Fréttablaðið - 15.08.2004, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Áltrappa, 3 þrep
5078885 2.495
Verð áður 3.455
Áltrappa, 4 þrep
5078886 2.995
Verð áður 3.995
Áltrappa, 5 þrep
5078888 3.695
Verð áður 4.995
Áltrappa, 6 þrep
5078890 4.785
Verð áður 6.380
Áltrappa, 7 þrep
5078892 5.245
Verð áður 6.999
Áltrappa, 8 þrep
5078894 6.745
Verð áður 8.995
Sunnudagstilboð
Í kotinu
Þá erum við komin aftur í kotið,ekki það sama og áður en andinn
svipaður. Kotið hefur fært út kvíarn-
ar. Nú er það fjölmiðlakotið með
fólki sem hefur lært þáttagerð og
heillar meira en karlarnir áður með
sitt kotakjaftæði, veifandi tóbaks-
klútnum meðan eintenntar kerlingar
sötruðu molakaffi.
Þrír fjölmiðlaþættir bera af: Morg-
unþátturinn milli hálf átta og hálf
níu, Samfélagið í nærmynd og Kast-
ljósið. Allt á vegum ríkisins. Hver
þáttur hefur sinn stíl og sérstakar
manngerðir. Ein ber af í morgunút-
varpinu og fer á kostum í peningatali
karlmanna. Samfélagið fær aftur á
móti einkum til sín malandi fræði-
konur sem taka molakaffiskerlingum
fram í mærð og því að vera drjúg-
montnar yfir þekkingardóti sínu. Al-
gert mörkot er Kastljósið með besta
bræðinginn á stólunum. Það er sann-
kallað fjörkálfakot. Stjórnendur þess
sækjast eftir mönnum í stíl stór-
bænda og formanna sem fyrr á tíð
töldu sig vera yfir kotið hafna en litu
þó stundum inn til að láta ljós sitt
skína í fúkka- og soðningarlyktinni.
Furðulegt er að verða vitni að
afturhvarfi til andlegrar fortíðar
með nútímasniði þar sem ungt fólk
ræður, vel klætt og snyrt og eflaust
skynsamt. Engu að síður rennur
kotaeðlið í æðum og beljandi úr
munni þess. Væri ekki kappsmál
fyrir Kára í Íslenskri erfðagreiningu
að reyna að finna „erfðamengið“
fyrir samstofna malanda?
Í kotinu var og er mikið rætt um
peninga, hverjir hafi það gott, hverj-
ir ekki. Hverjir borgi skatta og
hverjir sleppa. Fyrr og nú borgar
stórbóndi og formaður lægri skatta
en kaupamaðurinn og vertíðar-
maðurinn, en kotakjaftæðið ræður
ekki fram úr óréttlætinu. Maður
heyrir gamla tóninn í valdinu sem
segir: Þegar allt kemur til alls greiða
tekjuháir meira en tekjulágir. Þeir
sanna það með tölum. Auk þess legg-
ja þeir sig í hættu við að skapa
vinnu, hætta fé sínu í verðbréf með
ótryggan ágóða.
Allt er í svo gamalkunnum, prest-
lega mildum tón og menn tárast yfir
gæsku auðmanna. Meðan gæskan
ræður hér gerir Kaninn loftárásir á
kirkjugarða Íraks, svo næg olía
verði til að snúa hjólunum kristnum
þjóðum í hag. ■
BAKÞANKAR
GUÐBERGS
BERGSSONAR