Fréttablaðið - 28.07.2004, Blaðsíða 1
● laus undan samningi við betis
Jóhannes Karl Guðjónsson:
▲
SÍÐA 20
Spilaði með
Leeds í gær
● fyrir túrista
Hugleikur Dagsson:
▲
SÍÐA 30
Myndasögubók
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
MIÐVIKUDAGUR
KA SÆKIR EYJAMENN HEIM Á
Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum fer leikur
heimamanna í ÍBV og KA frá Akureyri
fram í kvöld klukkan 19.15. Fyrir marga er
hann ágætis upphitunarleikur fyrir þjóð-
hátíð sem hefst á morgun. ÍBV er í þriðja
sæti deildarinnar með 18 stig og KA í því
níunda með 11 stig.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
RIGNING AÐ KOMA Þungbúið og fer
að rigna eftir hádegi um sunnan- og vestan-
vert landið. Bjart norðaustan til en þykknar
upp þar í kvöld. Sjá síðu 6
28. júlí 2004 – 204. tölublað – 4. árgangur
FJÖLMIÐLALÖG-
IN ÚR GILDI Ólaf-
ur Ragnar Grímsson
forseti hefur sam-
þykkt lögin sem fella
fjölmiðlagildin frá í
vor úr gildi. Hann
segist hafa gert það
til að sem mest sátt
mætti nást í þjóðfé-
laginu. Sjá síðu 2
SEX TÍMA Í YFIRHEYRSLU Jón Ger-
ald Sullenberger mætti til yfirheyrslu hjá
lögreglunni vegna rannsóknar á stjórn-
endum Baugs. Yfirheyrslan stóð yfir í sex
tíma áður en henni var frestað til dagsins
í dag. Sjá síðu 2
RÆÐA REFSIAÐGERÐIR Bandaríkja-
menn beita sér fyrir því að Sameinuðu
þjóðirnar samþykki ályktun sem heimilar
refsiaðgerðir gegn súdönskum stjórnvöld-
um linni ofsóknum í Darfur ekki. Súdönsk
stjórnvöld eru uggandi. Sjá síðu 4
METHAGNAÐUR ÍSLANDSBANKA
Hagnaður Íslandsbanka á síðasta ársfjórð-
ungi nam rúmum tveimur milljörðum króna.
Afkoma bankans er betri en greiningardeild-
irnar höfðu gert ráð fyrir. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 20
Sjónvarp 28
Bryndís Ásmundsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Á eyðsluflippi hjá
Sævari Karli
● fjármál
Birgitta Haukdal:
▲
SÍÐA 18
Hvílir sig fyrir
verslunarmannahelgina
● er 25 ára
LÍKAMSÁRÁS „Ég fattaði ekki strax
að ég hefði bókstaflega verið skor-
inn á háls. Ég er að byrja að taka út
áfallið, rétt að átta mig á að þetta
hafi gerst. Skurðurinn er sextán
sentímetra langur og það voru
saumuð 56 spor,“ segir Ásgeir Elí-
asson leigubílstjóri þegar Frétta-
blaðið ræddi við hann í gær. En 48
ára maður, sem
hann ók, skar hann
á háls á Vestur-
götu í fyrrinótt
þegar kom að
greiðslu fargjalds-
ins.
Ásgeir segir
skurðinn hafa
verið djúpan og að
sauma hafi þurft í gegnum þrjú
húðlög, æðar og annað fyrir innan
húðina hafi sést og að nær engu
hefði mátt muna að mikið verr
færi. „Ég skil ekki að menn skuli
gera svona lagað vegna 1.950
króna, því þeir rændu mig ekki,“
sagði Ásgeir. Kærasta Ásgeirs,
Jóna Dís Þórisdóttir, sagði árásina
vera mikið áfall sem erfitt sé að
takast á við en það muni hafast
með tímanum. Ásgeir útskrifaðist
af sjúkrahúsi um hádegi í gærdag.
Ásgeir var að aka fjórum
mönnum á Vesturgötu og átti einn
þeirra að greiða fargjaldið. Ásgeir
sat inni í leigubílnum en mennirn-
ir voru allir komnir út þegar
Ásgeir fann allt í einu hita um
hálsinn. Einn fjórmenninganna,
48 ára maður, var í gær úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 4. ágúst.
Farið var fram á gæsluvarðhaldið
vegna alvarleika árásarinnar.
