Tíminn - 08.07.1973, Page 17
Sunnudagur 8. júll 1973.
TÍMINN
17
rew, þegar hann vakti mig, renn-
sveittan og skjálfandi.
— Þú hefur það á bandinu,
svaraði ég.
Hann kinkaði kolli og sagði
mér, að ég hefði skolfið eins og
laufblað i bindi.
Nú höfðum við nákvæmar
upplýsingar um jarðskjálfta i
Indlandi, eða einhvers staðar, þar
sem fólkið var alveg eins i útliti.
Það siöasta, sem ég man af þess-
ari reynslu, var að ég stóð uppi á
hæð og horfði yfir eitthvað, sem
liktist yfirgefnu þorpi. Ennþá
hafði ég enga hugmynd um, hvar
ég var og hvenær þetta hafði
gerzt. Prófessor Hall var orðinn
góður vinur okkar félaganna og
daginn eftir spiluðum við bandið
fyrir hann. Þá stundina gat hann
ekki munað eftir neinum jarð-
skjálfta á þessum slóðum.
Við fórum allir þrir á bókasafn-
ið og fengum aðstoð bókavarðar,
roskinnar konu. Eftir að hún hafði
hlustað á lýsingar minar, sagði
hún: — Þetta kemur heim við
jarðskjálftann f Quetta og i ljós
kom, að allt passaði, sem ég hafði
séð. Samt hafði ég aldrei heyrt
um þessar hamfarir, eða séð
myndir frá þeim. Það get ég
svarið. Þessi jarðskjálfti varð ár-
ið 1935, árið áður en ég fæddist og
það eru engir möguleikar á að
foreldrar minir hafi til dæmis tal-
að um hann, þegar ég var orðinn
nógu gamall til að skilja. Samt
hafði ég gefið lifandi og nákvæma
lýsingu á atburðunum, það sönn-
uðu blaðafréttir, sem ég las 1971.
Margir einkennilegir hlutir
komu i ljós, oft þegar Andrew dá-
leiddi mig og oft var prófessor
Hall viðstaddur. En það var ekki
fyrr en á dimmu októberkvöldi
1972, að martröðin hófst, sem ég
hef enn ekki náð mér eftir.
Ég hitti Mary Jane.
Það byrjaði alveg eðlilega, eins
og venjulega. Ég sat slappur og
hallaði mér aftur á bak. Andrew
dáleiddi mig og prófessor Hall
fylgdist með, og stjórnaði segul-
bandinu.
Skyndilega var ég staddur i
litlu þorpi og gekk niður rykuga
götu, horfandi á fólkið. Allir voru
kæddir gamaldags fötum, ef til
vill 200 ára gömlum. En þetta
voru ekki Englendingar, að mér
fannst, þó þeir væru ljósir á hör-
und og flestir bláeygir.
A segulbandinu segi ég: —
Þessi gata heitir Clencairn
Street. Það er smiðja á horninu,
og þar stendur Robert Sirran og
sonur. Beint á móti er klæðskeri,
sem heitir Alexander Yuill. Það
stendur ofan við dyrnar. Ég geng
framhjá ostabúð og mjólkurbúð. 1
Glugganum er skilti, sem á stend-
ur James Matthew og Kompani.
Matvæli.
„Það sem mér fannst merki-
legast, var að ég, sem var frá 20.
öld, skyldi ekki á nokkurn hátt
vekja athygli fólksins, sem ég
mætti. Allir voru klæddir fötum,
sem ég fmyndaði mér, að væru
frá 18. öld.
Enn segi ég á bandinu: — Ég
nam staðar og tala við stúlku.
Hún heitir Mary Jane Orphoot.
Ég þekki hana og held, að ég sé
ástfanginn af henni. Hún er um
155 sm á hæð, grönn og ljóshærð
með stór, blá augu. Hún hefur
ekki ávarpað mig með nafni, en
það er eins og hún þekki mig vel.
