Fréttablaðið - 23.07.2004, Síða 35
GOLF Helena Árnadóttir, tvítug
stúlka frá Akureyri, sló öllum
bestu kvenkylfingum Íslands við
á fyrsta degi Íslandsmótsins í
höggleik á Garðavelli á Akranesi í
gær. Helena, sem hefur ekki tekið
þátt í Toyota-mótaröðinni á þessu
tímabili vegna meiðsla, vann
meistaramót Golfklúbbs Akureyr-
ar með miklum yfirburðum um
síðustu helgi og hélt uppteknum
hætti á fyrsta degi Íslandsmóts-
ins.
Hún lék holurnar átján á 71 höggi
eða einu höggi undir pari og hefur
fimm högga forystu á næstu kon-
ur sem eru Tinna Jóhannsdóttir
og Ólöf María Jónsdóttir úr Golf-
klúbbnum Keili og Herborg Arn-
ardóttir Golfklúbbi Reykjavíkur.
Íslandsmeistarinn frá því í fyrra,
Ragnhildur Sigurðardóttir úr
Golfklúbbi Reykjavíkur er síðan
einu höggi á eftir þeim þremur
ásamt Nínu Björk Geirsdóttur úr
Golfklúbbnum Kili og Þórdísi
Geirsdóttur úr Golfklúbbnum
Keili.
Helena sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að hún hefði
náð draumahring. „Það má eigin-
lega segja að allt hafi gengið upp í
dag. Völlurinn var frábær, flatirn-
ar æðislegar og ég spilaði mjög
stöðugt allan tímann,“sagði Hel-
ena sem er, eins og fram kemur
hér að ofan, nýstigin upp úr
meiðslum.
Hún sagðist ekki vera farin að
hugsa mikið um sigur á mótinu
enda væri það fullsnemmt en við-
urkenndi þó að þessi árangur
væri vonum framar og gefur
henni byr undir báða vængi í
framhaldinu. „Ég ætla að halda
rónni. Auðvitað er pressa á mér
en það er aðallega pressa sem ég
set á sjálfa mig. Það eru þrír
hringir eftir og því miður hefur
enginn verið krýndur sem sigur-
vegari eftir fyrsta hring,“ sagði
Helena.
Birgir Leifur Hafþórsson úr
Golfklúbbi Kópavogs og Garða-
bæjar, sem bar sigur úr býtum á
Íslandsmótinu í höggleik í Vest-
mannaeyjum í fyrra, hefur for-
ystu í karlaflokki eftir fyrsta dag.
Hann lék holurnar átján á 68
höggum eða fjórum höggum undir
pari, einu höggi minna en Örn
Ævar Hjartarson úr Golfklúbbi
Suðurnesja. Ólafur Már Sigurðs-
son úr Golfklúbbnum Keili og
Rúnar Óli Einarsson úr Golf-
klúbbi Suðurnesja eru þremur
höggum á eftir Birgi Leif.
Þetta er frábær spilamennska
hjá Birgi Leifi enda setti hann
nýtt vallarmet á sínum gamla
heimavelli. Birgir Leifur hefur
unnið Íslandsmótið í golfi tvö
síðustu skiptin sem hann hefur
tekið þátt en hann vann 2003 og
1996.
oskar@frettabladid.is
26 23. júlí 2004 FÖSTUDAGUR
Höfum opnað glæsilega
verslun á besta stað!
Meiriháttar úrval af sexý fatnaði og
skóm auk allra hinna ómissandi
hjálpartækja ástarlífsins.
Sjón er sögu ríkari!
LÍTTU VIÐ
OG SJÁÐU EITTHVAÐ
SEM EKKI HEFUR SÉST
Á ÍSLANDI ÁÐUR!
Verið velkomin á Frakkastíg 8.
Sími í verslun 552 4240
Ath. Aðeins fyrir 18 ára og eldri.
SPJALLAÐU BEINT - 905 2030
STELPURNAR ERU VIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN - 299.90 KR. MÍNÚTAN
Op
ið
sun
-fim
kl.
12-
24
Opið fös-lau
kl. 12-04
Helena og Birgir Leifur byrja
best á Íslandsmótinu í golfi
Tvítug Akureyrarmær skaut helstu kvenkylfingum landsins ref fyrir rass á fyrsta degi Íslands-
mótsins í höggleik á Akranesi. Birgir Leifur Hafþórsson byrjaði mótið á vallarmeti.
HELENA ÁRNADÓTTIR EINBEITT Akureyrarmærin Helena Árnadóttir spilaði frábærlega
fyrsta daginn á Akranesi og hefur fimm högga forystu í kvennaflokki.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
20 21 22 23 24 25 26
Föstudagur
JÚLÍ
■ ■ LEIKIR
14.00 Danmörk og Svíþjóð
mætast á Sauðárkróksvelli í A-riðli
NM U-21 árs landsliðs kvenna í
fótbolta.
