Fréttablaðið - 07.08.2004, Page 32
20 7. ágúst 2004 LAUGARDAGUR
Viðbúið er að Gleðigangan niður
Laugaveginn í dag verði stórfeng-
leg og tilkomumikil. Hún hefur
vaxið og dafnað allt frá því að fyrst
var gengið fyrir sex árum og hug-
myndaflugi göngufólks virðast
engin takmörk sett. Göngufólkið
mun skipta þúsundum en í halaróf-
unni frá Hlemmi og niður í Lækjar-
götu munu ekki aðeins koma saman
sam- og tvíkynhneigt fólk heldur
líka, og ekki síður, þeir sem vilja
sýna samstöðu.
Göngufólk kemur sér fyrir á
Hlemmi klukkan 13 og tveimur
stundum síðar verður marserað af
stað niður Laugaveginn og sem leið
liggur í Lækjargötuna. Þar hefst
dagskrá klukkan 16.15. Meðal
þeirra sem stíga á stokk eru söngv-
arar og dansarar úr Fame, Míó,
hommaleikhúsið Hégómi, Þuríður
Sigurðardóttir, kvennahljómsveit-
in Homoz with tha Homiez, hin ís-
lensk-ameríska Heklína og systur
frá San Francisco, Maríus Sverris-
son og Þórður Tómasson.
Hinsegin dagar eru þriðja fjöl-
mennasta samkoman sem haldin er
í Reykjavík ár hvert. Fjölmennari
eru hátíðahöldin á 17. júní og á
Menningarnótt. Talnaglöggir ætla
að þátttakendur Hinsegin daga í
fyrra hafi verið um tuttugu þús-
und. Búast má við jafn mörgum
eða fleirum í ár. ■
Hinir árlegu Hinsegin dagar eru haldnir hátíðlegir í Reykjavík í sjötta sinn í dag með skrúðgöngu og skemmtidagskrá.
Gengið undir regnbogann
Eftir því sem næst verður komist
gefa tveir opinberir staðir í
Reykjavík sig út fyrir að vera sér-
staklega ætlaðir samkynhneigðu
fólki. Þetta eru kaffihúsið Cafe
Cozý í Austurstræti og skemmti-
staðurinn Jón forseti við Aðal-
stræti. Báðir eru staðirnir tiltölu-
lega nýir af nálinni og báðum var
þeim komið á fót án þess að sér-
staklega væri gert út á viðskipti
við samkynhneigða. Það kom síðar.
Nokkrir staðir fyrir samkyn-
hneigða hafa verið til í höfuðborg-
inni í gegnum árin. Borgin var
aldrei sérstakur staður samkyn-
heigðra, en Bubbi söng nú samt um
strákana á Borginni, sem hittast
öll laugardagskvöld á barnum inni
í Gyllta sal. Þetta var kyrjað
tímum fyrir hinsegin daga, áður en
samkynhneigð varð jafn viðtekin í
samfélaginu og hún er í dag.
22 við Laugaveg er sjálfsagt
sögufrægastur þeirra staða þar
sem samkynhneigðir voru sérstak-
lega boðnir velkomnir í nokkur ár
þó gagnkynhneigðir sæktu staðinn
líka. Á 22 blandaðist saman hefð-
bundin barstemning á neðri hæð-
inni og diskótek á efri hæð þar sem
svitinn lak úr loftinu eftir taktfast-
an dans gestanna. Á fyrri árum
skemmtistaðarins voru þó ekki
allir sem komust á efri hæðina,
enda átti það að vera athvarf
samkynhneigðra og þótti það
nokkuð sport meðal sumra hinna
gagnkynhneigðu hvort þeir
kæmust upp til að sjá hvað þar
færi fram. Með tímanum breyttist
þetta þó og ekki er lengur hægt að
segja að 22 sé sérstakur staður
samkynhneigðra, heldur mæta þar
bara allir sem vilja dansa.
Moulin Rouge var starfrækt við
Hlemm og síðar Spotlight við Ing-
ólfsstræti. Þar var lögð áhersla á
að skapa klúbbastemningu að er-
lendri fyrirmynd og tókst vel.
Spotlight flutti síðar í Hafnar-
stræti þegar gamla staðnum var
breytt í hluta af nýja Hóteli 101.
Kúltúrinn flutti með og lifði um
skeið.
Mannsbar var svo opnaður við
Vegamótastíg en var skammgóður
vermir og lagði upp laupana á inn-
an við ári. Þar drukku samkyn-
hneigðir karlmenn við kertaljós og
rólega tónlist.
Sérstakir hinsegin hátíðardans-
leikir verða haldnir á þremur stöð-
um í kvöld. Á Nasa við Austurvöll
þar sem dj Páll Óskar og dj
Flovent skemmta, á Jóni forseta í
Aðalstræti þar sem dj Skjöldur
ræður tónlistinni og á Nelly’s í
Bankastræti þar sem dj Atli leikur
fyrir dansi. ■
Lengi hafa verið til sérstakir skemmti- og veitingastaðir fyrir samkynhneigt fólk:
Samkynhneigðir og djammið
KLÆÐSKIPTI ERU RÍKUR ÞÁTTUR Í MENNINGU SAMKYNHNEIGÐRA KARLA
Hér má sjá Joe og Kókó í Gay Pride göngunni á síðasta ári.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Ásta Vilhjálmsdóttir rekur Cafe
Cozy ásamt fjölskyldu sinni.
