Fréttablaðið - 23.07.2004, Side 1
● nýjustu mynd friðriks þórs
Sarah Polley:
▲
SÍÐA 38
Fer með aðalkven-
hlutverk Bjólfskviðu
● í hinu húsinu
Andri Ólafsson:
▲
SÍÐA 32
Færeyskt
rokk
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI sími 550 5000
FÖSTUDAGUR
NORÐURLANDAMÓT HEFST
Norðurlandamót landsliða kvenna skipuð
leikmönnum sem eru 21 árs og yngri
hefst í dag. Ísland mætir Englandi á
Sauðárkróksvelli klukkan 16.30. Í 1. deild
karla tekur Völsungur á móti Breiðabliki
klukkan 20.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA VÆTA SÍÐDEGIS Úrkomulítið
framan af. Rigning eða skúrir þegar líður á
daginn. Hiti 10-18 stig, hlýjast
norðaustantil. Sjá síðu 6.
23. júlí 2004 – 199. tölublað – 4. árgangur
SKÝRSLA UM 11. SEPTEMBER
Fjórir flugræningjanna voru stöðvaðir á
flugvellinum skömmu áður en þeir flugu
farþegavél á bandaríska varnarmálaráðu-
neytið. Sjá síðu 2
MANNSKÆTT SLYS Í TYRKLANDI
Hátt í fjörutíu manns létu lífið þegar há-
hraðalest fór út af spori sínu á leiðinni milli
Istanbúl og Ankara. Myrkur gerði björgunar-
mönnum erfitt fyrir. Sjá síðu 2
FJÓRTÁN BANASLYS Þrír hafa látið líf-
ið í umferðinni síðan 11. júlí. Fjórtán hafa
alls látið lífið í umferðarslysum á árinu.
Flest slysanna eiga sér stað nærri Reykja-
vík. Sjá síðu 6
GAGNRÝNIR STJÓRNVÖLD Formað-
ur Sjómannasambands Íslands segir stuðn-
ing stjórnvalda við útvegsmenn óþolandi
og skort á gæslu landhelginnar óásættan-
lega. Sjá síðu 12
nr. 29 2004
f|zâÜáàx|ÇÇ
dagskráin 23. júlí - 29. júlí
www.spar.is
Fimm stjörnu fjármálafyrirtæki
20032002200120001999
Sigursteinn Másson:
▲
Fylgir Fréttablaðinu dag
Lítur í
eigin barm
birta
● farsímanotkun barna ● sumarhetjan þú
Kvikmyndir 30
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 24
Sjónvarp 36
Berglind Guðbrandsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Te og kaffi
í 20 ár
● matur ● tilboð
KJARAMÁL Verkfall háseta skipa
Hafrannsóknarstofnunarinnar
hefst klukkan fjögur á mánudag
nái Sjómannafélag Reykjavíkur
og samningsnefnd fjármálaráðu-
neytisins ekki að semja á fundi
sama dag. Bitbeinið er sjómanna-
afsláttur hásetanna.
Jónas Garðarsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur, seg-
ir félagið vilja að kjarasamning-
urinn falli úr gildi eða verði upp-
segjanlegur nemi stjórnvöld sjó-
mannaafsláttinn úr gildi.
Baldur Guðlaugsson, ráðu-
neytisstjóri fjármálaráðuneytis-
ins, segir að viðræðurnar strandi
á þessu atriði.
„Þeim hefur verið boðið að
inni í samningnum verði bókun
um að verði samið um það í
kjarasamningum sjómanna á al-
mennum markaði að afnám sjó-
mannaafsláttar leiði til þess að
kjarasamningar verði uppsegj-
anlegir skuli það sama gilda um
þennan samning. Ríkið telur eðli-
legt að stefnan varðandi atriði
sem þetta sé mörkuð í viðræðum
aðila á hinum almenna vinnu-
markaði en er tilbúið að fallast á
að niðurstaða sem þar fæst gildi
einnig um sjómenn sem starfa
hjá ríkinu.“
Jónas segir slíka bókun ekki
hafa gildi.
„Við erum að semja beint við
fjármálaráðherra. Hann kom með
frumvarp um skerðingu sjó-
mannaafsláttar. Þess vegna vilj-
um við semja beint við hann um að
samningurinn verði laus eða upp-
segjanlegur nái frumvarpið fram
að ganga.“
Næsti fundur viðsemjenda er á
mánudaginn klukkan hálf ellefu
og hafa þeir þá fimm og hálfa
klukkustund til að ná saman. Jónas
segir það ekki knappan tíma.
