Fréttablaðið - 17.07.2004, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 17. júlí 2004
Með GSM símum*
í sumar fylgir:
3.000 kr.
SMS inneign**
3.000 kr.
inneign í Retro
Eingöngu fyrir kort frá Símanum.
Motorola C200
6.980 kr.
800 7000 - siminn.is
með Símanum í sumar
Ótrúlega
gaman
* Gildir eingöngu fyrir GSM kort frá Símanum. ** 500 kr. á mánuði í 6 mánuði innan kerfis Símans, inneign flyst ekki á milli mánaða.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
1
2
9
2
6
Ótrúlegt verð
50% afsláttur
af pólýtónum
um helgar í sumar
Um helgar í sumar færðu nýja pólýtóna
með 50% afslætti á siminn.is. Þú getur
líka skráð þig í „pólýtónaþema“ með því
að senda skeytið TT TEMA POLYNYTT í
1848. Þá færðu senda til þín tvo nýja og
flotta pólýtóna á viku. Hver tónn kostar
79 kr. Fáðu nánari upplýsingar á siminn.is.
„Ég byrjaði að mála fyrir ári síðan
eftir að pabbi minn dó. Fór út og
keypti striga og liti. Ég vildi mála
himininn. Mánuðina fyrir jól tók
ég svo sjúklega rispu. Svo gat ég
ekki hætt, seldi strax milli 25 og
30 myndir í kringum jólin í fyrra,“
segir myndlistarkonan Ragnheið-
ur Georgsdóttir sem opnar sína
fyrstu málverkasýningu á Thor-
valdsen 24. júlí.
„Líklega var ég að ganga í
gegnum eitthvert sorgarferli. Ég
vildi gera himininn fallegan til að
geta ímyndað mér framhaldið, að
pabbi minn væri á fallegum stað,
svo á ég lítinn frænda sem er líka
þarna uppi. Við verðum að gera
himininn eins fallegan og mögu-
legt er. Ég ætla ekki að hætta fyrr
en ég er orðin ánægð með hann,“
segir Ragnheiður.
Ragnheiður segir hlutverk
myndlistarinnar að láta fólki líða
vel og því sé hún oft ekki hrifin af
nútímalist. Hún vill að fólki líði
vel þegar það horfir á myndirnar
hennar. Vestmannaeyingurinn
Ragnheiður segir að yfir myndun-
um hennar sé ákveðinn eyjafíling-
ur sem hún skilgreini sem heim-
þrá. Myndir Ragnheiðar eru olía á
striga.
Ragnheiður segist ekki hafa
málað í fjóra mánuði eftir að hafa
selt myndirnar sem hún málaði
fyrir jólin en hafi ákveðið að
halda sýninguna sökum þrýstings
frá fólki í kringum sig.
Sýningin mun standa yfir í einn
mánuð. ■
Fyrsta málverkasýning Ragnheiðar Georgsdóttur:
Vill fullkomna himininn
RAGNHEIÐUR GEORGSDÓTTIR
Í bakaríinu Suðurveri þar sem hún hefur unnið síðastliðin átta ár með hléum.