Tíminn - 08.07.1973, Page 3

Tíminn - 08.07.1973, Page 3
Sunnudagur 8. júlí 1973. TÍMINN 3 Ótal bækur hafa verið skrifaðar um fljúgandi diska - eða fljúgandi furðuhluti. Ein þeirra merkari er „Fljúgandi furðuhlutir yffr suðurhveli jarðar. Höfundur hennar er Michael Hervey. leika, sem ekki geta verið fram- leiddir af mönnum af okkar heimi” Dr. Walter Riedel, þýzkur eldflaugasérfræðingur. Nú er almennt viðurkennt, að ef til vil sé þröað lif á öðrum hnött- um. Hervey vitnar i fjölda þekktra manna um það efni og allir eru sammála bandariska Hugliðsforingjanum Kearn, þeg- ar hann segir, að möguleiki s4 á, að það lif sé löngu komið yfir okk- ar þróunarstig, bæði i tæknilegu og félagslegu tilliti. Prófessor Herman Oberth, sem starfað hefur með Werner von Braun við geimrannsóknir, geng- ur skrefi lengra. Hann segir: Ég tel, að úti i geimnum séu verur, sem hafa haft gætur á okkur i ald- ír. Þó að ekki séu nema 2% réttar af þeim frásögnum, sem til eru af fljúgandi diskum, verður það að nægja til að staðfesta, að þetta er engin vitleysa”. Prófessor Stuart Butler við há- skólann i Sydney fer ekki i laun- kofa með skoðanir sinar: „Það hljóta að vera viti bornar verur á öðrum byggjanlegum plánetum, það er eina rökrétta skýringin, sem til er. Ég vil þó ekki ganga svo langt, að segja, að þær séu skynsamari en við. Hvers vegna þarf jörðin endilega að vera upp- hafið eða endirinn á þróuninni? Það er alveg jafn sennilegt að við séum einhvers staðar i miðjunni. Þá eru lika aðrir komnir miklu lengra”. Sumt af þvi sem Hervey greinir frá i bók sinni, er ekki aðeins at- hyglisvert, heldur stórmerkilegt. t mai 1954 sáu til dæmis 11 her- menn og 17 aðrar manneskjur lýsandi vindillaga farartæki, sem rann hljóðlaust yfir úthverfi Sydney, i mikilli hæð. Tugir manna skýrðu frá þvi, að þeir hefðu séð dularfull ljós yfir Sydney aðfaranótt 10. janúar 1961. Hvorki flugherinn, veður- stofur né önnur yfirvöld gátu gert grein fyrir ljósum þessum. Fr. K Morgan i Lakemba sagði: — Þetta voru eins og stjörnur, sem færðust til á himninum. Fyrst sáust þær i norðri og færðust til suðurs, en siðast, þegar ég sá þær, voru þær á norðurleið aftur. Annar sjónarvottur segir: — Þetta kom i ljós hátt á himninum i vestri og það var eins og þetta væru mörg ljós, sem blikkuðu. Talsmaður flughersins i Sydney sagði, að engar flugvélar hefðu verið i loftinu um þetta leyti. Aðr- ar stöðvar höfðu sömu sögu að segja. Hinn 6. júni 1962, klukkan 11.20 tók fólk i Shalimar i Caroda eftir sex hlutum á heiðum himni. Fyrsti hluturinn var eins og glitr- andistjarna,sem hækkaði sig þar til hún hvarf. Annar hluturinn var silfurlit kúla, sem kom úr norðri, fór i hring og stóð svo kyrr i 10 sekúndur, en hvarf siðan i suður. Þessi hlutur var sá, sem sást bezt af þeim sex. Enginn vandi var að sjá, að hann var kúlulaga, þvi ekki var um neina arma eða vængi að ræða. Þá birtist þriðji hluturinn og fór sömu leið og hinn fyrsti. 1 sömu mund varð likt og' blossi á vesturhimninum og út frá honum féllu eins og glitrandi þræðir. Tveir hlutir voru þar i kring og hurfu upp á við. 15. júli 1965 sáu sex starfsmenn i stjórnturninum á flugvellinum i Canberra og tveir flugmenn hjá TAA dularfullan hlut, sem var mjög greinilegur i 40 minútur. Hluturinn var talinn vera i um 1500 metra hæð, 6-7 km. NA við flugvöllinn. Ekki er mögulegt að sjá nákvæmlega, hvaða lögun var á hlutnum, þvi birtan af honum var svo mikil. Ástralski flugherinn sendi upp vél til að athuga hlutinn, en þá hvarf hann hið bráðasta. Siðar kom i ljós, að fjöldi fólks hafði fylgst með þessu fyrirbæri. Einn stjörnufræðinganna við Mt. Stromlo-stöðina, sagði að engin stjörnufræðileg skýring væri til á þessu. Það gæti ekki hafa verið loftspeglun, til þess hafi allt of margir reyndir stjörnufræðingar séð það. Ekki gæti það heldur hafa verið veðurathugunarbelg- ur, til þess hafi það verið allt of lengi á sama stað. Þar sem aðeins mjög fáir