Mennirnir, sem eru fæddir á
árunum 1947 til 1956, voru allir
undir áhrifum vímuefna. Þeir
hafa áður komið við sögu lögreglu
og er þekktir fyrir óreglu. Ómar
Smári Ármannsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn í Reykjavík, segir
málið mjög alvarlegt og það verði
rannsakað sem slíkt. Þá segir
hann bæði leigubílstjórann og
árásarmanninn mjög heppna að
ekki skyldi fara verr því litlu
hefði munað.
hrs@frettabladid.is
Sauma þurfti
56 spor í háls
Ásgeir Elíasson leigubílstjóri slapp ótrúlega vel er einn farþega skar
hann á háls þegar kom að greiðslu fargjaldsins. Skurðurinn á hálsi
Ásgeirs er sextán sentímetra langur og sauma þurfti 56 spor.
LIFANDI TÓNLIST Í MIÐBORGINNI Tónlistarmenn frá spænsku borginni Madríd voru í miðborg Reykjavíkur í gær og skemmtu vegfarend-
um. Þeir tóku meðal annars lagið fyrir Vilborgu Davíðsdóttur rithöfund og átta vikna dóttur hennar Sigrúnu Uglu í veðurblíðunni við Ingólfstorg.
Frítími Evrópubúa:
Þjóðverjar
latastir
BRUSSEL, AP Slóvenar eru upptekn-
astir Evrópubúa meðan Þjóðverjar
og Norðmenn eru meðal þeirra sem
mest slæpast samkvæmt nýrri
könnun á frítíma Evrópubúa.
Samkvæmt könnuninni eyddu
Evrópubúar stærstum hluta sólar-
hringsins sofandi. Sænskir karl-
menn sváfu minnst, tæpar átta
klukkustundir, en franskar konur
mest, tæpum klukkutíma lengur. Þá
kom í ljós að franskar konur eyða
níutíu prósent meiri tíma í heimilis-
störf en karlkyns landar þeirra. ■
RANNSÓKN Hákon Eydal hefur við-
urkennt fyrir lögreglu að hafa kom-
ið líkinu af Sri Rahmawati, fyrrum
eiginkonu sinni, í sjó við Kjalarnes
samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins. Hann hefur ekki viður-
kennt að hafa orðið Sri að bana en
vísbending hans er fyrsta staðfest-
ing þess að hún sé látin.
Ábending frá Hákoni varð til
þess að leitin að líki Sri Rahmawati
beindist að ákveðnum stað og fékk
lögreglan í Reykjavík aðstoð kaf-
ara úr sérsveit Ríkislögreglustjóra
við leitina í gærkvöldi. Áður höfðu
130 björgunarsveitarmenn á 27
bílum tekið þátt í leitinni. Líkið af
Sri Rahmawati hafði ekki fundist
þegar Fréttablaðið fór í prentun í
gærkvöldi. Það kann að gera
lögreglu erfiðara fyrir við leit að
líkinu að straumar kunna að hafa
borið það af þeim stað sem Hákon
kom því fyrir á.
Fjölskylda Sri var upplýst um
það í gær að Hákon hefði bent á
hvar hann kom líkinu fyrir.
„Við mun halda áfram leit með-
an það er einhver von um að finna
hana,“ sagði Ómar Smári Ár-
mannsson, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík. Hann sagði að
það taki tíma að vinna að rann-
sókn í jafn erfiðum og viðamikl-
um málum og þessu ef niðurstaða
eigi að nást. ■
Leitin að Sri Rahmawati:
Hákon kom líkinu í sjó
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
KISTUBERAR
Fyrrum ráðherrar norður-írsku heimastjórn-
arinnar báru kistu Joe Cahill.
IRA-foringi:
Borinn
til grafar
BELFAST, AP Joe Cahill var borinn til
grafar í gær. Það var hann sem
stjórnaði írska lýðveldishernum í
Belfast snemma á áttunda ára-
tugnum þegar samtökin hófu
mannskæðar árásir sínar á Norð-
ur-Írlandi.
Fremstir í hópi kistubera fóru
forystumenn Sinn Fein, Gerry Ad-
ams og Martin McGuinness, sem
báðir eru grunaðir um að vera
ráðamenn í írska lýðveldishern-
um. Báðir fóru fögrum orðum um
Cahill. Adams var undir stjórn
Cahill á áttunda áratugnum.
Adams sagði Cahill hvort
tveggja hafa tekið þátt í að koma á
vopnasmygli frá Líbíu Moammars
Gaddafi og síðar friðarviðræðum.
„Það eina sem mér þykir leitt er
að hann skyldi ekki sjá friðarferl-
ið til lykta leitt.“ ■
„Ég fattaði
ekki strax að
ég hefði
bókstaflega
verið skorinn
á háls.