Tíminn - 10.03.1973, Blaðsíða 28

Tíminn - 10.03.1973, Blaðsíða 28
* "' Laugardagur 10. marz 1973 - MERKIÐ, SEM GLEÐUR HHtumst i kaupfélaginu Gistió á góóum kjörurn #MnraL# — 1 n u .. ............. .................... - ^ SGOÐI LT ^Jk.fyriryóimn mtti $ KJÖTIÐKADARSTÖD SAHBAMDSIHS :*«*•«» Lo6nuflutningaskipi& I Sundahöfn. AAánaðarsigling með loðnuna til Japan KJ, Reykjavík. — 1 gær var fjögurra mánaöa gamalt japanskt frystiskip aö lesta frysta loönu I Sundahöfn I Reykjavlk. Skipið er rilmlega fjögur þús. tonn og kom hingaö frá Banda- rikjunum. Lagöi skipiö upp I ferö sina skömmu fyrir jól frá Tokyo, þaöan sem leiöin lá til Astraliu I sumar og sól. Hingaö kom svo skipiö á fimmtudaginn. Auk þess aö lesta I Reykjavlk, lestar skipiö á Akranesi, I Hafnarfiröi og Keflavlk. Héöan fer skipiö til Tokyo, og bjóst skipstjórinn ekki viö aö veröa meira en 30 daga á leiöinni þangaö, enda er skipiö gangmikiö, þvl þaö er meö sjö þúsund hestafla vél og gengur 18 hnúta. Skipstj. heitir Yutaka Fukuoka, og auk hans eru 22 i áhöfn. Skipiö heitir Yukizono Maru. Atkvæðagreiðslan á N-írlandi: Mótmælendur kusu að vera áfram brezkir þegnar NTB, Belfast — Mikill meirihluti íbúa N-irlands hefur að þvi er virðist greitt atkvæði áframhaldandi sambandi við Stóra Bret- land i kosningunum á fimmtudag. Atkvæöatalningu var ekki lokiö siödegis I gær, en ljóst virtist aö yfir 50% þeirra, sem kosningarétt höföu,hafi kosiö aö N-írland yröi áfram hluti af Bretlandi. Kaþólskir á N-lrlandi, um þriöj ungur' Ibúanna, hlýddu hvatn- ingu leiötoga sinna um aö kjósa ekki. Kosningaþátttaka mót- mælenda var hinsvegar óvenju- mikil. I mörgum kjördæmum kusu 80-90%. Kaþólskir stjórnmálaleiðtogar hafa boriö fram ákærur um kosn- ingasvindl, og á blaöamanna- fundi á staönum, þar sem at- kvæöin voru talin utan við Belfast, var staöfest.aö vart heföi oröiö misferlis. Fulltrúar verkamannaflokks- ins I hópnum, sem neðri deild brezka þingsins sendi til N-ír- lands til aö fylgjast meö kosn- ingunum, sögöust á ýmsum kjör- stööum hafa séö félaga úr stjórn- málaflokki mótmælenda, sem er fylgjandi tengslum viö Bretland, inni I kjördeilum, þar sem at- kvæöaseðlar voru afhentir. Slikt atferli striðir gegn brezku kosn- ingalögunum. Ihaldsamari fulltrúar úr sendi- nefndinni töldu þó ekki, að þetta heföi haft nein áhrif á úrslit kosn- inganna. Atta sprengjumanna sluppu vegna umferðartafa NTB, London — Lundúna- lögreglan hélt i gær áfram leit að fólki, sem hugsazt gæti.að teldist til skæru- liðahópa úr Irska lýðveldis- hernum, sem eftir öllum sólarmerkjum að dæma stendur að baki spreng- ingunum í London i fyrra- dag, en einn maður lézt og 243 slösuðust af völdum þeirra. Lundúnabúar hafa ekki veriö lostnir þvillkri skelfingu og þessar sprengingar ollu slöan I slöustu heimsstyrjöld. Þúsundir manna þustu úr á götur I ofboði. Nú er krafizt róttækra aögeröa gegn skæruliöum. Frá Lýöveldishernum I Belfast berast þær fregniijaö 18 manns úr hinum róttæka armi hreyfingar- innar hafi komiö fyrir tlma- sprengjunum I bllunum I London. Sömu heimildir hermaaö átta úr hópnum hafi komizt aftur til N- Irlands, en ei hinir 10 er hafi tafizt vegna umferöartafa af völdum verkfallanna og þess vegna veriö handteknir á Heathrow flugvelli skömmu fyrir brottför. Yfirstjórn hins róttæka arms Irska lýðveldishersins hefur ekki sent frá sér neina yfirlýsingu. Og hvorki lögreglan né brezka rikis- stjórnin hafa sakaö Lýöveldis- herinn opinberlega um aö hafa staöið aö baki sprengingunum. Sjö menn og þrjár konur voru handtekin á Heathrowflugvelli NTB-Buenos Aires. Kosningabar- áttunni fyrir fyrstu forsetakosn- ingar, sem fram fara I Argentinu I 10 ár, lauk meö allmörgum