Fréttablaðið - 28.07.2004, Blaðsíða 24
4 MIÐVIKUDAGUR 28. apríl 2004
Grillmatur er meðal þess sem
algerlega tilheyrir útilegunni.
Því er nauðsynlegt að taka með
sér eitthvað sem hentar vel á
glóðirnar þegar haldið er í á vit
ævintýranna. Við leituðum til
Old West steikhúss á Laugavegi
176 og báðum um góð ráð þaðan.
Ekki stóð á því og Snævar Jóns-
son kokkur þar setti sig um-
svifalaust í stellingar, kveikti
upp í einnotagrilli og skellti á
það góðu kjöti. Annars vegar
BBQ-grísarifjum sem eru ný-
komin á markað í neytenda-
umbúðum, forelduð og fljót-
grilluð og hinsvegar gamla góða
lambakjötinu sem aldrei bregst.
Hvílaukssósuna er best að gera
heima, áður en lagt er í'ann.
Hún þarf hvort sem er helst að
bíða í þrjá til fjóra tíma áður en
hún er borin fram.
Lambasteikin
Hryggvöðvinn er skorinn í hæfilega bita,
kryddaður með salti og pipar og penslað-
ur með hvítlauksolíu. Grillaður í um sjö
mínútur á hvorri hlið. Borinn fram með
bakaðri kartöflu, salati og hvítlaukssósu.
Hvítlaukssósa
2 skarlottulaukar (ferskur)
1 rif hvítlaukur
1 teskeið timjan (ferskt)
1/2 búnt steinselja (fersk)
1 dós sýrður rjómi
sítróna
salt og pipar eftir smekk
Krydd og laukur er skorið niður, hrært út
í sýrða rjómann.
Salat
Kál, rauðlaukur, tómatar (eða kirsu-
berjatómatar), paprika og gúrkur skorið
niður, magn fer eftir smekk hvers og
eins. Að lokum er sítróna kreist yfir.
Rif
Rifin fást tilbúin á grillið í Nóatúni og
Bónus. Ekkert þarf að krydda né pensla
því þau eru forsoðin og liggja í kryddlegi.
Nóg að opna pakkann og hafa rifin á
grillinu í 5–8 mínútur. Þau eru borin fram
með bakaðri kartöflu, BBQ-sósu og salati.
Brakandi grísarif og
gourmet lambakjöt
Hollenski bjórinn Bavaria Crown er léttur hollenskur
lagerbjór, 4,3% að styrkleika, og er ódýrasti bjór sem
í boði er í Vínbúðum þessa dagana í hálfs líters dós-
um. Hann er frá bjórframleiðandanum
Bavaria Holland Beer sem er einn stærsti
bjórframleiðandi landsins. Þetta gamal-
gróna fjölskyldufyrirtæki hefur framleitt
öl síðan snemma á átjándu öld og
reksturinn haldist innan fjölskyldunnar
alla tíð. Fyrirtækið framleiðir allt malt
sem notað er til framleiðslunnar sjálft og
leggur mikla áherslu á gæði vatnsins
sem notað er við framleiðsluna. Bavaria
hefur ekki fengist hér á landi fyrr en ný-
lega og má finna 5% Bavaria bjór í flest-
um Vínbúðum en Bavaria Crown er í
reynslusölu í tveimur búðum. Á vef Vín-
búða segir að einkenni bjórsins séu að
hann sé gullinn og mjúkur með sætum
kornkeim. Fæst í 50 cl dósum í Heiðrúnu
og Kringlunni og kostar 148 krónur.
Ódýrasti bjórinn í 50 cl dósum
Brasilísk áhrif
Í F.R.O.C Brazil gætir áhrifa frá þjóðardrykk Brasil-
íumanna, Caipirinha. Hann er gerður úr brasilísku
rommi, sem heimamenn nefna Cachaca, og er
blandaður með sykurreyr og læmávexti. Úr
verður frísklegur og svalandi drykkur. Einnig er
hægt að fá í Vínbúðum Froc Ice sem er eins
og aðrar hefðbundnar Ice blöndur byggð á
lime og vodka. Báðar tegundirnar eru 5,6% að
styrkleika og eru seldar í 33cl flösku. Munu
drykkirnir vera ódýrustu áfengu gosblöndurnar
í Vínbúðum. F.R.O.C. er skammstöfun og
stendur fyrir „Fine Ready-made Original
Cooler“ og þar sem nafnið líkist „frog“ í fram-
burði er froskur einkennistáknið.
Verð í Vínbúðum er 198 krónur.
Grunnur að írsku kaffi
Það getur verið svolítið bras að blanda sér al-
mennilegt írskt kaffi í útilegunni en Hot Irish-
man Superior Irish Coffee er ágætis lausn fyrir
þá sem vilja blanda sér þennan ágæta drykk á
fljótlegan hátt. Hot Irishman er tilbúinn grunnur
að „Irish coffee“. Eingöngu eru notuð náttúru-
leg hráefni í hann; írskt viskí, sykur og kaffi. Að-
ferðin við blöndun drykksins er mjög einföld:
Hellið Hot Irishman í glas, um það bil einn fjórða af
glasinu. Fyllið upp með sjóðandi vatni og fleytið að
lokum með léttþeyttri rjómarönd. „Aðdáendur „Irish“
eru mjög kröfuharðir varðandi hvernig hann er fram
borinn og því hafa margir tekið Hot Irishman opnum
örmum en hann er blandaður eins og Írar vilja hafa
hann“, segir höfundurinn og framleiðandinn Bernard
Walsh. Hver 700 ml flaska dugar í 20 „Irish coffee“.
Verð í Vínbúðum 2.990 kr.
Verslunarmanna-
helgin 2004
„Ég ætla að keyra norður til
Akureyrar ásamt unnusta og
dóttur og kíkja meðal annars á
hátíðina Eina með öllu. Við
verðum auðvitað á rólegu nót-
unum enda er dóttirin ung og
smá,“ segir Íris Björk Árna-
dóttir, sýningarstúlka. Ekki
lætur hún þar við sitja heldur
býst við að fara til Siglufjarðar
líka í stutta heimsókn til vin-
konu sinnar sem þar verður.
Eftir helgina er svo á stefnu-
skránni hjá fjölskyldunni að
halda austur um frá Akureyri
og sólargangsleiðina suður þan-
nig að hún endar væntanlega
með að fara hinn klassíska
hring um landið. „Ég vona bara
að það verði gott veður,“ óskar
Íris Björk og undir það skal
tekið hér.
Ætlar á Eina með öllu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI