Fréttablaðið - 28.07.2004, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 28.07.2004, Blaðsíða 42
Birgitta Haukdal er 25 ára í dag en er löngu búin að halda upp á af- mælið sitt. Á sjálfan afmælis- daginn kýs hún að vera í faðmi for- eldra sinna á Húsavík og hvíla sig fyrir törnina um verslunarmanna- helgina. „Ég ætla að leyfa þeim að dekra við mig og elda eitthvað gott handa mér. Nokkurra daga afslöpp- un svo ég verði nú í góðum gír um verslunarmannahelgina. Ef veður leyfir er aldrei að vita nema ég bruni í Hljóðakletta og fari í úti- legu, það er yndislegur staður. Mér finnst æðislegt að eiga afmæli en ég held yfirleitt aldrei upp á það. Undanfarin ár hef ég verið að spila úti á landi á afmælinu mínu svo ég ákvað að núna skildi ég gera eitt- hvað sniðugt. Ég velti því fyrir mér hvort ég ætti að leigja einhvern skemmtistað en fannst það frekar ópersónulegt. Í staðinn ákvað ég að bjóða öllum vinum mínum heim til mín og troða þeim inn í litlu íbúð- ina. Það var alveg meiriháttar af- mælisveisla en ég var næstum því glöð að margir voru erlendis eða úti á landi, það hefði orðið ansi þröngt ef allir hefðu komið.“ Birgitta sendi vinum sínum boðskort í afmælisveisluna með loforði um að syngja ekki. „Venju- lega þegar ég er í afmælum er ég alltaf plötuð til að syngja eða gera eitthvað svo ég hét því að ég skyldi ekkert troða upp. Ég stóð við það en hins vegar söng fimmtíu manna kór afmælissönginn fyrir mig, það var æðislega gaman.“ Söngstjarnan hefur engar áhyggjur af aldrinum og er sann- færð um að nú sé hún orðin stór. „Nú er ég ekki lengur stelpa en það er ekkert verra, ég er viss um að margt skemmtilegra taki við þegar maður verður eldri.“ Að sögn Birgittu er einn afmæl- isdagur í hennar lífi sem stendur upp úr öllum. „Á tvítugsafmælinu mínu bauð Harpa vinkona mín mér í stelpuferð til Mallorka. Ég á aldrei eftir að geta þakkað henni nóg fyrir því þetta var yndisleg ferð og ég hef aldrei átt jafn marga afmælisdaga.“ Um verslunarmannahelgina spilar Írafár í Galtalæk á laugar- dagskvöld og á Sauðárkróki á sunnudagskvöld. ■ 18 28. júlí 2004 MIÐVIKUDAGUR JACQUELINE KENNEDY Eiginkona Johns F. Kennedy fæddist á þessum degi árið 1929. ÞETTA GERÐIST BACH FELLUR FRÁ 28. júlí 1750 „Fyrsta hjónabandið byggist á ást, það næsta peningum og í þriðja sinn giftir maður sig til að hafa félagsskap.“ Þetta sagði Jacqueline Lee Bouvier Kennedy, sem lést árið 1994, um hjónalífið. AFMÆLI: BIRGITTA HAUKDAL HLEÐUR BATTERÍIN Á HÚSAVÍK 1540 Thomas Cromwell ráðherra hjá Hinriki áttunda Bretakonungi er tekinn af lífi. Sama dag giftist Hin- rik fimmtu konu sinni Catherine Howard. 1821 Perú lýsir yfir sjálfstæði frá Spáni. 1914 Fyrri heimsstyrjöldin hefst með formlegum hætti þegar Austurríki Ungverjaland lýsir yfir stríði gegn Serbíu. 1939 Judy Garland fer í upptökuver til að taka upp lagið Over the Rain- bow. 1945 Bandarísk hersprengja fellur á 79. hæð Empire State Building í New York með þeim afleiðingum að 14 manns láta lífið og 26 eru særðir. 1951 Walt Disney myndin Lísa í Undra- landi er frumsýnd. 1957 Jerry Lee Lewis þreytir frumraun sína í sjónvarpi í The Steve Allen Show. 1965 Bandaríski herinn í Víetnam stækkar úr 75.000 manns í 125.000 eftir ákvörðun Johnsons Bandaríkjaforseta. 1970 Bíómyndin Ned Kelly þar sem Mick Jagger þreytir frumraun sína á hvíta tjaldinu er frumsýnd. 1976 Jarðskjálfti í norður Kína drepur að minnsta kosti 242 þúsund manns. 