Fréttablaðið - 28.07.2004, Page 48
28. júlí 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ ÚTIVIST
Verslaðu hjá okkur fyrir
790.-
verð frá
flíspeysa-dömu
útileguna
Eyrnalokkagöt
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg
S. 551 3010
Laugavegi 32 sími 561 0075
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Hampshire Youth Jazz
Orchestra frá Englandi, heldur
tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Aðgangur er ókeypis.
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 Lifandi Jazz Jam session á
Kaffi List.
22.00 Hljómsveitirnar Atómstöðin
og Amos leika á Grand Rokk.
Land og Synir spila í Breiðinni
Akranesi.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
25 26 27 28 29 30 31
Miðvikudagur
JÚLÍ
Þann 31. júlí klukkan tólf verður
Jökulsárhlaup haldið í fyrsta
skipti. Farnar verða tvær leiðir,
annars vegar 12 km leið frá Vest-
urdal inn í Ásbyrgi sem hentar
vel fyrir göngufólk sem og hlaup-
ara, og hins vegar 30 km leið frá
Dettifossi niður í Ásbyrgi. Þjóð-
garðurinn í Jökulsárgljúfrum
mun bjóða göngufólki upp á leið-
sögn úr Vesturdal inn í Ásbyrgi.
Farið mun verða eftir merktum
gönguleiðum.
„Þetta er auðvitað mjög sér-
stakt svæði, alger náttúruperla,“
segir María Jónsdóttir, ferðamála-
fulltrúi Öxarfjarðar- og Keldunes-
hrepps, um hlaupið. María segir
að skráning í hlaupið hafi farið
fram úr öllum vonum en að enn sé
rúm fyrir fólk sem vill taka þátt.
„Það verður traffík hérna um
verslunarmannahelgina. Það er
oft mjög mikið af fólki sem dvelur
í Ásbyrgi. Auðvitað veltur þetta
allt svo á veðrinu sem við skulum
vona að verði gott,“ segir María.
Auk hlaupsins verður að venju
fjölbreytt dagskrá í þjóðgarðinum
um verslunarmannahelgina auk
kvöldvöku og varðelds á tjald-
stæðinu í Ásbyrgi á laugardags-
kvöldið.
Sigurvegari 30 km hlaupsins
fær nafn sitt grafið í stein sem
komið verður fyrir á Ásbyrgi og
mun sá siður haldast um ókomin
ár. Áhugasamir geta skráð sig á
eftirfarandi netföngum mari-
jo@hi.is eða kata@kelduhverfi.is.
■
Sérstakt Jökulsárhlaup
JÖKULSÁRGLJÚFUR
Jökulsárhlaup mun verða haldið í fyrsta
sinn um verslunarmannahelgina.
Skákfélagið Hrókurinn og Birt-
ingaholt hafa tekið höndum sam-
an um undirskriftasöfnun á net-
inu þar sem fólki gefst kostur á að
skrifa undir kröfu um að skák-
snillingurinn Bobby Fischer verði
leystur úr haldi en hann hefur
verið bak við lás og slá í Japan frá
13. júlí. Undirskriftalistinn er
bæði aðgengilegur á heimasíðu
Hróksins, hrokurinn.is og free-
bobby.org. Þar verður hægt að
fylgjast með gangi mála og lýsa
yfir stuðningi við Fischer. Hrafn
Jökulsson, forseti Hróksins,
viðraði þá hugmynd í Bakþanka-
grein í Fréttablaðinu á mánudag-
inn að Íslendingar sýndu Fischer
stuðning í verki. „Viðbrögðin við
greininni voru slík að það var ekki
hægt að sitja aðgerðalaus,“ segir
Hrafn. Síminn hjá honum hefur
vart þagnað og hugmyndum um
hvernig megi koma Fischer til
hjálpar rignir inn. „Þetta er mál
sem nær langt út fyrir raðir skák-
hreyfingarinnar. Íslendingum
hefur verið annt um Fischer frá
því hann tefldi í einvígi aldarinn-
ar í Reykjavík árið 1972 þannig að
það má segja að þetta sé mál
þjóðarinnar allrar.“
Hrafn hvetur alla sem láta sig
hag Fischers varða til þess að
skrá sig enda hafi sagan margoft
sannað að margt smátt geri eitt
stórt. ■
Íslendingar koma
Fischer til hjálpar
BOBBY FISCHER
Hægt er að skrifa undir kröfu um að
skáksnillingurinn verði leystur úr haldi á
freebobby.org.
■ FÓLK
■ DANS
Línudansarafélagið Línudansar-
inn stendur fyrir æfingamóti í
línudönsum í Brautartungu, Lund-
arreykjadal í Borgarfirði dagana
30. júlí til 2. ágúst. Mótið hefur
hingað til verið haldið á Kántrý-
hátíðinni á Skagaströnd en þar
sem hátíðin verður ekki haldin
þetta árið mun mótið fara fram í
Borgarfirðinum. „Kántrýhátíðin á
Skagaströnd sprakk utan af sér og
þeir gáfust upp á því að halda
hana, Við höfum verið þar í gegn-
um árin,“ segir Sigurbjörn Hrein-
dal Pálsson, sem sér um skipu-
lagningu mótsins. Áhugasamir
geta skráð sig á netsíðunni, is-
landia.is/elsas fyrir fimmtudags-
kvöldið þar sem mótið byrjar á
föstudeginum og mótshaldarar
þurfa að vita hve von er á mörg-
um hressum línudönsurum um
helgina. ■
Mót í línudönsum
LÍNUDANS
Valgerður Sverrisdóttir í fullum
kúrekaskrúða í línudansi. Ætli hún mæti
í Borgarfjörðinn um helgina?
Hljómsveitin Atomstöðin sendi
frá sér smáskífu með endurgerðu
lagi Utangarðsmanna, Fuglinn er
floginn. Lagið hefur hljómað í út-
varpi í sumar og í myndbandinu
má sjá Danny Pollock, gítarleik-
ara Utangarðsmanna bregða
fyrir. Að sögn söngvarans, Guð-
mundar Inga, ákvað sveitin að
taka ofan hattinn fyrir Utangarðs-
mönnum og votta þeim virðingu
með því að endurvekja slagerinn.
Atomstöðin hefur soðið saman
sex ný lög sem kynnt verða á tón-
leikum á Grandrokk í kvöld kl. 22.
Nýja efnið er allt milli Led Zepp-
elin og klisjurokks sem einnigmá
einnig heyra þegar Atomstöðin
treður upp á Þjóðhátíð í Eyjum. ■
ATOMSTÖÐIN
Hljómsveitin tekur ofan hattinn fyrir
Utangarðsmönnum.
■ TÓNLIST
Fuglinn er floginn