Tíminn - 01.04.1973, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 1. aprll. 1973
Vegurinn
sem d að
breyta
Brasiiíu
Llfskjörin I Brasillu eru vlOa bágborin, og fólkiö gerir ekki miklar kröfur til hlbýla á okkar mælikvarða.
Myndin er frá þorpi viö Amazonfljótiö.
MENN
RENNA
AUGUNUM TIL
CHEVROLET NOVA
Bilar frá bandaríska
fyrirtækinu General
Motors hafa löngum
notið mikilla vinsælda
hér á landi sérstaklega
af gerðinni Chevrolet,
sem trúlega hvert
mannsbarn, sem á
annað borð veit hvað bill
er, hefur haft einhver
kynni af. Þar sem áhugi
á bandariskum bilum
hefur aukizt mjög eftir
gengisfellingarnar að
undanförnu, snérum við
okkur til umboðsmanna
Chverolet hér á landi.
Véladeildar StS Ármúla
3, og spurðum sölustjór-
ann Gunnar Jónasson að
þvi hvort ekki hafi verið
mikið spurt um þessa
tegund siðustu daga og
hvað hann gæti sagt
okkur um hana.
— „Jú því er ekki að neita, að
mikið hefur verið spurt um verð
og annað i sambandi við
ameriska bila að undanförnu og
þar sérstaklega um Chverolet
NOVA” sagði Gunnar. „Þessi bill
er liklegur til að veröa metsölu-
bíllinn hjá okkur i ár, enda er
hann skemmtilegur og verðið á
honum gott miðað við þann háa
gæðaflokk, sem hann er I.
Þennan bil er bæði hægt að fá
fjögra dyra og tveggja dyra og
með 6 eða 8 cyl. vél, eftir þvi sem
hver vill. Þá má velja um hvort
maður vill hann heldur beinskipt-
an eða sjálfskiptan og þeir eru
allir með vökvastýri og aflheml-
um.
Þessi bill er með styrktri
fjöðrun, sem hentar vel á okkar
vegum. Chevrolettinn var áður
með eins blaða fjöður, en er nú
kominn meðfjögurra blaða fjöður
og gefur það honum aukið gildi.
Þá er hann hár undir lægsta
punkt og er það einnig hentugt
fyrir okkar aðstæður.
öryggisútbúnaðurinn er
mikill og góður, en eins og allir
vita, þá er mikil áherzla lögö á
hann í bandarlskum bilaiðnaöi.
Ef ég á að benda á eitthvað nýtt i
þessum bíl, þá er það t.d. ný
tegund af öryggislæsingum á
huröum og sérstakan útbúnað,
sem er á bensintanknum, þannig
að það kviknar ekki i bensininu þó
bíllinn lendi i árekstri.
Sætisbygging og festingar eru
sérstaklega styrktar og í huröun-
um eru þverbitar, sem taka af
hliðarhögg, sem blllinn getur
oröið fyrir. öryggisbeltin eru af
fullkomnustu gerð og eru með
aðvörunarljósum í mælaborði.
Mælaboröið og miðjan á stýrinu
er klætt og stýriö sjálft er þannig,
að það leggst saman við högg.
Þá má geta þess að öryggis-
stuðarar eru á bilnum og startar-
inn er þannig útbúinn að ekki er
hægt að setja bilinn i gang nema
að stigið sé á kúplinguna og ekki
er heldur hægt að ná lyklinum úr,
nema að billinn sé f afturábak-
gir. Veitir þetta að sjálfsögðu
öryggi gegn þvi að menn gleymi
að skilja bilinn eftir i gir.
Rafkerfið i bilnum er 12 volta
og rafall (alternator) er með inn-
byggðum straumstilli. Þá er á
honum afturrúðublásari, höfuð-
púðar á framsætunum og einnig
klukka, útvarp og hátalari aftur i
en útvarpsloftnetið er innbyggt i
framrúðuna, en þar liggja finir
þræðir”.
— Hvað kostar svo svona
farartæki?
—„Verðið er frá 680 þúsundum,
það fer allt eftir þvi hvað menn
taka mikið af aukahlutum og eftir
þvi hvort menn taka Nova
fjögurra dyra, Nova tveggja
dyra, Nova Hatchback Coupé,
eða einhverja aðra gerð af
Novunni. Menn geta einnig valið
um 20 útiliti á bilinn og fjölda
innilita auk ýmissa aukahluta.
Nú eruð þið hjá Véladeild SIS
með fleiri tegundir. Hverjar eru
þær og hvernig gengur salan á
þeim?
„Jú við erum með t.d. tvær
evrópskar bilategundir, Opel og
Vauxhall og af ameriskum teg-
undum erum við einnig með
stærri gerðina af Chevrolet eins
og Malibu og Impala fyrir utan
Buick, Pontiack og Oldsmobile
auk konung bilanna, — ef maður
má nefna Cadillac þvi nafni.
Salan á þessum bilum gengur upp
og ofan, eins og hjá öðrum, sem
hafa með sölu á nýjum bilum að
gera hér á landi. Sumir dagar eru
góðir og aðrir dagar ekki. Sumir
vilja þessa tegund en aðrir ein-
hverja aðra gerð og svona má
lengi telja, enda er það ærið
margt, sem kemur tilgreina,
þegar menn kaupa sér bil og
sjálfsagt að athuga vel sinn gang
i þvi sem öðru” —klp—
MMriMtiriMF'IMMF’irOFiríMMnMVIMriMririMMMMMMFIMMMMMriri
lnliiilMtilMMMMMMMbiliilfcdMMMMMMMIiillíiaiíaiiilMMMtlMLiMMMMMIiaiíj
M
CmI
m
CmI
gjafavör- m
um úrgulli, silfri, pletti, tini o.fL £3
b«l
r*a
um. — Sendum gegn póstkröfu.
CmI
M
CmI
rn
C»«I
M
CmI
M
CmI
L*
£3 Vestmannaeyingar!
12 Steingrímur Benediktsson
12 gullsmiður
12 hefur fengið aðstöðu í
pi
GULLSMIÐAVERKSTÆÐI
ÓLAFS G. JÓSEFSSONAR
óðinsgötu 7 — Rafhahúsinu>
Sími 20-0-32
M
CmI
M
CmI
M
L*
MMP1M P1M MM P1P1MP1MM P1MMM
Trúlofunarhringar
Fjölbreytt úrval af"
im úrgulli, silfri,
Onnumst viðgerðir á skartgirp-
GULLSMÍÐAVERKSTÆÐI
ÓLAFS G. JÓSEFSSONAR
óðmsgötu 7 — Rafhahúsinu
P1P1P1P1P1P1P1P1P1P1P1P1P1PJMP1P1P1P1P1
CmIC»«ÍCmI Cm1CmIC»«)C«iI CmIC««I C*«IC«ilC«tlCf«IC««ÍC«tl bábtlbabJba
Auglýsingastofa Tímans er í Bankastræti 7
19523 ^18300