Tíminn - 15.12.1972, Page 20
TÍMINN
Föstudagur 15. desember 1972
ISLANDSMEISTAR-
ARNIR ÚR LEIK?
Hér á myndinni sést Ilörður
Kristinsson stöðva Björgvin
Björgvinsson á siðustu stundu
— vitakast var dæmt. Hörður
átti snilldarleik gegn Fram,
þessi gamli landsliðsmaður
lék sinn bezta leik á keppnis-
timabilinu og hann sendi
knöttinn sjö sinnum i netið hjá
Fram. Flest skot hans sungu
við stengurnar, illverjandi
fyrir hvaða markvörð sem er.
— Ármann setti strik í reikninginn
og sigraði 23:20 — Hörður
Kristinsson átti frábæran leik og
skoraði sjö góð mörk
Ármann setti svo sannarlega strik i reikninginn i
1. deild íslandsmótsins i handknattleik, þegar liðið
sigraði íslandsmeistarana Fram 23:20 i spennandi
leik á miðvikudagskvöldið. Stærstan þátt i þessum
fyrsta sigri^Ármanns i mótinu átti tvimælalaust
gamla kempan Hörður Kristinsson, en hann átti
frábæran leik — hvert þrumuskotið frá honum eftir
annað hafnaði i F"ram-markinu. Hörður skoraði sjö
mörk i leiknum — fjögur af mörkum hans voru
skoruð úr friköstum. Fram leiddi leikinn með
tveimur til þremur inörkum, en undir lokin tókst
Ármanni að jafna og komast yfir — þegar sigurinn
var kominn i örugga höfn, urðu fagnaðarlæti
Ármanns geysileg, enda ekki nema von, liðið, sem
allir hafa spáð falli i ár, lagði sjálfa íslandsmeistar-
ana að velli — sanngjarn sigur og verðskuldaður.
Armannsliðið lék mjög vel i
leiknum, sérstaklega i siðari hálf-
leik, en þá léku leikmenn liðsins
mjög góðan varnarleik — lang-
skyttur Fram fundu aldrei glufu i
sterkri vörn Ármanns, sem var
mjög hreyfanleg og leikmenn
liðsins létu i sér heyra. Þegar
Ármenningar fundu, að leikmenn
Fram voru farnir að gefa sig, tvi-
efldust þeir.og þorstinn i stig rak
þá áfram. Enda árangurinn eftir
þvi — verðskuldaður sigur.
Armannsliðið komst yfirfi byrj-
\ Allt í jólamatin
Nýtt grænmeti — hvítkál, rauðkál, rauðrófur,
gulrófur, gulrætur, laukur.
Nýir ávextir daglega.
Opið í kvöld til kl. 10 — Sendum um allan bæ.
BORGARKJÖR
Grensásvegi 26 — Simi 3-89-80.
Jólarjúpur — Kjúklingar — Folaldakjöt —
Nautakjöt — Ungkálfakjöt. *
Svínakjöt — þ.e. hamborgarhryggir, hamborg-
arrúllur, kótilettur og bógsteikur.
OKKAR VIÐURKENNDA
un 4:2, en á 10. min. jafnar Fram
4:4.,og um miðjan fyrri hálfleik
hefur Fram forustuna 7:5.
Ármann minnkar muninn i eitt
mark, sá munur helzt út fyrri
hálfleik þar til rétt fyrir leikshlé,
að Sigurbergur Sigsteinsson skor-
aði mark með gegnumbroti og
staðan var 14:12 fyrir Fram. Guð-
mundur Sigurbjörnsson skorar
fyrsta mark siðari hálfleiksins og
lagar stöðuna i 14:13. Framarar
svara með'þremur mörkum —■
Ingólfur Óskarsson, öll úr vitum,
og staðan er 17:13. Á þessum tima
leit út fyrir góðan sigur Fram —
Armenningar voru ekki á þeim
buxunum að fara að gefast upp*
Vilberg skorar tvisvar úr vita-
köstum og Hörður sendir knöttinn
i netið úr frikasti, staðan er þá
17:16. Ingólfur skorar 18:16, enn
einu sinni úr vitakasti. Vilberg
skorar fyrir Ármann, en á 18.
min. svarar Axel Axelsson með
langskoti — var þetta fyrsta mark
Fram i siðari hálfleik, sem ekki
var skorað úr vitakasti. Björn Jó-
hannesson lagar stöðuna i 19:18,
og þannig var staðan.þegar dóm-
ararnir, Kristófer Magnússon og
Ingvar Viktorsson, dæmdu mark
af Fram — Ingólfur skoraði úr
vitakasti, en dómararnir dæmdu
markið af, sögðu,að Ingólfur hefði
stigið á linu? Armenningar fá
knöttinn og Vilberg jafnar 19:19
eftir hraðupphlaup.