hlutir væru sýnilegir um hábjartan dag, gæti þetta vel hafa verið eitthvað frá öðrum hnetti. Yfirmaður loftferðaeftirlitsins i Canberra, Lindeman, sagði, að hluturinn hefði verið vel sýnileg- ur berum augum, en jafnvel f kiki hefði ekki verið hægt að sjá lög- unina. Sólin glampaði á hlutnum og hann virtist úr málmi. Hann stóð kyrr i tuttugu minútur, en hvarf siðan. Þetta er staðfest af flugmönn- um. Einn þeirra var með mik- inn kiki, sem hægt er að sjá með þotur I 11—12 km. hæð, en hann gat þó ekki séð lögun hlutarins, en liturinn hafi verið málmgljáandi. Hins vegar hafi þetta alls ekki getað verið flugvél, þvi þær standa ekki kyrrar i langan tima. Hervey lýsir i bók sinni fjölda atburða, þar sem furðuhlutir hafa elt bila. Ungfrú B. Buchanan og förunautur hennar á nýársdag 1966 á leið yfir sléttuna frá Narra- bi tii Wee Was. Um kvöldið sáu þau lýsandi hvitan hlut, sem hag- aði sér eins og hann ætlaði að lenda. „Hann dýfði sér niður að jörð- inni og rann siðan nokkra metra áfram, en lyftist svo snögglega”, sagði ungfrú Buchanan, „Hann sveimaði i nokkra hringi, en endurtók þetta aftur. Fyrst héld- um við að þetta væri þyrla, en það fiaug allt of hratt, miklu hraðar en flugvél.” Hinn 13. janúar 1968 voru fjórir unglingar á leið i útilegu að Wallamotta-ströndinni, um 20 km. sunnan við Sydney, Þeir grófu rennu umhverfis tjaldið og meðan þeir voru að þvi, kom skært ljós upp yfir litla hæð við sjóndeildarhringinn. Það hreyfð- ist i sikk-sakk og hvarf siðan aftur niður fyrir hæðina. Þá kom það aftur i ljós bak við aðra hæð, miklu nær og nálgaðist og stækk- aði. Þá sáu drengirnir, að ljósin voru tvö, annað hvitt og hitt rautt. Þeim sýndist hluturinn, sem ljós- in voru á, vera eins og bjalla að lögun. Eftir þvi, sem hann færðist nær, lýstist umhverfiö upp, eins og beint væri á það sterkum köst- urum. Nú urðu drengirnir hræddir, en hættu við að hlaupa þvi hiuturinn nam staðar og ijósin slokknuðu. Siðan stóð hluturinn kyrr I um 70 metra hæð aðeins nokkur hundr- uð metra frá drengjunum og bar viö himininn i kvöldskininu. Hann var i laginu eins og þrihyrningur með kúlu og horninu, sem sneri upp. Niður með hliðunum var röð af litlum rauðum ljósum, liklega ein tiu, en ekkert þeirra sneri •beint að drengjunum. Þeir sögðu, að liklega hefði glampað á hlutinn frá ijósunum og hefði þeim virzt hann vera úr svörtum málmi. Engar dyr eða loftnetsstengur voru sjáanlegar. Tveir drengjanna fóru nær til að athuga þetta betur og var ann- ar þeirra með sterkt vasaljós. Hann kveikti og beindi geislanum aðhlutnum, en þá voru hin sterku ljós kveikt á ný. Þegar drengur- inn slökkti, slokknuðu ljósin og svo gekk þrisvar sinnum, en i þriðja sinnið, slökkti hluturinn ekki, heldur sveif upp i loftið og hvarf. Hinn 15. febrúar 1963 gerðist dálitið merkilegt i Moe i Ástraliu. Veðrið var slæmt, það rigndi og ský voru lág, þegar Charles Brew og tvitugur sonur hans sáu furðu- Framhald á bls. 39 FRjghraSi 950 km á klukkustund i 10 km hæð. Flugtími til Londort og Kaupmannahafnar um 2Vi klukkustund. Rúmgott. bjart, farþegarými, búið sann- kölluðum hagindastólum. Akjösanieg aðstaða fyrir hinar lipru flugfreyjur Flugfólagsins til að stuðla að þægilegri og eftirminniiegri ferð. Flugþol án viðkomu er 4200 km. Flugáhöfn þjálfuð og rrrenntuð samkvæmt ströngustu kröfum nútímans. Hreyflarnir þrír, samtals 16000 hestöfl, eru aftast á þotunni. Farþegarýmið verður því hijótt og kyrriátt. Flugvélín er búin sjálf- virkum siglingatækjum og fullkomnum óryggisút- búnaði. Boeing 727. Reynslan sýnjr, að við höfum valið rétta 'leið inn í þotuöldina. Það er Boeing 727, sem nú nýtur méstrar hylti i heiminum. Rúmlega 900 þotur eru af þeirri gerð í almenrni farþega- fiugi, Jafnt sérfræðingar sem farþegar hafa iært að meta, hvernig tekízt hefur í Boeing 727 að sameina hraða og þægindi. FLUGFÉLAG ÍSLANDS ÞJÓNUSTA - HRAÐI - ÞÆGINDI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.