Tíminn - 01.04.1973, Blaðsíða 19

Tíminn - 01.04.1973, Blaðsíða 19
Sunnudagur 1. april. 1973 TÍMINN 19 Ctgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson, Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaðs Timans). Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Bankastræti 7 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsinga- simi 19523. Aðrar skrifstofur: simi 18300. Askriftagjaid 300 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 18 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. .____________________________________________ Staðreyndirnar tala I upplýsingagreinargerð nr. 5 um landhelgis- málið, sem Hannes Jónsson, blaðafulltrúi rikisstjórnarinnar hefur nýlega sent frá sér, eru færðar sönnur á það með tilvitnun i skýrslur og tölur landbúnaðar- og fiskveiði- ráðuneytisins brezka, að brezkur sjávarút- vegur er langt frá þvi að vera eins háður veiðum við Islandsstrendur og á fjarlægum miðum, sem haldið hefur verið fram af brezkum málflytjendum i fiskveiðideilunni við ísland. Skv. tölum brezka ráðuneytisins kemur i ljós, að meira en helmingur af bolfiskafla Breta kemur af nálægum miðum, sem brezki strandveiðiflotinn aflar. Árið 1969 var hlutur hans i heildarafla Breta af bolfiski 43.5%, 1970 48.2% Og 1971 55.1%. Tölur ráðuney tisins hrekja einnig þær firrur, sem felast i þeim málflutningi, að brezkur sjávarútvegur sé og hafi verið mjög háður íslandsmiðum. Aðeins 16.1% af heildarbolfisk- afla Breta kom af íslandsmiðum 1969, 19.5% 1970 og 25.3% 1971. Hlutfallsleg aflalaukning Breta á Islandsmiðum frá 1969 til 1971 er 55.6% og byggist á aukinni sókn Breta á Islandsmið. Á sama tima minnkaði aflahlutfall Breta i Barentshafi um 56%.Þannig kom 17.8% af heildarafla Breta af bolfiski frá Barentshafi árið 1969 en aðeins 7.9% 1971. Af þessum tölum má sjá, að veiðisókn Breta hefur að undanförnu verið beint frá Barents- hafi til íslands. Ástæðan er sú, að búið er að eyðileggja miðin i Barentshafi með ofveiði og smáfiskadrápi. Ef ekkert er gert til þess að fyrirbyggja ofveiði á miðunum við Island verður afleiðing ofveiðinnar hin sama og i Barentshafi. Efnahagslegar afleiðingar ofveiði við ísland valda Islendingum miklu meiri skaða en Bretum. Hvernig stendur þá á þessari hörðu andstöðu Breta gegn ábyrgum aðgerðum íslendinga, sem eru að reyna að fyrirbyggja að örlög tslandsmiða verði hin sömu og fiskimiðanna i Barentshafi? Ástæðan er sú, að brezkir togaraútgerðar- menn, sem gera út á fjarlæg mið, eru vel skipulagðir til þess m.a. að hafa áhrif á brezku rikisstjórnina. Þeim hefur tekizt að fá hana til þess að fylgja skammsýnni fiskveiðistefnu, sem er i raun og veru andstæð beztu hags- munum Breta. Hins vegar eru eigendur brezka strandveiði- flotans, sem aflar meira en helmings neyzlu- fisks Breta, margir ekki eins fjármagnsrikir, dreifðir og óskipulagðir og hafa þar af leiðandi miklu minni pólitisk áhrif á rikisstjórn íhalds- flokksins. Það þarf engum blöðum um það að fletta, að hagsmunum strandveiðiflotans, svo og brezkum heildarhagsmunum, mundi bezt þjónað með þvi að brezk stjórnvöld fylgdu þeirri þróun, sem nú er að móta ný og frjáls- lyndari alþjóðleg hafréttarlög, og færa fisk- veiðilögsöguna umhverfis Bretland út að sanngjörnum mörkum á sama hátt og ísland hefur þegar gert. Er vonandi að brezk stjórnvöld fari að grilla i gegnum áróður brezkra togaraeigenda og sjá málin i réttu ljósi. —TK Grein úr The Economist: Bretar senda 1100 sölumenn til Kína Harðnandi samkeppni um verzlun við Kínverja BRETAR senda 1100 sölumenn til Kina til þess að koma þar upp stærstu tækni- sýningu, sem vestrænir menn hafa haldið þar eystra. Þessi skyndiárás leiðir efalaust til nokkurra pantana, en árang- urinn verður sjálfsagt hverf- andi litill miðað