al- mennum fundum, þar sem fram- bjóöendurnir nlu aö tölu héidu ræöur. A sunnudag ganga þær 14 milljónir manna, sem kosninga- rétt hafa, aö kjörboröinu. í fyrra ákváöu herforingjarnir, sem hafa stjórnaö landinu sem einræöisherrar I sjö ár, að fá fólkinu valdiö I hendur á ný. Aðeins tveir frambjóöenda hafa möguleika á aö fá meirihluta atkvæöa um helgina. Það eru Hecotr Campora úr flokki Peronista og Richardo Balbin úr flokki róttækra. Ef hvorugur þeirra nær hreinum meirihluta atkvæöa I kosningunum, veröur kosiö á ný 8. aprll, og mega þá aðeins bjóöa sig fram þeir frambjóöendur, siödegis á fimmtudag. Tvær af konunum eru sagðar systur úr borgarhluta I Belfast, þar sem Lýðveldisherinn á mikil ítök. Faðir þeirra hefur lengi veriö félagi I Irska lýðveldishernum. sem fá 30% atkvæða eða meira á sunnudag. A sunnudag veröa einnig kosnir fulltrúar á þjóðþing og fylkisþing, landstjórar fylkja, borgarstjórar og bæjarfulltrúar. Núverandi forseti Argentlnu, Alejandro Agustin Lanusse, hefur lofað að láta þjóökjörinn fram- bjóðanda taka viö embætti slnu 25. mai I vor,hvar úr flokki sem hann verður. Hernaöarleiötogar eru mjög andvlgir Peronistum, en samt á þetta einnig við um frambjóö- endur, sem styöja fyrrverandi forseta Juan Peron, sem steypt var af stóli 1955. Hugsanlegt er aö Hecotr Peron, sem er 64 ára, og einn af áköfustu stuðnings- mönnum Perons, fái hreinan meirihluta I kosningunum. Yfir 100.000 manns komu á kosninga- fund, þar sem Campora talaöi þrátt fyrir heillirigningu. Herforingjastjórn að Ijúka i Argentínu Mikil loðnuveiði í gær: Börkur NK fékk 900 lestir í einni veiðiferð Klp .Reykjavlk — Frá miönætti og þar til klukkan sex I gær, höföu 32 skip tilkynnt um afla til loönulöndunarnefndar, samtals 6570 lestir. Höföu skipin fengiö þennan afla á tveim veiöi- svæöum. Er annaö svæöiö út af Jökli en hitt á milli Ingólfshöföa og Dyrhólaeyjar. Börkur NK tilkynnti klukkan sex I gær um mesta afla, sem eitt skip hefur fengiö I einni veiðiferö i þessari hrotu, eöa 900 lestir. Fékk Börkur þann afla fyrir sunnan land og sigldi meö hann til Neskaupstaðar. I gærkveldi var ekkert þróar- rýmilaust á Faxaflóahöfnum, en i dag er reiknað meö aö eitthvað losni I Reykjavik, Grindavik og Hafnarfiröi. Nokkur skip, sem fengu afla út af Jökli i gær, sigldu meö hann til Siglufjarðar, og vitað var um eitt skip, Hinrik, sem ætlaöi aö sigla með 190 lestir til Bolungavikur, þar sem fyrir- hugaö var aö selja aflann i beitu. 1 gær var vitaö um fleiri skip, en þau sem höföu þá þegar til- kynnt komu sina, sem höföu fengiö nokkurn afla, en ekki látiö loönulöndunarnefnd vita hvaö hann væri mikill. Var þá von á skeytum frá þeim á hverri stundu. Þessi skip höföu tilkynnt um afla frá miönætti og til kl. 18.00 i gær: Keflvikingur 220 lestir, Óskar Halldórsson 320, Sæberg 260, Dagfari 220, Gullberg VE 140, Huginn 2. 100, Höfrungur 3. 260, Hinrik 190 Seley 260. Ársæll Sigurösson 190, Náttfari 230, Fífill 350, Albert 290, Guðrún 160, Arni Magnússon 220, Gunnar Jónsson 150, Helga 2. 270, Halkion 230, Vlöir 240, Surtsey 120, Hilmir KE 240, Gullberg NK 230, Gissur hviti 270, Asver VE 240, Skinney 220, Hrafn Sveinbjarnarson 240, Pétur Jónsson 360, Sæberg 150 og Börkur NK 900 lestir. Olof Palme forsætisráöherra Svíþjóöar kom til tslands I gærkvöldi, en aöalerindiö hingaö var aö sitja árshátlð Alþýöuflokksfélags Reykjavlkur, sem var I gærkvöldi. 1 dag var ráögert,aö Palme færi til Vest- mannaeyja til aö kynna sér af eigin raun ástandiö á Heimaey. Myndin var tekin á Hótel Sögu af sænsku forsætisráðherrahjónunum og Gylfa Þ. Gislasyni formanni Alþýöuflokksins og frú.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.