Armanns-liðið tviefldist við
jöfnunarmarkið og allt gengur á
afturfótunum hjá Fram, leik-
menn liðsins finna enga glufu i'
sterkri vörn Armanns. Hörður
kemur Ármanni yfir 20:19 með
Skemmtikvöld
í golfskálanum
annað kvöld
Annað kvöld (laugardaginn
16. desember) halda félagar i
Golfklúbb Reykjavikur
skemmtikvöld i golfskáianum
i Grafarholti og hefst það kl.
21.00.
Á dagskrá verður m.a. golf-
kvikmynd, söngur, dans og
annað fjör. Félagsmcnn eru
hvattir til að mæta og taka
gesti með.en öllum verður
lieimill aðgangur.
góðu marki eftir frikast og Björn
bætir tveimur við og staðan er
orðin 22:19, þegar Sigurbergur
skorar 22:20 með gegnumbroti.
Siðasta mark leiksins skorar Vil-
berg úr vitakasti.
Ármanns-liðið lék sinn bezta
leik i mótinu til þessa, þar munaði
mest um það, að Hörður Kristins-
son lék nú sinn bezta leik á
keppnistimabilinu. Hann skoraði
sjö mörkimeð langskotum, flest
óverjandi upp undir þverslá, eða
út við stengurnar, þá átti hann
einnig hörkuskot, sem smullu i
stöngunum. Hörður var svo sann-
arlega i sinu gamla landsliðs-
formi. Vilberg Sigtryggsson átti
einnig góðan leik, sömuleiðis
Björnog Guðmundur, sem var all
friskur i siðari hálfleik, er hann
stjórnaði vörn liðsins. Þá var einn
leikmaður, sem bar litið á — en
þessi leikmaður stendur alltaf
fyrir sinujmatar hann linuna og er
m jög hreyfanlegur i spilinu. Þessi
leikmaður er Olfert Náby, sem
átti hvað eftir annað góðar linu-
sendingar i leiknum og hann er
mjög vakandi fyrir frium mönn-
um.
Fram-liðið lék ekki vel i leikn-
um, vörn liðsins var mjög léleg og
sóknarleikurinn einhæfur — liðið
skoraði ekki nema sex mörk i sið-
ari hálfleik, fjögur úr vitaköstum
(3, 5, 6 og 11 min.), eitt með lang-
skoti (18. min.) og eitt með gegn-
umbroti (29. min.). Markvarzlan
var litil sem engin, enda vörnin
mjög léleg. Það er ekki nema von
— það eru nokkrir leikmenn i lið-
inu, sem ekki kunna að spila vörn
rétt. Þegar þessir leikmenn eru
inná, þá þurfa aðrir leikmenn að
leika sinar stöður i vörninni og
hafa einnig gætur á stöðum
þeirra. Stöðurnar i handknatt-
leiksvörn eru orðnar svo erfiðar,
að leikmenn eiga að hafa nóg með
að leika sinar stöður i vörninni —
ekki einnig að þurfa að hafa gæt-
ur á öðrum stöðum og vakandi
augu með varnarleikmönnum, til
að reyna að hlaupa i skarðið,
þegar þeir gera vitleysur. Eftir
leikinn gegn Ármanni má fara að
afskrifa Fram i baráttunni um Is-
landsmeistaratitilinn; lið. sem
hefur tapað fjórum stigum strax i
byrjun mótsins, á enga eða litla
möguleika.
Kristófer Magnússon og Ingvar
Viktorsson dæmdu leikinn og
sluppu þeir sæmilega frá honum
— þeir gerðu vitleysur eins og svo
oft vill koma fyrir dómara og
aðra.
SOS
Mörk Fram
og Ármanns
Mörkin i leik Fram og
Ármanns skoruðu eftirtaldir
leikmenn:
FRAM: Ingólfur Óskarsson
8 (6 viti), Axel Axelsson 3, Sig-
urbergur Sigsteinsson 3,
Sveinn Sveinsson 3, Andrés
Bridde, Pétur Jóhannsson og
Björgvin Björgvinsson, eitt
hver.
ARM ANN: Hörður Kristins-
son 7, Vilberg Sigtryggsson 7
(4 viti), Guðmundur Sigur-
björnsson 3, Björn Jóhannes-
son 3, Jón Ástvaldsson 2 og 01-
fert N&by eitt.
Einkennileg
vinnubrögð
,,Ég sagði ekki orð við
dómarana”, sagði Páll Jóns-
son liðsstjóri Fram, þegar
honum var sýnd leikskýrsla
liðsins eftir leikinn. Þar stóð
skýrum stöfum athugasemd
frá dómurum leiksins, þeim
Kristófer Magnússyni og
Ingvari Viktorssyni, þessi
orð: PALL JÓNSSON OG
AXEL AXELSSON BARU
ÞAÐ UPPA DÓMARA
LEIKSINS, AÐ ÞEIR HEFÐU
VERIÐ HLUTDRÆGIR. Páll
var mjög undrandi á þessu og
honum fannst þetta einkenni-
leg vinnubrögð, eins og
flestum, sem þetta lásu.
Á morgun
Hér á siðunni á morgun
verður birt staðan I 1. deild,
markhæstu merin og ýmislegt
rabb um tsiandsmótið i hand-
knattleik í máli og myndum.