„Það þarf ekki nema eina mín-
útu. Þetta er ekkert mál til að sitja
yfir. Þetta er aðeins spurning um
já eða nei.“
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar,
segir það órætt hvernig staðið
verði að heimkomu skipanna komi
til verkfalls. Hann voni að deilan
leysist. „Við erum alltaf í mikil-
vægum rannsóknarleiðöngrum og
auðvitað er það bagalegt að geta
ekki unnið eftir þeim áætlunum
sem við setjum okkur.“
gag@frettabladid.is
Stefnir í verkfall vegna
sjómannaafsláttar
Hásetar hafrannsóknarskipa fara í verkfall falli nýr kjarasamningur þeirra ekki úr gildi ef
sjómannaafsláttur verður afnuminn. Fjármálaráðuneytið hefur boðið þeim að samningurinn
fylgi reglum almenns vinnumarkaðar.
RÁÐHERRAR GREIÐA ATKVÆÐI UM NIÐURFELLINGU FJÖLMIÐLALAGANNA Á ALÞINGI Alþingi samþykkti í gær að fella úr
gildi fjölmiðlalögin sem forseti synjaði staðfestingar 2. júní. Allir stjórnarþingmenn greiddu atkvæði með frumvarpinu en stjórnarandstað-
an sat hjá með þeirri skýringu að ekki væri víst að það stæðist stjórnarskrána að hætta við þjóðaratkvæðagreiðslu með þessum hætti.
Þinghaldi hefur verið frestað fram til septemberloka. Sjá síðu 4
PALESTÍNA, AP Jasser Arafat
Palestínuforseti er sagður hafa
lofað því að veita ríkisstjórn
Ahmed Qureia forsætisráðherra
aukin völd, þess á meðal full
yfirráð yfir öryggissveitum
Palestínumanna. Þetta sagði
palestínski þingmaðurinn Imad
Falloyuji eftir að Arafat ræddi
við þingmenn.
Fallouji sagði Qureia hafa
lofað að skoða tilboð Arafats.
Arafat hefur áður lofað því að
láta af stjórn öryggissveitanna
en ekki staðið við það. Stjórn
öryggismála er helsta deiluefni
forsetans og forsætisráðherrans.
Palestínska þingið féll í gær
frá hótun sinni um að fara í verk-
fall ef Arafat yrði ekki við ósk-
um þeirra um að veita ríkis-
stjórninni aukin völd og betri að-
stöðu til að stjórna málum í
Palestínu. Þingmenn kröfðust
þess þó að þingið fengi aukin
völd og kæmi meðal annars að
baráttunni gegn spillingu í
öryggissveitunum umdeildu. ■
Jasser Arafat, forseti Palestínu, er sagður reiðubúinn að afsala sér stjórn öryggissveita:
Lofar að draga úr völdum sínum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
UMBÓTA KRAFIST
Vopnaðir vígamenn úr píslarvætta-
sveitunum al-Aqsa voru meðal þúsunda
Palestínumanna sem kröfðust þess að
ráðist yrði gegn spillingu.
Mislukkað kappflug:
Áttavilltar
bréfdúfur
SVÍÞJÓÐ, AP Tæpri viku eftir að
2.000 bréfdúfum var sleppt í
Ljungby í Svíþjóð eru aðeins 500
þeirra komnar á leiðarenda í
Málmey. Ferðalagið tekur bréf-
dúfurnar alla jafna aðeins tvo
klukkutíma og skilja skipuleggj-
endur og áhugamenn ekkert í því
hvað varð af meirihluta dúfnanna.
Bréfdúfurnar áttu að taka þátt
í árlegu bréfdúfukapphlaupi sem
fór fram við bestu aðstæður. Í
ljósi þess að bréfdúfur eru frægar
fyrir að rata heim til sín kemur
það mjög á óvart hversu fáar skil-
uðu sér heim. „Ég hef unnið með
dúfur frá 1960 og hef aldrei upp-
lifað neitt þessu líkt,“ sagði Lars-
Aake Nilsson, félagi í bréfdúfu-
félagi Málmeyjar. ■
01 22.7.2004 22:07 Page 1