Tíminn - 08.07.1973, Page 5
TÍMINN'
5
Sunnudagur 8. júll 1973.
Aukinn
fatakostnaöur
Tizkufatnaðurinn fyrir haustið
og veturinn verður mjög efnis-
mikill, að þvi er segir i tlzku-
fréttum frá Þýzkalandi. Það
sést lika vel á meðfylgjandi
mynd af samkvæmiskjól, sem
sýndur var á tizkusýningu i
Munchen i vor. Fatnaður i
Þýzkalandi hefur
fram til þessa verið mun
ódýrari heldur en
til dæmis i Frakklandi, og
verður það* sem eftir er þessa
árs að meðaltali 25% ódýrari, en
i Frakklandi, þrátt fyrir það að
ullarverðið eitt hefur hækkað
um 40%. Þeir eru ófáir
metrarnir, sem fara i þennan
kjól og slána, sem fylgir honum.
Ekki fylgir sögunni úr hverju
kjóllinn er, né hvernig hann sé á
litinn, en dugleg saumakona
ætti að geta sniðið kjólinn og
saumað, ef einhverja langar að
fá sér hann fyrir árshátiðir og
veizlur vetrarins.
Svissnesk
drykkjukona
Feröamenn, sem komu á veit-
ingastofu Anton Weitlands i
Genf i Sviss urðu dálitið undr-
andi, þegar hann hvatti þá til
þess að reyna að drekka eina af
veitingastúlkunum, Onnu-
Mariu, undir borðið. Anton
sagði, að hún gæti drukkið á við
hvaða karlmann, og hann skyldi
gefa hverjum þeim, sem tækist
að snúa sögunni við, 1000 sviss-
neska franka að launum. Sá
böggull fylgdi skammrifi, að
gesturinn varð að borga fyrir
allt, sem Anna Maria drakk. En
ævintýrið endaði alltaf á einn
veg. Anna Maria sat upprétt I
sæti slnu og skellihló löngu eftir
að gestirnir voru sofnaðir. En
svo kom snjall gestur til sög-
unnar, sem uppgötvaði, að með
þvi að styðja á hnapp á kranan-
um á öltunnunni kom mjög
sterkur bjór i glasið, sem undir
var haldið, en væri ekki þrýst á
hnappinn, kom mun veikari bjór
úr tunnunni, og það var sá veiki,
sem alltaf lenti í glasinu hennar
Onnu Mariu. Weitland var sekt-
aður fyrir að hafa svikizt að
gestum sinum, og haft af þeim
mikið fé.
Pétur Östlund
vekur athygli í Svíþjoð
ÍSLENZKI hljómlistarmaður-
inn snjalli, Pétur östlund
trommuleikari, hefur dvalizt i
Sviþjóð undanfarin ár, eins og
kunnugter og hefur hann aðeins
komið heim i skemmri leyfi.
HefurPétur leikið viöa á undan-
förnum árum og yfirleitt með
vel metnum hljómlisiarmönn-
um. Sem stendur leikur hann
með sænska klarinettleikaran-
um Putte Wickman, sem er einn
þekktasti og virtasti hljóðfæra-
leikari Sviþjóðar, mikill
jazz-maður. I byrjun mai kom
út LP-plata með Putte Wich-
man, og ber hún heitið „Happy
New Year!”, á Odeon-merki.
Með honum leikur meðal ann-
arra Pétur östlund og hefur
hann fengið sérdeilis góða dóma
gagnrýnenda. Sáum við til
dæmis i einu blaði sænsku, að
Pétur er sagður spila svo að
enginn geti gleymt og undir það
geta vist margir tslendingar
tekið. I Göteborg-Tidningen
sagði m.a.: ,,....á plötunni er
trommuleikurinn alveg frábær.
Maðurinn á bak við það heitir
Pétur Ostlund. Ættaður af ts-
landi. Og er nýjasta eldfjalliö
þeirra.... Hann gýs þegar
minnst varir.,.,”
Þá hefur við og við á undanförn-
um mánuðum og árum mátt sjá
nafn Péturs i sænskum blöðum
og er hans alltaf getið að góðu
einu. Slæmt er,að ekki skuli
vera starfsaðstaða fyrir menn
eins og Pétur hérlendis. Á með-
fylgjandi mynd er hann lengst
til hægri, til vinstri er Putti og i
miðjunni kontrabassaleikarinn
Pelle Danielsson. óneitanlega
hefur útlit Péturs breytzt tölu-
vert frá þvi að hann byrjaði að
leika jazz hér heima fyrir mörg-
um árum siðan!