Tíminn - 01.04.1973, Side 33
Sunnudagur 1. aprll. 1973
TÍMINN
33
Gamla húsnæði Sigluness er að
verða alltof rúmlitið, og í vetur
hefur verið unnið að viðbyggingu
við það. Smiðaverkstæði vegna
nýsmiði er um það bil frágengið
og vinna við hreinlætisaðstöðu að
hefjast. Þá er allstór salur,
áfastur smiðaverkstæðinu,
kominn undir þak og tilbúinn til
innréttingar. Þessi salur á að
verða klúbbhús og aðalsamkomu-
staður æskulýðs Reykjavikur i
framtiðinni. Er ætlunin að búa
hann skemmtilega úr garði og
gera hann sem mest „kósi” og
huggulegan. Vonazt er til, að
hann komizt i gagnið i haust.
Haustnámskeiðin fjöl-
sóttari
A vegum Æskulýðsráðs
Reykjavikur eru kenndar fjöl-
margar tómstunda greinar i
gagnfræðaskólum borgarinnar i
vetur, eða alls milli 20 og 30. Má
þar nefna blak, bridge, föndur,
gitarkennslu, gömlu dansana,
hnýtingar, kvikmyndir og kvik-
myndagerð, leðurvinnu, perlu-
saum og plastvinnu, félagsmál og
fundarsköp, framsögnog leikiist,
myndlist, radióvinnu, smiða-
föndur, skák, lónlist og þjóðlög.
1 sambandi við skákkennsluna
má geta þess, að Æ.R. og Tafl-
félag Reykjavikur ákváðu i vetur
að hefja sérstakt skákstarf i
Breiðholti. Fyrsta æfingin var
raunar 17. marz s.1., en þá kom
Jón Kristinsson og tefldi fjöl-
tefli við þá, sem komu. Skák-
æfingarnar fara fram i anddyri
Breiðholtsskóla á laugardögum
kl. 13-16. Eru þær ætlaðar ungu
fólki á aldrinum 10-16 ára. Leið-
beinandi er Svavar Svavarsson.
Æskulýðsráð hafði allt að 70
leiðbeinendur á sinum snærum i
vetur við tómstundakennslu. Tvö
námskeið fara fram yfir vetur-
inn, annað fyrir jól og hitt eftir.
Hvort um sig stendur i um tvo
mánuði. Þátttaka i haustnám-
skeiðinu var allmiklu meiri
heldur en i vornámskeiðinu.
Námskeiðin fara fram i 14
skólum. 1 haust-námskeiðinu
voru alls 157 flokkari gangi, með
alls 1806 þátttakendur. Mest var
þátttakan i Vogaskóla, Réttar-
holtsskóla, Hliðaskóla og Álfta-
mýrarskóla, 200-230 unglingar. A
yfirstandandi vornámskeiði eru I
gangi 112 flokkar með 1196 þátt-
takendum. Veturinn 1972-1973
hafa þvi starfað alls 269 flokkar
og þátttakendur verið alls 3002.
Og þessi fjöldi skiptist eins og
fyrr segir niður á 14 gagnfræða-
skóla.
Hver skýringin er á mismunin-
um i þátttöku á haust- og vornám-
skeiðunum, er ekki gott að segja.
Ef til vill má skýra meiri þátttöku
á haustnámskeiðin út frá þvi, að
sumarstarfið sitji þá enn djúpt i
börnunum, og hins vegar leggist
skammdegið þrúgandi á þau,
þannig að þeim sé mikil þörf ein-
hvers að fást við utan hinna þurru
námsbóka. En þegar liður á
vetur, fara hin ýmsu próf að
dynja yfir „blessuð, saklaus
börnin”, svo að kraftar þeirra og
timi beinist nú meir að námsbók-
unum. Og með hækkandi sól fýsir
unglingana fremur að vera úti og
dunda sér en að sitja inni i loft-
lausum stofum við föndur.
Mikill áhugi gott
handbragð
Hver flokkur (skákkennsla,
leiklist, myndlist o.s.frv.) nýtur
leiðbeininga einu sinni i viku, tvo
tima i senn á eftirmiðdögum.
Hver flokkur fær þannig samtals
16 tima kennslu að jafnaði, þar
sem gert er ráð fyrir tveggja
mánaða námskeiðum. En hinar
ýmsu tómstundagreinar þarfnast
mismunandi langs tima til leið-
beininga. Þannig er ljósmynda-
iðjan afgreidd á 6 vikum, eða
samtals 12 timum.
Þeir skólar, sem okkur blaða-
mönnum voru sýndir, voru Hliða-
skóli, Hvassaleitisskóli og Alfta-
mýrarskóli. Ekki er ætlunin hér
að fara að lýsa þessari ferð frekar
eða þvi, sem fyrir augu bar, enda
skýra meðfylgjandi myndir það
bezt, en það er óhætt að segja, að
hvarvetna blasti við mjög mikil
ánægja og áhugi meðal ungling-
anna við hin ýmsu tómstunda-
störf. Og handbragðið virtist i
fjölmörgum tilfellum prýðilegt.
Æskulýðsráð Reykjavikur á
sannarlega heiður skilið fyrir
þetta framtak og ætti að meta það
að verðleikum.
— Stp
.:
Borðtennisnámskeiðin eru ein þau mest sóttu
(Timamyndir: G.E.)
Sungið glatt undir stjórn ölygs Richters.
Æfing á ævintýraleik i gangi
Leikæfing I Frikirkjuvegi 11
Simplicity
smóin
eru fyrir alla í
öllum stæróum
Það er oft erfitt að fá fatnað úr
þeim efnum sem þér helzt óskið
eftir. En vandinn er leystur með
Simplicity sniðunum, sem gera
yður kleift að hagnýta yður hið
fjölbreytta úrval efna, sem við
höfum á boðstólum.
1©; Vörumarkaðurínn hf. ARMÚLA 1A. SIMI 86113. REVKJAVIK
r- r
AFL HREYSTI LÍFSGLEÐI
□ HEILSUH/EKT ATLAS — æfingatlmi
& 10—15 mlnútur á dag. Kerfíð þarfnast
engra áhalda. Þetta er álitin bezta og
m fljótvirkaata aðferðin til að fá mikinn
ol vöðvastyrk, góða heiltu og fagran
llkamsvóat Arangunnn mun s>g
eftir vikutlma þjálfun.
□ LiKAMSR/EKT JOWETTS — leiðin til alhlifla ilkamsþjálfunar,
eftir heimsmeisterann f lyttingum og gllmu, George F. Jowett
Jowett er nokkuts konar áframhald af Atlas. Baekurnar kosta
200 kr. hvor,
Setjið kross við þá bók
(bækur), sem þið óskið að
fá senda Vinsamlegast
sendið greiðslu með pöntun
og sendið gjaldið í ábyrgð.
□ VASA-LEIKFIMITÆKI
— þjálfar allan likamann
á stuttum tlma, sérstak-
lega þjálfar þetta tmki:
brjóstifl, baklfl og hand-
leggsvöOvana (sjá meOf.
mynd). TsekiO er svo fyrir-
farOarlltifl, aO haegt er aO
hafa þaO I vasanum. T*k-
Í0 ásamt leiOarvlsi og
myndum kostar kr. 350,00.
SendiO nafn og helmlllsfang tll: „LlKAMSRÆKT”, pósthólf 1115,
Reykjavlk.
NAFN
HEIMILISFANG
YIÐ
SMÍÐUM
HRINGANA
SÍMI 24910
Tíminn er 40 síður
alla laugardaga og
sunnudaga. —
f Askriftarsíminn er
1-23-23