Tíminn - 08.07.1973, Page 9

Tíminn - 08.07.1973, Page 9
Sunnudagur 8. júli 1973. TÍMINN 9 Sovétmenn hafa yfir- tekið njósna- kerfi Kastrós Starfsmenn leyniiög- reglu Sovétrikjanna, KGB, hafa yfirtekið leyniþjónustu Kúbu og eru að breyta starfsem- inni Sovétmönnum i hag. Brezk rannsóknastofnun skýrir frá þessu i nýlegri skýrslu sinni — Conflict Studies No. 35. Skýrslan kemur fram á sama tima og orðrómur berst meðal starfsmanna leynilögreglu á vesturlöndum um, að tengsl séu á milli njósna Kúbumanna og Watergatemálsins. Ástæðurnar fyrir þvi að KGB yfirtók njósnakerfi Fidels Kastró, Direccion General de Inteligencia, DGI, voru þær, að rómantisk áform Kastrós og Ches Guevara um að stjórna allri byltingastarfsemi við Karibahaf og I Suður Ameriku frá Havanna, voru ekki vinsæl I Moskvu. Sendiráðin DGI var stofnað 1961 og tók til starfa 1962. Aleksander Alexeyev, fréttaritari TASS, siðar sendi- herra Sovétrikjanna á Kúbu tók þátt I stofnun kúbönsku leyni- þjónustunnar. En Rússar voru ekki ánægðir með störf hennar og töldu afskipti hennar af málum hipdra njósnir Sovétmanna sjálfra á þessum slóðum. 1 skýrslu brezku rannsókna- stofnunarinnar, sem áður var nefnd, Kúba gerð að fylgihnetti („The Satellisation of Cuba”) og Asókn Sovétmanna á Karibahafi („Sovjet Pressures in the Caribbean” segir að 1968 hafi — i tengslum við oliusamninga Sovét og Kúbu — verið gerður leyni- samningur um samræmingu starfsemi DGI erlendis og KGB. Raunveruleg samræming hófst ekki fyrr en um mánaðamótin april-mai 1970, þegar bróðir Fidels Kastró, Raoul Kastró kom aftur úr heimsókn til Moskvu. Raoul skipaði innanrikisráðu- neytinu að senda 130 DGI starfs- menn til starfa við sendiráð Kúbu erlendis, þar sem þeir áttu að safna upplýsingum og styðja and- spyrnuhreyfingar. Tilfærslur þessar hófust I desember 1970 og héldu áfram út árið 1971. Atburður i Kaupmannahöfn Einmitt á þessum tima vakti starf þáverandi fyrsta sendiráðs- ritara Kúbu I Kaupmannahöfn Thomasar Alvarez Martinez athygli manna. Martinez hafði töluverð áhrif innan hinnar nýstofnuðu upp- lýsingaskrifstofu þjóðfrelsis- hreyfingar Suður-Vietnam. Hann var eins konar hagfræðiráðu- nautur skrifstofunnar, en þá- verandi forstöðumaður hennar var yfirleitt ekki i Danmörku. Sagt var að Martinez hefði varað starfsmenn upplýsingaskrif- stofunnar við að tengjast of náið danska kommúnistaflokknum. Strax eftir að sagan um Martinez komst á kreik, var for- stöðumaðurinn leystur frá störfum, en hann hafði aðeins verið fáa mánuði I Danmörku. Martinez fékk siðar starf annars staðar. A sama tima hófst endurskipu- lagning DGI og varð höfuðstarfið nú að safna upplýsingum, sem Sovétmenn höfðu áhuga á. Rússi að nafni Simenov — talinn hers- höfðingi og KGB maður — var gerður að eftirlitsmanni i DGI, og Moskvukommi að nafni José Mendez Cominches tók við störfum yfirmanns DGI, Pineiro Losado. Sextiu starfsmenn DGI eru sendir á tiu mánaða námskeið i Sovétrikjunum. Minnst fimm þeirra eru siðan valdir til að starfa eingöngu fyrir Rússa. Watergatemálið Kerfiö virðist þegar reynast vel. Þegar Bretar vlsuðu 105 Sovétnjósnurum úr landi 1971, taldi brezka gagnnjósna- þjónustan, 1.5, að Kúbúmenn hefðu tekið við af þeim. Það leiddi til þess, að Diaz Rovirosa fyrsti sendiráðsritari við sendiráð Kúbu i London varð að yfirgefa Bret- land i flýti I marz á þessu ári, alvarlega grunaður um að vera blandaður i njósnir. Orðrómurinn um að Kúbumenn eigi hlutdeild að Watergate- málinu gengur út á, að starfs- menn i Hvita húsinu hefðu skipu- lagt innbrotið fræga, eftir að þeim heföi verið bent á,að Kúbumenn hefðu gefið fimm milljónir dollara i kosningasjóö demókrata. Undirrótin átti aö vera sú að DGImenn teldu,að Nixon hefði i heimsókn sinni I Moskvu rætt við Brjéznev um möguleika á, að Sovét hætti aðstoð við Kúbu. Það átti að vera skilyrði fyrir þvi að Bandarikja- menn létu Sovétmenn hafa hveiti. Starfsmenn leyniþjónusta á Vesturlöndum telja ekki óhugs- andi að eitthvað kunni að vera til i orðróminum. En það væri skýring á þvi hversvegna Nixon og menn hans þegja þunnu hijóði i’ Watergatehneykslínu. Menn vildu ekki eyðileggja bætt samband við Sovétmenn — né móðga Brjéznev I Bandarikja- heimsókninni. ÞýttSJ Á þessu ári má áætla, aS af völdum reykinga tapist hér á landi um 77 þúsund vinnudagar. Ástæðan er sú, að reykingafólk er oftar veikt en hinir, sem ekki reykja. Athuganir hafa sýnt, að veikindafjarvistir eru um 15% algengari hjá reykingafólki en öðru vinnandi fólki. Gera má ráð fyrir, að veikindafjarvistir reykingafólks hér á landi á þessu ári jafngildi því, að 300 manns séu frá vinnu allt árið. Getum við ekki gripið í taumana og reynt að minnka reykingarnar?

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.