A bandinu lýsti ég öllu ná-
kvæmlega, meira aö segja haf-
golunni. Mér virtist vera vor og
það var engu lfkara en ég ætti
heima þarna, svo vel kannaðist
ég við allt.
Þá hurfu áhrifin skyndilega,
eins og eitthvað hefði þrifið mig
frá þessu öllu.
Mér fannst undarlegt, að þegar
ég var vaknaður, sá ég stúlkuna
greinilega fyrir mér. Slíkt hafði
aldrei gerzt áður, venjulega rám-
aði mig bara í hlutinn og varð að
hlusta á bandið til að rifja þá upp.
En stúlkan var greypt I huga mér.
Það urðu mér vonbrigði að snúa
aftur svona fljótt. Mig langaði að
vita meira um stúlkuna og stað-
inn, sem ég haföi heimsótt.
— Er mögulegt, að hægt sé að
fara aftur á sama staðinn? spurði
ég prófessorinn. Hann hélt, að
þaö gæti verið en kvaðst ekki vita,
hvernig ætti að fara að þvi.
Martröðin
Mörgum sinnum reyndum við
að ná aftur litla þorpinu, en án
árangurs. En svo var það skyndi-
lega í desember sl. ,að ég var
staddur yzt í miklum hópi fólks og
allir hrópuðu og kölluðu. Það var
eins og fólkið væri algjörlega
skyni skroppiö og gripiö æði. Ég
stóð þarna um stund, án þess að
hafa hugmynd um, hvað væri aö
gerast.
— Brennið nornina! brennið
nornina! Hljómaði umhverfis
mig og skyndilega kannaðist ég
við mig. Þetta var þorpið, þar
sem ég hafði kynnst Mary Jane
Orphoot.
— Nú ætla ég að vita hvort ég
finn Mary Jane, segi ég á band-
inu. — Ég verð að hitta hana aft-
ur.
Einhvern veginn vissi ég, að ég
var I mikilli hættu, þvi prófessor-
inn hafði varað mig við, að láta
tilfinningarnar hafa nokkur áhrif
á mig. Hann sagði, aö hætta væri
á að ég missti vitið, ef ég gerði
það. En samt sem áður var ég
ákafur og sagðist mega til að
finna Mary Jane aftur.
Það næsta, sem ég segi á band-
inu, var skelfingaróp og siðan
komu andköf: — Ó, guð. Nei,
NEI!!
Greinilegt var, að ég haföi troð-
ist gegn um fólksmegðina til að
sjá, hvað var að gerast. Og þá sá
ég pallinn og staurinn, sem Mary
Jane var bundin við. Hún var
klædd svörtum, siðum kjól og við
fætur henni var hrúga af þurrum
viði. Nokkrir menn voru að hella
oliu eða einhverju sliku yfir hann.
Ég heyrði stúlkuna hrópa i ör-
væntingu. — Þyrmið mér, þyrmið
mér. Ég er engin norn. Ó, þyrmið
mér!
Einhver kveikti i viðnum og
þegar eldurinn blossaði upp,
heyrðust hryllingsóp stúlkunnar.
Mér fannst hjartað i mér ætla út
úr brjóstinu af hræðslu. Fólkið
umhverfis mig hrópaði: — Drep-
um nornina! Drepum nornina!
Ég brauzt i átt til Mary Jane til
að hjálpa henni, en var sleginn
niður. Og þá hvarf allt saman.
Ég var i einskonar dái, heyrði,
það sem sagt var umhverfis mig,
en gat ekki svarað og heldur ekki
opnað augun. Rödd sagði: —■
Þessi maður hefur orðið fyrir
miklu áfalli og það er möguleiki á
að hann hafi brjálazt.
Enn reyndi ég að komast út úr
öllu þessu myrkri, en þvi meir,
sem ég reyndi, þvi dýpra sökk ég
— lengra og lengra niður. Og ég
heyrði dauðavein stúlkunnar.
