Tíminn - 01.04.1973, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Prinsessan á kappreiðum
Anna Bretaprinsessa var meöal
knapa, sem tóku þátt i kapp-
reiðunum á Crookham hesta-
sýningunni á Tweseldownskeið-
vellinum i Aldershot i Hamps-
hire i Englandi. Hún reið hesti,
sem nefndur hefur verið
Persian Holiday, eða Persneski
fridagurinn. Hér sjáið þið hann
stökkva yfir eina hindrunina,
sem var i vegi hans i kappreið-
um þessum. Eigandi hestsins er
vinur prinsessunnar, og ef til
vill væntanlegur eiginmaður, ef
dæma má af fréttum, Mark
Phillips liðsforingi.
Er eitthvað að klæðaburði Lisbetar?
Þessi kjóll er sagður hafa gert
útslagið, þegar sænska Afton-
bladet valdi Lisbet Palme for-
sætisráðherrafrú sem eina af tiu
verst klæddu konum i Sviþjóð.
Kannski hefur það einhver
áhrif, að kosningar fara i hönd,
og þetta val gæti haft einhver
áhrif á það, hvernig atkvæði
falla, Palme i vil, eður ei. En
„aumingja Palme” hugsaði
aöalritstjóri blaðsins, og ákvað
að breyta sjálfur vali kvenn-
anna, og setja Lill Lindfors i
staö forsætisráðherrafrúarinn-
ar á listann. Annarsernú liklegt,
aö Lisbet heföi ekki látið þessi
úrslit hafa mikil áhrif á sig, þvi
hún er von að segja, að klæðnað-
ur sé ekki það þýðingarmesta i
heiminum, og það mun satt
vera.
„Afsakið ... .parlez-vous
francais?”
rfhctome
MYatlCO
„Hafðu ekki áhyggjur út af manninum minum.
Hann er i fjallgöngu einhvers staðar langt i burtu.”
„betta skil ég ekki...samkvæmt
þessu, ættuð þér að hafa látizt
fyrir mörgum árum.”
DENNI
DÆMALAUSI
Er allt i lagi að óska sér ein-
hvers i jólagjöf núna, þótt enn
sé bara haust.