1995 James Al Hendrix, faðir rokkarans Jimi Hendrix, vinnur aftur réttinn á tónlist, nafni og ímynd sonar síns eftir margra ára baráttu við nokkur fyrirtæki. ÞETTA GERÐIST LÍKA BIRGITTA HAUKDAL Birgitta er búin að halda upp á afmælið en verður hjá foreldrunum á Húsavík í dag. M YN D /P JE TU R Þennan dag árið 1750 lést merkis- tónskáldið Jóhannes Sebastian Bach í kjölfar tveggja augnaðgerða sem hann hafði gengist undir fyrr á sama ári. Tónskáldið sem fæddist árið 1685, var langyngstur í systkina- hópnum og aðeins tíu ára gamall varð hann munaðarlaus. Þá fluttist Bach til eldri bróður síns, Johanns Christoph, sem starfaði sem kirkju- organisti og kenndi Bach að spila á orgel. Árið 1707 giftist Bach frænku sinni, Mariu Barböru Bach, næstu níu árin varð hann vel þekktur org- anisti og samdi mörg af sínum bestu verkum fyrir orgel. Þau eignuðust sjö börn. Síðar vann Bach hjá prins Leo- pold, sem var hæfileikaríkur tónlist- armaður sem elskaði og skildi list- ina. Hjá Leopold hafði Bach engum kirkjuskyldum að gegna og einbeitti hann sér þess í stað að því að semja tónlist. Á þessum tíma samdi hann meðal annars sína víðfrægu Brand- enburgarkonserta. Maria Barbara dó árið 1720 en nokkrum mánuðum síðar giftist Bach konu að nafni Anna Magdalena Wilcke. Bach var hamingjusamur í einkalífinu og þótti góður faðir en Anna Magdalena eignaðist með hon- um hvorki meira né minna en þrettán börn. Bach starfaði í Leipzig síðustu æviárin, sá um tónlistina í stærstu kirkjum borgarinnar og samdi ógrynnin öll af kirkjutónlist. Vorið 1750 fór Bach í tvær augn- aðgerðir þar sem sjón hans var farin að daprast mjög. Aðgerðirnar og meðferðin sem þeim fylgdi er talin hafa dregið tónskáldið til dauða. Jarðarför Bach fór fram 31. júlí 1750 en kona hans dó tíu árum síðar. ■ Er ekki lengur stelpa Áskær eiginkona og móðir okkar Guðbjörg Signý Richter Gljúfraseli 9, í Reykjavík Verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 29. júli kl. 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Guðmundur Magnússon, Guðný Guðmundsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Brynjólfur Guðmundsson Bestu þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar okkar ástkæru Kristborgar Kristinsdóttur Borgarbraut 12, Stykkishólmi Egill Egilsson, Kristinn Ólafur Smárason, Egill Egilsson, Þórhildur Magnúsdóttir, Kristinn Ólafur Jónsson, systkini og aðrir aðstandendur. Guð blessi ykkur JOHANN SEBASTIAN BACH Átti allt í allt tuttugu börn en lést eftir augnaðgerðir 65 ára að aldri. Tuttugu barna faðir ANDLÁT Friðrika Elíasdóttir (Fríða), Sogavegi 168, Reykjavík, lést laugardaginn 24. júlí. Hallfríður Nielsen, Árskógum 8, lést sunnudaginn 25. júlí. Jón Pálmi Karlsson, Lindasíðu 2, Akur- eyri, lést sunnudaginn 25. júlí. Smári Bergsson lést fimmtudaginn 8. júlí. Útför hefur farið fram. Tómas Már Ísleifsson stýrimaður, Vita- stíg 20, Reykjavík, lést laugardaginn 24. júlí. Vilhjálmur Þorbjörnsson lést mánu- daginn 19. júlí. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Þröstur Helgason kennari, Hófgerði 12, Kópavogi, lést sunnudaginn 25. júlí. JARÐARFARIR 13.30 Guðlaug Vigfúsdóttir, Skólastíg 16, Stykkishólmi, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju. 13.30 Haukur Blöndal Gíslason, Víði- vangi 5, Hafnarfirði, verður jarð- sunginn frá Víðistaðakirkju í Hafn- arfirði. 13.30 Pálína Betúelsdóttir frá Höfn í Hornvík, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu. 14.00 Jóhannes Ágúst Guðmundsson bóndi Syðri-Þverá, síðar á Illuga- stöðum, Vatnsnesi, verður jarð- sunginn frá Tjarnarkirkju. 15.00 Guðrún Eggertsdóttir Norðdahl frá Hólmi, Stórholti 17, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju. 15.00 Gústaf Ófeigsson, Árskógum 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Seljakirkju. AFMÆLI Pétur Ormslev, fyrrum fótboltakappi, er 46 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.