Tíminn - 08.07.1973, Síða 31
Sunnudagur 8. júli 1973.
TÍMINN
31
Umsjón: Halldór Kristjónsson
Danska frelsið
í DANMÖRKU hafa jafnan
verið frjálsleg áfengislög. Þar
hafa lengi verið á boðstólum i
almennum matvöruverzlunum
áfeng ölföng af ýmsum styrk-
leika, þar eru bjórstofur opnar
öll kvöid og yfirleitt öll
umgengni við áfengi hin frjáls-
legasta.
Þeir, sem hafa trú á þvi, að
frjálsræði skapi áfengis-
menningu og hófsemi, munu þvi
gera ráð fyrir að Danmörk sé
fyrirmyndarland i áfengis-
málum.
Þar hefur ekki verið um að
ræða neina „bannlagaspillingu”
Þar hefur áfengi aldrei verið
gert freistandi og eftirsóknar-
vert vegna þess að það væri
bannað. Þar eru menn ekki
neyddir til að þamba roksterkt
brennivin, af þviaðbjórerekki
á boðstólum. Og þar eru menn
ekki neyddir til að kaupa fulla
flösku i vinbúð vegna þess, að
ekki sé opinn veitingastaður,
þar sem þeir geta fengiö einn
smásopa.
Samkvæmt trú og kenningum
frjálshyggjumanna ættu Danir
þvi að standa sig vel i áfengis-
málunum. Þar eru freist-
ingarnar ekki búnar til með
forboði.
En hver er svo reynslan?
Vitanlega er allur metingur
um mismunandi slæmt ástand i
þesum efnum ósæmilegur. Þó
mun vera óhætt að segja, að
hvergi á Norðurlöndum sé
ástandið alvarlegra en i
Danmörku, — og hefur það þó
mjög versnað i Finnlandi, siðan
finnska þingið ætlaði sér að
bæta ástandið með þvi að láta
almenning hafa sem greiðastan
aðgang að áfengu öli.
Það vekur nú athygli, að
danskir skólamenn hafa nú
nýlega leitað hjálpar og ráöa til
Norðmanna og Svia vegna
drykkjuskapar danskra barna.
Dæmi um ástandið er það, að
nú er alls ekki frátitt að börn-,—
allt niður i 10 ára gömul — komi
ölvuð i skóla, eða drekki sig
ölvuð á skólatimanum i öli, sem
þau hafa með sér, — 6-7% að
styrkleika. Frjálsræðið i
Danmörku birtist m.a. i þvi, að
börn mega kaupa áfengt öl.
A ýmsum stöðum i Danmörku
er nú reynt að lækna skólabörn
af áfengisástriðu með þvi að
láta þau taka antabus að
staðaldri. Til dæmis eru 5 skóla-
börn 15 ára gömul undir slikri
meðferð i Viborg.
Nýlega átti það sér stað á
Suður-Jótlandi, að skóla-
skemmtun var slitið tveimur
stundum eftir að hún hófst.
Fjórir þátttakendur 14-15 ára
voru fluttir meðvitundarlausir á
sjúkrahús og þar dælt upp úr
þeim áfenginu. Annars er það
næsta algengt, að skóla-
skemmtanir fari út um þúfur
eða sé aflýst vegna drykkju-
skapar.
Það er algengt i Danmörku að
i unglingaklúbbum fyrir 14-18
ára unglinga, sé setið að sumbli,
þegar saman er komið.
Nú hefur menntamálaráðu-
neytið danska gert sér grein
fyrir þvi, að hér er alvara á
ferðum. Þvi hefur það falið
fikniefnafulltrúum sinum að
gera einnig skýrslur um
áfengismálin og þann háska,
sem þar er að mæta.
Það er vist rétt, sem Lars
Korvald, forsætisráðherra
Norðmanna sagði i ræðu
nýlega: ,,Mér vitanlega hefur
aldrei tekizt að minnka áfengis-
böl eða drykkjuskap með þvi að
fjölga sölustöðum og veitinga-
stöðum”
Það má lika vera
umhugsunarefni, jafnt i
Danmörku og á tslandi sem i
Noregi, sem Korvald forsætis-
ráðherra sagði i sömu ræðu:
„Gleymum þvi ekki, að
maðurinn er þýðingarmesti
gjörandinn i umhverfinu. Eigi
að vera nokkur von um að það
breytist til hins betra, þarf fyrst
og fremst maðurinn að
breytast. Byrjum á okkur
sjálfum. Þar er komið aö
ábyrgð einstaklingsins. Það er
þin ábyrgð”.
Sölumenn
Við viljum ráða tvo sölumenn i vefnaðar-
vöru nú þegar eða siðar.
Vinsamlega hafið samband við starfs-
mannastjóra.
Starfsmannahatd
$ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Frd Viðlagasjóði
Reikningar, vegna reksturs Viðlagasjóðs,
i Reykjavik og Vestmannaeyjum, verða
framvegis greiddir á miðvikudögum og
föstudögum milli kl. 13 og 15.30. i Tollstöð-
inni við Tryggvagötu (Vesturendi).