14.00 Bandaríkin og Finnland
mætast á Dalvíkurvelli í B-riðli NM
U-21 árs landsliðs kvenna í
fótbolta.
16.30 Ísland og England mætast á
Sauðárkróksvelli í A-riðli NM U-21
árs landsliðs kvenna í fótbolta.
16.30 Noregur og Þýskaland
mætast á Akureyrarvelli í B-riðli
NM U-21 árs landsliðs kvenna í
fótbolta.
20.00 Völsungur og Breiðablik
mætast á Húsavíkurvelli í 1. deild
karla í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
18.35 Trans World Sport á Sýn.
Íþróttir um allan heim.
19.30 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
20.00 Motorworld á Sýn. Allt það
stærsta og besta í akstursíþrótta-
heiminum.
20.30 Suður-Ameríkubikarinn á
Sýn. Leiðin í úrslitaleik
keppninnar.
21.00 Heimsbikarinn í torfæru á
Sýn. Sýnt frá tveimur síðustu
mótum heimsbikarins í torfæru
sem fram fóru um síðustu helgi.
21.30 Landsmótið í golfi 2004 á
Sýn. Samantekt frá öðrum degi
Íslandsmótsins í golfi á Garðavelli
á Akranesi.
23.25 Gullmót í frjálsum íþróttum
á RÚV. Útsending frá því fyrr um
kvöldið.
Æfingahópur Guðmundar Guðmundssonar minnkar:
Logi er hættur
með landsliðinu
HANDBOLTI Hinn 22 ára gamli Logi
Geirsson, sem lék með FH-ingum
á síðasta tímabili og spilar með
þýska stórliðinu Lemgo á kom-
andi tímabili, hefur ákveðið að
hætta að æfa með landsliðinu sem
undirbýr sig nú af kappi fyrir
Ólympíuleikana í Aþenu.
Logi tilkynnti Guðmundi Guð-
mundssyni landsliðsþjálfara þetta
á þriðjudaginn, daginn eftir að lið-
ið kom frá Ungverjalandi þar sem
það lék tvo vináttulandsleiki. Logi
var ekki valinn í hópinn sem fór
til Ungverjalands og var einn
þriggja leikmanna sem sat eftir
heima en auk hans voru Patrekur
Jóhannesson og Vignir Svavars-
son.
Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari staðfesti í sam-
tali við Fréttablaðið í gær að Logi
væri hættur en vildi að öðru leyti
lítið tjá sig um málið. Hann sagði
þó að þetta væri hans val og að
enginn væri þvingaður til að æfa
með landsliðinu. Guðmundur neit-
aði því staðfastlega að ósætti
hefði verið á milli hans og Loga
eða leikmannanna og Loga og
vildi ekki gefa neinar skýringar á
því að Logi hætti. „Þú verður að
spyrja hann að því,“ sagði Guð-
mundur aðspurður.
Logi sagði í samtali við Frétta-
blaðið í gær að hann væri hættur í
bili og ástæðan fyrir því myndi
ekki fara í blöðin. „Þetta er á milli
mín og þjálfarans og þannig verð-
ur það,“ sagði Logi og bætti við að
hann hefði ekkert upp á Guðmund
á klaga;
„Hann er toppkarl,“ sagði Logi
sem heldur út til Þýskalands á
sunnudaginn þar sem hann hefur
nýtt líf sem atvinnumaður hjá
þýska stórliðinu Lemgo. ■
LOGI GEIRSSON
Hættur að æfa með landsliðinu af
persónulegum ástæðum.
STAÐAN Í KVENNAFLOKKI
Helena Árnadóttir, GA 71
Tinna Jóhannsdóttir, GK 76
Ólöf María Jónsdóttir, GK 76
Herborg Arnardóttir, GR 76
Ragnhildur Sigurðardóttir, GR 77
Nína Björk Geirsdóttir, GKJ 77
Þórdís Geirsdóttir, GK 77
Helga Rut Svanbergsdóttir, GKJ 78
Anna Jódís Sigurbergsdóttir, GK 81
Karlotta Einarsdóttir, NK 82
Katrín Dögg Hilmarsdóttir, GKJ 82
STAÐAN Í KARLAFLOKKI
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG 68
Örn Ævar Hjartarson, GS 69
Ólafur Már Sigurðsson, GK 71
Rúnar Óli Einarsson, GS 71
Helgi Birkir Þórisson, GK 72
Sigmundur Einar Másson, GKG 72
Ingi Rúnar Gíslason, GKJ 73
Ólafur Þór Ágústsson, GK 73
Stefán Orri Ólafsson, GL 73
Davíð Jónsson, GS 73
34-35 (26-27) Sport 22.7.2004 20:34 Page 2