Fréttablaðið - 07.08.2004, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR 7. ágúst 2004
■ TÓNLIST
■ LISTIR
Silkitré og silkiblóm
Laugavegi 63
(Vitastígsmegin)
sími 551 2040
Ath. langur laugardagur opið frá kl. 11- 17
Útsalan er hafin
20-60%
afsláttur
Silkitré og silkiblóm
e
Tré
sum
Tré - pottaplöntur - blóm í vasa -
sumarblóm- hengiplöntur - strá -
inniker - útiker
Söngkonan Madonna ætlar að reiða
fram um einn og hálfan milljarð
króna fyrir stofnun Kabbalah-
skóla í New York. Í skólanum, sem
mun kallast the Kabbalist Gramm-
ar School For Children, verður
krökkum á grunnskólaaldri kennd
iðkun gyðingatrúar.
Að sögn talsmanns Madonnu
hefur stofnun skólans verið draum-
ur hennar til langs tíma. Vill hún
nota pening sinn til að setja ævar-
andi mark sitt á samfélagið og
hjálpa ungum krökkum að mótast
og verða að betri manneskjum.
Kabballah er trú sem byggist á
gamalli andaheimspeki og hóf
Madonna ástundun hennar fyrir
rúmum sjö árum. Telur hún sig hafa
haft ákaflega gott af henni. Munu
allar kennslustundirnar í nýja skól-
anum endurspegla Kabballah.
Madonna hefur undanfarið
verið á tónleikaferð um heiminn
sem kallast Re-Invention Tour.
Stígur hún næst á stokk í
Manchester á Englandi þann 14.
ágúst næstkomandi. ■
Stofnar Kabballah-
skóla í New York
MADONNA
Söngkonan Madonna hefur iðkað Kab-
ballah-trúarbrögðin í rúm sjö ár.
Um helgina eru síðustu forvöð að
sjá sýningu Þorvaldar Þorsteins-
sonar, Ég gerði þetta ekki, sem
staðið hefur yfir í Listasafni
Reykjavíkur síðastliðinn mánuð.
Á sýningunni eru gömul og ný
verk Þorvaldar í bland, myndbönd
og innsetningar auk atburða sem
gerast utan veggja sýningarsal-
anna. Í fyrra vann Þorvaldur verk
í Rúmeníu þar sem hann tók fyrir
börn á munaðarleysingjahæli,
kynnti sér áhugasvið hvers og
eins og hæfileika, og útbjó loks
veggspjöld með myndum af börn-
unum. Verkið kallaði Þorvaldur
„Wanted“, hengdi upp veggspjöld-
in sem líktust myndum frá lög-
reglunni af eftirlýstu fólki en þeg-
ar textinn var lesinn kom í ljós að
börnin voru eftirlýst fyrir framtíð
landsins.
Í Hafnarhúsinu er börnum úr
Vinnuskóla Reykjavíkur boðið að
koma í dagsheimsókn að skoða
þær sýningar sem standa yfir
hverju sinni. Þorvaldur fékk tæki-
færi til að nýta sér heimsókn ung-
linganna, útfæra sömu hugmynd á
íslenskum börnum og afraksturinn
er til sýnis í listasafninu. Þar hefur
heill salur verið þakinn myndum
af börnum eftirlýstum fyrir fram-
tíð Íslands. Undir hverri mynd er
stuttur texti um sterku hliðar
hvers og eins og ástæðu þess að
viðkomandi er nauðsynlegur fyrir
framtíð Íslands. ■
FRAMTÍÐ ÍSLANDS
Unglingarnir eru eftirlýstir vegna hæfileika sinna.
Eftirlýst börn