við stærð Kina og vaxandi velmegun þjóðar- innar. Kinverjar kaupa ekki annað en það eitt, sem þeim er bráð- nauðsynlegt. Þeir snúa sér efalaust einkum að þeim sviðum, þar sem þeim er sjálfum tæknilega áfátt, svo sem flugi og öðrum sam- göngum og umbúðum, þó að undarlegt kunni að virðast. Mörg tæki verða sjálfsagt keypt til þess eins að likja eftir þeim, og margt hefðu þeir áreiðanlega fengið fyrir ákaf- lega lágt verð, ef brezka rikis- stjórnin hefði ekki fallizt á að greiða meginhluta kostnaðar við heimsendingu óseldra sýningarmuna. Erlendum mönnum er yfirleitt ráðlagt að reyna ekki að prútta við Kin- verja, en þeir sýna aftur á móti litla miskunn i skiptum sinum við útlendinga. ENN hefir enginn komið auga á vænlegri leið að kin- verskum markaði en þá, sem Bretar fara með sýningu sinni. Þegar höfð er hliðsjón af stærð kinverska markaðarins ætti sala Breta þangað svo sannarlega að vera meiri en hún er, eða um 30 millj. sterlingspunda á ári. Kinverjum tókst fyrir tiu árum að komast á það stig að hafa i sig og á, og siðan hafa þeir sigið jafnt og þétt fram úr vanþróaðri þjóðunum. Nú eru þeir orðnir vel haldnir i mat og klæðnaðurinn batnar stöðugt. Kinverskir verkamenn eru orðnir mun betur settir en starfsbræður þeirra i Indlandi, Afriku og jafnvel Braziliu. Þeir hafa ekki aðeins aukið reiðufé, heldur eiga flestir nokkurt sparifé (og rikiðgreiðir 3% i vexti af þvi). Vandi venjulegs Kinverja er ekki framar i þvi fólginn, að finna fé til að kaupa fyrir vörurnar, sem hann sér i verzlununum. Hann hefir féð en verzlanirnar hafa ekki vör- urnar. KÍNVERJAR greiða mikið fé fyrir skrautleg útvarpstæki, leikföng, skrautmuni, loð- kraga á kápur, albúm undir myndirnar, sem teknar eru á nýju myndavélarnar, sem allir vel megandi verkamenn kaupa. Þá fer einnig mikið fé fyrir sælgæti, ávexti, kvik- myndir og þvi um likt. 1 hinum stærri borgum er mikið um loðkápur og skraut- leg barnaföt, en úti á lands- byggðinni er ekki um margt að ræða, sem unnt er að kaupa fyrir lausaféð sitt. Laun eru að visu ekki há, en þau eru þó mun hærri en gerist i ná- grannalöndunum. Lágmarks- laun i Pakistan svara til sex sterlingspunda á mánuði og ung kinversk stúlka fær jafn há laun undir eins og hún byrjar störf i vefnaðarverk- smiðju. Fáir kinverskir karl- menn hafa minna en sem svarar tiu sterlingspundum á mánuði, en reyndir skrif- stofumenn hafa tvisvar til fjórum sinnum hærri laun. Fjölskylda, þar sem foreldr- ar vinna bæði úti og fjögur upp komin börn, getur haft i mánaðarlaun sem svarar 100 sterlingspundum, en minna en helmingur þessara tekna fer Maó til greiðslu húsaleigu og mat- væla. KINVERJAR eru á öru framfaraskeiði. Allt, sem til þarf, er við hendina, allt frá kolum og oliu og te og kaffi, og auk þess þjálfað, agað og til- tölulega vel menntað vinnuafl. Tæknivæddi iðnaðurinn frá Vesturlöndum biður á dyra- hellunni með hattinn i hend- inni ef svo mætti segja. Hann er óðfús að leggja fram verk- smiðjur og þekkingu, sem þarf til nýtingar auðlindanna og bankar á Vesturlöndum eru reiðubúnir að leggja fram féð. En Kinverjar vilja ekki skulda og þvi verður ekkert úr samningum. Kinverjar hafa til að bera starf- og stjórnhæfni til risa- skrefs i framförum ef þeir væru reiðubúnir að veita við- töku þeim lánum, sem þeir gætu fengið á Vesturlöndum fyrirhafnarlaust, eða með simtali einu. En efnahags- stefna Mao hæfir hinum háa aldri hans. Hann vill ekki taka lán erlendis og þess vegna mega Kinverjar ekki flytja inn annað eða meira en það, sem þeir haf aflað gjaldeyris til. Og það er satt að segja ekki mikið. ÚTFLUTNINGS- fram- leiðsla og verzlun Kinverja er allt annað en traust og af- kastamikil. Útflutningurinn nemur naumast meiru en sem svarar 800-900 milljónum sterlingspunda. Útflutnings- vörurnar