðið ferli þar sem Matsnefnd
eignarnámsbóta tekur málið fyr-
ir,“ segir Albert, en bætir við að
ekki liggi ljóst fyrir hvað greiða
þurfi fyrir landið. „Við höfum ver-
ið að greiða frá 90 til 200 þúsund
krónum fyrir hvern hektara,“
sagði hann og bætti við að í þeim
greiðslum væri stuðst við fyrri
úrskurði matsnefndarinnar.
Háspennulínurnar verða lagð-
ar um 50 kílómetra leið, úr Fljóts-
dal yfir í Reyðarfjörð, á um 125
metra breiðu belti. „Af öryggisá-
stæðum verðum við að hafa lín-
una tvöfalda, því álverið í Reyðar-
firði má aldrei verða rafmagns-
laust,“ sagði Albert. Töluvert fer
fyrir mannvirkjunum í um-
hverfinu því í línunum verða sam-
tals 330 turnar, hver 20–35 metrar
á hæð.
Línurnar liggja frá tengivirki í
Fljótsdal yfir Hallormsstaðarháls
inn í Skriðdal en þar er línunum
skipt upp þannig að önnur fer um
Hallsteinsdal og hin um Þórudal á
leið sinni inn að Reyðarfirði.
„Þetta er gert til að draga úr hætt-
unni á að snjóflóð raski orkuflutn-
ingnum, en töluverð snjóflóða-
hætta er í hvorum dal.“ Albert
segir línurnar svo koma aftur
saman inn í Áreyjardal og liggi
svo samsíða inn að álveri Fjarða-
áls í Reyðarfirði.
Heildarkostnaður við lagn-
ingu línanna, með tengingum og
tengivirkjum, er ætlaður á bil-
inu 8–9 milljarðar, en það er um
10 prósent af heildarkostnaði
við Kárahnjúkavirkjun. Sam-
kvæmt áætlun verður búið að
koma upp háspennulínunum í
árslok 2006.
olikr@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Heimdallur, félag
ungra sjálfstæðismanna í Reykja-
vík, hvetur þingheim til að lækka
skatta á sumarþinginu. Í ályktun
frá félaginu segir að þingstörfin
séu róleg, enda aðeins tvö mál á
dagskrá og því sé ekkert til fyrir-
stöðu að frumvarp um skatta-
lækkanir verði lagt fram í sumar.
Telur félagið það gott að taka
ákvarðanir um skattalækkanir
áður en fjárlagaumræðan hefst í
haust.
Jafnframt telur stjórn
Heimdalls að aukið aðhald hins
opinbera sé nauðsynlegt og að
fjöldi opinberra stofnanna sé
óheyrilegur miðað við ýmis
nágrannalönd. ■
SVONA ERUM VIÐ
FJÖLDI NEMENDA Á HVERN
GRUNNSKÓLAKENNARA
TILBÚNIR OG ELDAÐIR KJÚKLINGARÉTTIR
Kjúklingur sem framleiddur er undir vörumerkinu Eldfugl
hefur verið eldaður og er tilbúinn til notkunar.
Eldfugl í magnpokum fæst með Hunangssósu,
Hvítlaukssósu og Buffalósósu.
Reykjagarður hf
Eldfugl - Tilbúinn á grillið
Höfuðlaust lík
finnst í Írak:
Líklega
Búlgari
ÍRAK Höfuðlaust lík var dregið úr ánni
Tígris í norðurhluta Írak og er talið
líklegt að það sé af öðrum af tveimur
búlgörskum flutningabílstjórum sem
eru í haldi ofsatrúarmanna. Verður
framkvæmd DNA-rannsókn hið
fyrsta til að fá úr því skorið hvor
þeirra það sé. Sjónvarpsstöðin al
Jazeera tilkynnti í vikunni að hún
væri með upptöku af afhausun
annars Búlgarans sem send hefði
verið. Lögreglustjóri í Mosul vildi
hins vegar meina að mennirnir væru
báðir á lífi samkvæmt heimildum
lögreglu. ■
Ítalska lögreglan:
Vakta
tökustað
SIKILEY Ítalska lögreglan vaktar úr
launsátri tökustað nýjustu kvik-
myndar George Clooney, Ocean’s
Twelve, á Sikiley að því er fram
kemur á fréttavef BBC.
Við eftirgrennslan lögreglu kom
í ljós að meintir liðsmenn mafíunn-
ar höfðu sést sniglast í kringum
tökustað. Ekki er nákvæmlega vit-
að hvað fyrir þeim vakti en talið er
að þeir hafi viljað múta kvikmynda-
gerðarmönnunum eða eigi falin
vopn nærri tökustað. ■
MATSALUR AÐALBÚÐA IMPREGILO
Fjöldi starfsmanna fyrirtækisins hefur
kvartað yfir matnum sem framreiddur er
þar og þykir ekki spennandi.
Heimdallur ályktar:
Skattalækkanir
á sumarþingi
GEIR H. HAARDE
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
Heimdallur telur gott að taka ákvarðanir
um skattalækkanir áður en fjárlaga-
umræðan hefst í haust.
Eignarnám lands
undir háspennulínu
Ekki hafa náðst samningar við alla landeigendur á leið háspennulínu frá Kárahnjúkavirkjun yfir í
álver Fjarðaáls í Reyðarfirði. Útlit er fyrir að Landsvirkjun fari fram á að land verði tekið eignarnámi.
HALLORMSSTAÐARHÁLS
Nýtt línustæði Fljótsdalslína 3 og 4 verður vinstra megin við byggðalínuna sem sjá má liggja upp og yfir Hallormsstaðarháls.
Turnarnir verða með V-lagi, 20 til 35 metra háir. Til samanburðar má nefna að línan sem nú liggur yfir hálsinn er um 15 metra há.
11,4
n
e
m
e
n
d
u
r
n
e
m
e
n
d
u
r
n
e
m
e
n
d
u
r
11,3
10,2
1998 2000 2003
Heimild: Hagstofa Íslands
ALBERT
GUÐMUNDSSON
Albert hefur umsjón
með lagningu Fljóts-
dalslína 3 og 4, en
þær flytja orku frá
Kárahnjúkavirkjun frá
tengivirki í Fljótsdal,
rétt innan Lagarfljóts,
yfir í álver Fjarðaáls í
Reyðarfirði.