Áfallið mikla
Hægt opnaði ég augun og fann,
að ég hrfðskalf frá hvirfli til ilja.
Ég sá hjúkrunarkonu og reyndi
að kalla til hennar. Hún kom
hlaupandi og siðan læknir. Sent
var eftir prófessor Hall og And-
rew. Þeir sögðu mér, að ég hefði
legiö i dauðadái i heila viku, en þó
haft einhverja hugmynd um um-
hverfið.
En nú var ég kominn til meö-
vitundar og það mátti teljast
kraftaverk og ekki bar á öðru, en
ég væri enn með fullu viti. Þeir
sögðu, að litlu heföi munað, þvi
læknavisindin ættu ekkert ráð við
svona tilfellum.
Ég hafði lýst þorpinu nákvæm-
lega og örlögum Mary Jane á bál-
inu. En hvar og hvenær hafði
þetta gerzt? I Englandi? t Ame-
riku? Þar hafði fjöldi kvenna
hlotið þessi örlög. Við þrir tókum
til að rannsaka málið, en enginn
þeirra kvenna, sem vitað var að
brenndar hefðu verið i Englandi,
hafði heitið Mary Jane Orphoot.
Við fengum marga sagnfræðinga
okkur til aðstoðar, en hvergi
fundum við bæ, þar sem gata hét
Glencairn Street, eða smiður hét
Sirran, eða þá verzlunareigendur
með nöfnunum Matthews eða
Yuill.
Nú var ekki um annað að ræða,
en senda allar upplýsingarnar til
mikilvirts sagnfræðings i
Massachusetts i Bandarikjunum.
Hann var einkum þekktur fyrir
rannsóknir sinar á galdratrú og
brennum fyrr á öldum. Við lýst-
um öllu i smáatriðum.
Það liðu þrjár vikur og svo var
það i janúar sl., að ég fékk bréf
frá Boston.
Sagnfræðingurinn baðst af-
sökunar á, hvað þetta hefði tekið
langan tima, en það hefði verið
erfitt að hafa uppi á þorpinu.
Woodstock hafði nefnilega eyði-
lagzt i flóðbylgju árið 1799 og
aldrei verið byggt upp.
Bréf visindamannsins fer hér á
eftir: ,,t spjaldskrám okkar kem-
ur fram, að fólk grunað um
galdra, var brennt á báli i þorpinu
Woodstock á árunum 1755 til 1765.
Ein þeirra var stúlka að nafni
Mary Jane Orphoot. Hún var
grunuð að þvi talið var, að hún
hefði drepið skepnur i þorpinu
með göldrum. Hún var brennd
1761, þá 19 ára gömul. Kort af
þorpinu, sem hafði 400 ibúa, sýn-
ir, að aðalgatan hét Glencairn
Street og firmaskrár frá þessum .
tima sýna einnig, að til voru
fyrirtæki með nöfnunum Yuill,
Sirrat og Matthews, eins og segir
I bréfi yðar.”
En nú varð ég fyrir áfalli, þegar
ég las siðari hluta bréfs visinda-
mannsins:
„Eitt atriði i bréfi yðar vakti
sérstaka athygli okkar, sem sé
þaö, að ungur maður hafi reynt að
koma Mary Jane til hjálpar,
meðan hún var á bálinu. Upp-
lýsingar, sem við höfum fengið
staðfestar að einmitt það gerðist
Maöur að nafni Joshuah Jeremi-
ah Samuels, 25 ára, var sleginn
niður af múgnum, þegar hann
reyndi að brjótast til stúlkunnar,
en fólkið gekk af honum dauðum.
Okkur langar mjög til að vita,
hvernig þér hafiö hugmynd um
þetta, þar sem aöeins er minnzt á
það i einni heimild, skrifuöu
skjali, sem er varðveitt hjá okkur
og hefur ekki verið hreyft i 140
ár.”
Aldrei framar
Það, sem ég varö fyrir, get ég
aðeins skýrt sem óskiljanlegt, þar
sem engin skynsamleg skýring er
til á þvi. Andrew og prófessorinn
eiga heldur engar skýringar.