eru einkum vefnað- arvara, fræolia, fryst kaninukjöt og eitt og annað úr jade. Fullur þriðjungur út- flutningsins fer um Hongkong og Japanir kaupa meira en nokkur önnur þjóð. Um átt- undi hluti útflutningsins fer til Afriku sem aðstoð i einhverri mynd. Kinverjar leggja litla rækt við útflutninginn og telja framleiðslu til útflutnings ekki markmið i sjálfu sér. Þeim þykir hann aðeins hentugur til þess að losna við það, sem er umfram heimanot, og engin trygging er fyrir markaði er- lendis fyrir þær vörur, sem seljast vel i Kina. Stundum tekst Kinverjum ekki að út- vega kaupendur erlendis eins og gleggst má sjá á enskum áletrunum á skyrtum og leik- föngum i verzlunum i Peking. Þetta er ekkert undrunar- efni þegar þess er gætt, að af greiðsla er mjög svo óáreiðan- leg og fáanlegt vörumagn ákaflega misjafnt, jafnvel þegar um er að ræða jafn gamla útflutningsvöru og te. Innflytjendur i öðrum löndum eru i standandi vandræðum þegar þeir þurfa að fást við nýjar vörutegundir eins og fryst kaninukjöt. Brezkir inn- flytjendur geta til dæmis átt kost á 10 þúsund smálestum i ár, en þegar þjóðin er komin á bragðið að ári er ef til vill ekki snefil að hafa — og engar skýringar gefnar. AÐFARIR Kinverja minna mjög á brezka framleiðendur á árunum upp úr 1950, og Kin- verjar eru farnir að hafa dá- litlar áhyggjur af þessu, eins og Bretar á sinni tið. Þeir hafa til dæmis tekið til greina kvart- anir um umbúðir og frágang útfluttrar vöru og báðu Breta að senda umbúðaverksmiðju á vörusýninguna i Peking. Hitt er svo annað mál, hvort þeim tekst að bæta um og auka áreiðanleika útflutningsins. En hvað sem öðru liður má allt eins gera ráð fyrir, að Kin- verjar taki þá og þegar for- ustu i fjöldaframleiðslu ýmiss konar smágerðra raftækja. Japanir hafa verið að missa sölumöguleika vegna verðsins og sama er að segja um ýmis lönd i suð-austur Asiu. Samtimis hafa Kinverjar hafið framleiðslu aragrúa transistortækja og margra annarra sviþaðra tækja. Ibúar Kina eru taldir 650-750 mill- jónir eða meira. Ef gert er ráð fyrir fimm manna fjölskyldu að meðaltali eru þær a.m.k. 130 milljónir og fjórar af fimm eiga transistortæki i það minnsta. Margar fjölskyldur hljóta að ráða yfir meira en einu tæki, ef marka má þann fjölda unglinga, sem ber með sér slikt tæki. Blómlegan iðnað þarf til þess að fram- leiða öll þessi tæki og rafhlöð- urnar i þau, og Kinverjar eru farnir að glima við gerð slikra sjónvarpstækja. ÞEGAR höfð er hliðsjón af þvi, hve erfitt getur verið að skipta við Kinverja, þarf kjarkgóðan innflytjanda til þess að leggja út i verzlun með tæki frá Kina að staðaldri, en sennilega verður slik tilraun gerð þar sem til mjög mikils er að vinna ef vel tekst til. Við- skipti við Kina verða ekki aukin nema með þvi einu að auka vörukaup þaðan og vist getur borgað sig að fá úr þvi skorið, hvað Kinverjar geta framleitt og selt i stórum stil annað en sinar gamalreyndu framleiðsluvörur. Miklum erfiðleikum veldur að komast yfir skrifstofu- stjórnarhindranirnar, sem Kinverjar leggja i götu er- lendra manna, jafnvel sinna beztu viðskiptavina. Pakistön- um hefir tekizt þetta og þeir geta komið ýmsu i kring I Peking, sem venjulegum út- lendingi væri gersamlega of- vaxið, enda starfrækja þeir einu flugferðirnar til borgr- innar frá hinum vestræna heimi. Pakistanir hafa verið full niu ár að koma á þessum greiðu tengslum og hver og einn, sem ætlar sér að hefjast handa nú, verður að vera við þvi búinn að þurfa að minnsta kosti ámóta undirbúnings- tima. En löng umsát getur svo sannarlega marg borgað sig, þegar gifurlegir framleiðslu- möguleikar Kinverja eru at- hugaðir á öðru leytinu og nálega takmarkalaus markaður fyrir hvað sem er þar I landi á hinu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.