Hún segir að fljótlega eftir að
staðurinn opnaði hafi þau
ákveðið að gera hann að griða-
stað samkynhneigðra enda hafi
samkynhneigð dóttir hennar
sagt að slíkan stað vantaði í
Reykjavík. „Ég var svolítið rög
við þetta í fyrstu enda vissi ég
ekki að samkynhneigðir á Ís-
landi skiptu hundruðum,“ segir
Ásta og bætir við að rekstur
staðarins sé það skemmtileg-
asta sem hún hafi fengist við
um ævina.
Aðspurð segir hún því fara
víðsfjarri að gagnkynhneigðir
séu óvelkomnir á Cafe Cozy.
„Aldeilis ekki, staðurinn er
hinsvegar yfirlýstur griðastað-
ur samkynhneigðra en allir eru
velkomnir. Við höfum merkt
staðinn með fána samkyn-
hneigðra og ég held að það sé
búið að stela sex eða sjö slíkum
utan af húsinu,“ segir Ásta og
dæsir yfir hegðuninni. Hún seg-
ir hinsvegar mikinn mun á
skemmtanahaldinu hjá samkyn-
hneigðum og gagnkynhneigð-
um. „Áður var alltaf eitthvað
brotið og bramlað og við þurft-
um að hafa dyravörð. Eftir
breytinguna hefur hinsvegar
allt gengið vel, umgengnin er
miklu betri. Reyndar kom það
einu sinni fyrir að gagnkyn-
hneigður náungi kom hingað inn
gagngert til að lumbra á
homma.“ ■
Jón forseti er starfræktur í elsta
húsi Reykjavíkur þar sem Fóget-
inn átti lengi lögheimili og varnar-
þing. Góð reynsla varð til þess að
eigandinn, Ragnar Halldórsson,
ákvað að breyta staðnum í klúbb
fyrir samkynhneigða. „Í þrígang
höfðu verið haldin hér sérstök
skemmtikvöld fyrir lesbíur. Þessi
kvöld tókust afskaplega vel og
reynsla okkar af samkynhneigðum
var einstaklega góð. Sú staðreynd
og fyrir öfluga hvatningu góðs
fólks úr hópi samkynhneigðra
varð til þess að við ákváðum að
snúa við blaðinu og gera húsið að
sérstökum klúbbi fyrir samkyn-
hneigða.“
Ragnar segir nokkurn mun á
samkynhneigðum annars vegar og
gagnkynhneigðum hins vegar og
birtist hann ekki síst í þeirri ein-
lægu gleði sem einkennir fyrr-
nefnda hópinni. „Flestir samkyn-
hneigðir hafa upplifað einhverja
erfiðleika. Það er mín skoðun að
fólk sem átt hefur erfitt að ein-
hverju leyti og tekist á við það er
mennskara en annað fólk. Það hef-
ur vaxið við erfiðleikana og hefur
yfir sér aðrar og mannlegri víddir.
Það er jákvætt, sátt við sjálft sig
og býr yfir ákveðnu æðruleysi
gagnvart sjálfu sér og heiminum.“
Ragnar segir gagnkynhneigt
fólk slæðast inn við og við og að all-
ir séu velkomnir. Hann leggur
hinsvegar ríka áherslu á að Jón
forseti sé kvitt og klárt fyrir sam-
kynhneigða, ekki sé tiplað á neinu
gráu svæði með það. Og tvennt ber
þess glöggt vitni. „Allir starfs-
menn, fyrir utan mig, eru samkyn-
hneigðir og öll dagskrá staðarins
er hugsuð fyrir samkynhneigða.“ ■
JÓN FORSETI
Eini skemmtistaðurinn í Reykjavík sem
sérstaklega er ætlaður samkynhneigðum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Kaffihús
vantaði
CAFE COZY
Eina kaffihúsið í Reykjavík sem sérstak-
lega er ætlað samkynhneigðum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Einlæg gleði einkennir gesti
Ráðhús
Hljómskála-
garður
Hlemmur
Ganga hefst
Göngu lýkur
2 4
6
5
3 7
1
1 Café Cozy í Austurstræti Þar getur göngufólk fundið kaffi og
huggulegheit. Hinsegin kaffihús en
auðvitað eru allir velkomnir.
Jón forseti í
Aðalstræti
Þegar líða tekur á
kvöldið má reikna
með biluðu stuði á
þessum eina yfir-
lýsta hinsegin klúbbi
í bænum enda
verður diskóað fram
eftir morgni með
Skjöld Eyfjörð í far-
arbroddi.
MSC Ísland í Ingólfsstræti
Staður homma sem hafa áhuga á
leður-, gúmmí-, einkennis- og
gallaklæðnaði. Opnunarkvöld ár-
legrar hátíðar MSC Íslands, sem
stendur samhliða Hinsegin dögum
hófst á fimmtudag að viðstöddum
fjölda erlendra gesta.
Samtökin 78 á Laugavegi
Hér er að finna skrifstofu og félagsaðstöðu Samtak-
anna ‘78, félags lesbía og homma á Íslandi. Samtökin
starfa að baráttu- og hagsmunamálum félagsmanna sinna og
skapa félagslegan og menningarlegan vettvang.
Jómfrúin við
Lækjargötu
Þessi notalegi smur-
brauðsstaður er vinsæll
veitingastaður samkyn-
hneigðra og ekki ólíklegt
að þarna verði setið við
hvert borð þegar göngu-
gesti fer að svengja.
Nelly’s í
Ingólfsstræti
Plötusnúðurinn í
kvöld er DJ Atli
sem mun halda
fólkinu í góðri
sveiflu og ekki
ólíklegt að lagið
Ég lifi af muni ein-
hvern tímann
hljóma.
Nasa við Austurvöll
Hér verður diskó, diskó og
diskó. DJ Flóvent byrjar fjörið
en að því búnu sér Páll Óskar
um stuðið fram á rauða nótt.