Viðlagasjóður.
Skrifstofa Meistara-
sambands
byggingarmanna
verður lokuð vegna sumarleyfa á tima-
bilinu 8. til 30. júli.
Stjórnin.
Q íþróttir
timabili, aö ef þessum „gjöfum”
minum linnti ekki, þá yrði mér
þrykkt utan á umsiag og sendur
heim f pósti! Eisenstadt hafði
leikið um 8 æfingaleiki fyrir
keppnina og hafði mér tekizt að
pota i mark fjórtán sinnum.
Fyrsti alvöruleikurinn var gegn
einu sterkasta liði Austurríkis,
Admina Energie. Það urðu tals-
verð umrót i maganum fyrir leik
inn og ekki bætti úr skák, að hit-
inn var um 35 stig og andstæðing-
ar okkar léku á heimavelli. Leik-
völlur þeirra er nýbyggður og er
án efa einn bezti i Evrópu enda
var leikurinn i samræmi við völl-
inn — eða vel leikinn. Ég var
nokkuð óheppinn i fyrri hálfleik
(0:0) og átti m.a. tvö stangarskot.
t þeim siðari tókst mér að skora
með viðstöðulausu skoti af 16
metra færi, en það féll andstæð-
ingum okkar ekki fyllilega, svo
þeir jöfnuðu fyrir leikslok. Við
máttum vel við úrslitin una og
verður þessi leikur mér lengi
minnisstæður fyrir margt, þó
einkum og sér i lagi fyrir það, hve
knattspyrnan var algjörlega látin
sitja i fyrirrúmi.”
Hermann kom heim reynslunni
rikari eftir dvölina i Austurriki,
þar sem hann öðlaðist dýrmæta
reynslu, sem knattspyrnumaður.
Um dvöl sina i Austurriki, hefur
Hermann, þetta að segja:
,,Það sem vakti athygli mina
sérstaklega, er hvað þjálfarar
leggja mikið upp úr knattleikni og
verða leikmcnn ávailt að æfa þá
hliö vel. Þá er einnig mjög gaum-
gæfilega „stúderaðar” allar nýj-
ungar i leikaðferðum og þess
ávallt gætt, að öll liðin kunni sem
flestar leikaðferöir. Þessar tvær
hliðar, ásamt linnulausum skot-
æfingum, eru, að minum dómi
frábrugðnar þvi, sem við eigum á
islandi að venjast. Og að sjálf-
sögðu eru þrekæfingar meiri og
ræður engin miskunn. Þá skal
gæta þess, að allir iþróttamenn á
meginlandi Evrópu eru á launum
eða njóta styrkja.”
Þjálfaði á Akureyri
Hermann Gunnarsson gerðist
þjálfari 1. deildarliðs Akureyrar
þegar hann kom heim einnig lék
hann með liðinu. Hermann sá
fljótlega að það var erfitt að leika
og þjálfa að jafnaði, enda leit
hann það öðrum augum eftir það.
Hermann segir að utanbæjarfé-
lögin hafi betri aðstöðu en
Reykjavikurfélögin — liðin eru
með öruggan stuðning bæjarbúa
á viðkomandi stöðum. Stuðning,
sem er mjög þýðingarmikill.
Erfitt að vera
sóknarleikmaður i dag
Þegar við spurðum Hermann
um, hvernig honum litist á is-
lenzku knattspyrnuna i dag, ef
miðað væri við, hvernig hún var
hér fyrir fáeinum árum. Hann
sagði, að knattspyrnan i dag væri
árangursrikari, en ekki væri hægt
að segja, að hún væri betri. Nú
hefur hún verið færð i varnarkerfi
og við það varð hlutverk sóknar-
mannsins erfiðara þvi að áður
léku fimm leikmenn i sókn, en nú
leika aðeins tveir. Með þessu
áframhaldi, að bæta varnarleik-
inn, en ekki sóknarleikinn, yrði
knattspyrnan ekki eins spennandi
og hún drægi ekki eins marga
áhorfendur að.
Hermann sagði, að nú væru is-
lenzkir knattspyrnumenn i betri
úthaldsæfingu og legðu meira á
sig við æfingar. Einnig væri nú
meira krafizt af þeim og gamla
áhugamennskan væri á undan-
haldi — þess væri ekki langt að
biða, að einhvers konar atvinnu-
mennska kæmist á hér á íslandi.
Takmarkaður stuðning-
ur
Hermann sagði, að það ætti að
vera stolt litillar þjóðar, að eign-
ast atvinnuknattspyrnumenn úti i
heimi. Hann sagði, að tslending-
ar, sem hafa ætlað út i atvinnu-
mennsku erlendis, hefðu fengið
takmarkaðan stuðning hjá is-
lenzkri knattspyrnuforustu —
hver er ástæðan fyrir sliku?
-SOS
\ / Tíminn er 40 síöur
}b € alla iaugardaga og
J \ sunnudaga.—
'A_».\ Askriftarsíminn er
1-23-23
Allar málnmgarvörur
eínnig Tóna- og Óska-litir
6002 lítir
UTAVER