Tíminn - 01.04.1973, Blaðsíða 1
AlþýÖu-
bankínn
10-20 ÞÚSUND MANNS Á SKÍÐ-
UM í GÓÐVIÐRI Á SUNNUDÖGUM
77. tölublað — Sunnudagur 1. april — 57. árgangur
„Hótel Loftleiðir býður gestum
slnum að velja á mtlli 217 herbergja
með 434 rúmun — en gestum
standa llka Ibúðir til boða.
Allur búnaður mlðast vlð strangar
kröfur vandlátra.
LOFTLEIOAGESTUM LIÐUR VEL.
ÞEGAR svo hittist á, aO snjór er
yfir allt á fögrum sunnudegi aö
vetrariagi, heldurfleira fólk út úr
Reykjavik heldur en aOra daga
ársins, nema þá í sambandi viO
verzlunarmannaheigina. Á
slikum degi fara tiu til tuttugu
þúsundir manna, eöa jafnvel þar
yfir, á sklöi, og er þá 'taliö meö
fólk af Seltjarnarnesi, úr Kópa-
vogi. Garöarhreppi og Hafnar-
firöi.
Meginstraumurinn fer Hellis
heiöarveginn, og fólkið dreifist á
svæðið frá Lögbergi austur yfir
skiðaskálann I Hveradölum. Tvö
iþróttafélög, 1R og Ármann hafa
meginstöðvar sinar I Bláfjöllum,
og á austasta hluta skiðasvæöis-
ins kemur fólk austan yfir, úr
Hveragerði og frá Selfossi.
Nokkur hlutinn leggur leið sina
upp Mosfellsdal, þvi að KR,
tþróttafélag kvenna og ung-
templarastúkan Hrönn hafa
bækistöðvar sinar i Skálafelli og
þar i grennd.
Gera má ráðfyrirað tvö þúsund
og fimm hundruð til fimm þúsund
bilar séu ræstir til skiðaferðar á
slikum degi. íþróttafélögin, sem
nefnd hafa verið, sem og Fram og
Skiðafélag Reykjavikur, munu
yfirleitt; hafa i förum stóra bila,
en i fjölda einkabfla eru kannski
aðeins tveir menn. A slikum degi
myndast þvi geysimiklar bila-
lestir á Heillisheiðarveginum, svo
að kalla verður á vettvang margt
lögreglumanna til þess að stjórna
umferðinni og koma i veg fyrir,
aðalltlendiieinni bendu. Eigi að
siöur verður tafsamt að komast
heim á kvöldin, og er augljós þörf
Myndin var tekin, er skipbrotsmenn af brezka togaranum St. Chad
komu I land á Isafiröi á föstudagskvöldiö. (Tímamynd G.A.)
15 mánaða íslendingur
kvaddur í sænska herinn
Þaö þýöir llklega ekkert aö
ergja sig yfir þessu .
Og þó — kannski er bezt aö
losa sig við draslið.
Þannig eru bllaraöirnar viö skíöaskálann I Hveradölum, þegar snjór er góður og vel víðrar um helgar. —Tfmamynd Gunnar
á þvi, að gerður verður ' fjögurra
akreina vegur á Hellisheiði,
þegar fólki fjölgar á þessu svæði,
ef skiðaferðir verða jafnmikið
stundaðar og nú er orðið. Einnig
er það til mikils baga, hve
vegurinn i Bláfjöll er lágur.
Þannig var hann ófær I snjóunum
i vetur.
HERNAÐARYFIRVÖLD láta
helzt enga bráð sér úr
greipum ganga. Börnin eru
meira að segja ekki fyrr fædd
er fariö er aö hugsa fyrir þvl
að koma þeim inni kerfiö.
Dæmi um það er islenzkur
drengur I Svlþjóö, sonur al-
islenzkra foreldra, sem bæöi
eiga lögheimili f Reykjavik.
Fimmtán mánaöa gamall
fékk hann tilkynninguu um
þaö, aö hann ætti aö koma I
herþjónustu, ásamt skildi og
keðju, er hann átti aö bera um
hálsinn, þegar hann kæmi til
skráningar I herinn. Þaö er
ekkiráönema i tima sé tekið!
Efst á annarri hlið
skjaldarins eru þrjár kórónur,
og þar undir nafnnúmer
drengsins. Þar neðan við eru
tvær rifur um skjöldinn nær
þveran. Siðan er nafnnúmerið
endurtekið, fylgir þar neð nafn
barnsins og fæðingarstaður,
ásamt ártalinu, er þvi var
sendur skjöldurinn. A bak-
hliðinni er áminning um að
geyma þennan skjöld vand-
lega og setja ekki á hann blóð-
flokksmerki að eigin frum-
kvæði, þvi aö það geti haft i för
með sér lifshættu, ef mistök
verða. Neðst er kringlótt gat á
skildinum.
Alit er þetta með ráðum gert
eins og nærri má geta. Fari
svo, að hlutaðeigandi ' aðili
falli meðan hann gegnir her-
þjónustu, er skjöldurinn
brotinn um þvert um aflöngu
rifurnar. Efri hlutinner látinn
hanga i keöju um hálsinn á
likinu, en nagli rekinn gegn
um gatið á neðri hlutanum og
hann negldur á kistuna, svo
að enginn ruglingur verði.
Það er snemma farið að
hugsa fyrir fallbyssufóðrinu,
jafnvel I landi eins og Sviþjóð,
þar sem friðar hefur verið
betur gætt en annars staöar i
veröldinni — svo vel, að Sviar
hafa aldrei sent menn á vig-
völl i sem næst hundrað og
sextiu ár. Eigi að siður mun
mörgum foreldrum þykja
svona skjöldur heldur óvið-
kunnanleg sending til barns,
sem er að byrja að vappa um
gólf, en ef til vill gildir það þó
alveg sérstaklega um islenzka
foreldra, sem engin kynni
hafa haft af kvöð á borð við
herþjónustu, og enga vel-
þóknun á vopnaburði og her-
mennsku.
»-■ -
•rVS1#* » av:
, 7 . 't *
i ,
■ ? i >
' f
1
iu n
SKIPSTJORINN
Á ST. CHAD
KOM EKKI í LAND
KJ—Reykjavfk. — Brezku skip-
brotsmennirnir af St. Chad komu
til Reykjavikur i gærmorgun meö
flugvél frá Flugfélagi tslands,
Skipstjóri togarans kom ekki I
land á isafiröi I fyrradag, er aö-
stoöarskipið Othello kom þangab
meö skipbrotsmennina.
Skipbrotsmennirnir munu
halda flugleiðis til Bretlands i
dag.
Mikið dimmviðri var á fyrir
vestan i gærmorgun, og höfðu
bátar frá ísafirði ekki séð til tog-
arans á strandstaðnum.
Einhverjir skipverjar togarans
létu hafa það eftir sér, að
tsfiröingar heföu sent þeim langt
nef við komuna til Isafjarðar, en
viðstaddir tslendingar kannast
ekki við neitt slikt. Ekki varð
heldur vart við að yfirvöld reyndu
að hafa tal af sjómönnunum,
heldur gengu þeir óáreittir i bil-
ana, sem fluttu þá á Herinn,þar
sem þeirgistu.