Stungið hefur verið upp á þvi, að
ég hafi lesið um atburðinn, sem
ég veit með vissu, að svo er ekki.
Ég vissi tæpast, að nornir voru
brenndar i Salem i Massachusetts
og hafði aldrei lesið um það.
Woodstock hafði ég aldrei haft
hugmynd um að hefði verið til,
hvað þá að þar hefðu verið
brenndar nornir.
Það er ekki langt á milli heil-
brigðrar skynsemi og brjálsemi
og ég var rétt kominn yfir skilin.
Það er i rauninni kraftaverk, að
ég brjálaðist ekki algjörlega. Viö
„lékum” okkur að byrirbrigðum,
sem við kunnum engin skil á og
hafi ég ekki hætt lifinu, hætti ég
örugglega vitinu.
Eftir atburðinn með Jary Jane
Orphoot höfum við ekki gert fleiri
tilraunir. Ég viöurkenni fúslega,
að ég er hræddur og býst við, að
hver einasta manneskja væri það
i minum sporum. Ég trúi þvi statt
og stöðugt, að ég hafi feröazt i
tlmanum, rúmlega 200 ár aftur á
bak. Ég er þeirrar skoðunar, að
allt, sem einhverntima hafi gerzt
I heiminum, verði þar áfram og
hægt sé að „stilla” fólk inn á
bylgjulengd þess og láta það upp-
lifa atburðinn.
Ef til vill hef ég á röngu að
standa, en ég hef ekki minnstu
löngun til að vita það. I næsta
skipti gæti ég farið yfir skilin....
SB.
Hljómplötur frá kr.
290
l'riah / Live
(leorg llárrison / Living in Ihe material world
Leon llussel / l.ive
Soft Machine / Six
Isaac llays / Klack Moses
Isaac llays / Shaft
Savoy Hrown / Jack TUe toad
I’aul Sinion / There goes rhymin Simon
llerhie llancock / Sextant
Hloomfield llammond & I)r. John / Triumvirate
Smokey Hobinson / Smokey
(íuincy Jones / You’ ve got it had girl
Merl Saunders / Fire up
lloney ('one / Soulful Tapestry
Aretlia Franklin / Young gifted & hlack
Baron von Tollbooth & the (’hrome nun
New York City / I’ m doing fine now
Creedens Clearwaler Hevival / Allar
Andy Williams / (Ireatest Hits Vol. 2
.1. (■ eils Hand / Hloodshot
Hillion Dollar hahy / Alice Cooper
Jolin Cale / Paris 1919
The O' Jais in i’hiladelphia
King Crimson / Larks' Tongues in Aspic
Kim Fowley / International heroes
Leonard Cohen / Live Songs
Stephen Stills / Uown the road
Spooky Tooth / You broke my heart
llistory of hritish hlues / Vo|. I.
Merel Saunders / Heavy Turbulence
The Heatles / Allar.
jpGudjónsson hf.
Shúlagötu 26
Iðnaðarhúsnæði
Vil taka á leigu 400-500 fermetra
húsnæði
Þarf að vera bjart og hreinlegt
Modelmagasin h/f
Sími 85020, kvöldsími 82567
n
i
mémmmm
i
þjónusta - saía - hleðsla - viðgerðir
Alhliða rafgeymaviðgerðir og hleðsla
Notum eingöngu og seljum járninnihaldslaust
kemiskt hreinsað rafgeymavatn
Næg bílastæði — Fljót og örugg þjónusta
I Tæhnwer
acdcmci A
AFREIÐSLA
Laugavegi 168
Simi 33-1-55
RÆSIÐ
BÍLINN MEÐI
SÖNNAK j
Andrew Annandale. Þaö var hann, sem dáleiddi Peter Doig vin sinn og
sendi hann aftur I timann. Afleiðingarnar urðu örlagarikar....