Tíminn - 08.07.1973, Side 37

Tíminn - 08.07.1973, Side 37
Suiinudagur 8. júlí 197:i. TÍMINN 37 Ný skáldsoga: Láki í Skýjaborgum tJt er komin skáldsagan Láki i Skýjaborgum, önnur bók, eftir Sigurlinna Pétursson bygginga- meistara. Bókin er gefin út á kostnað höfundar undir nafninu Ormur i Hól, en prentuð i Odda h.f., 145. bls. Láki i Skýjaborgum II. - er framtiðarsaga, gerist á árunum 200 til 2015. 1 formálsorðum segir höfundur um hana: „A undanförnum áratugum hef ég kynnzt mörgu fólki af báðum kynjum og kviknuðuþá oft skop- legar hugsanir, en hver og ein persóna hefur sina sannfæringu um rétt eða rangt Þessi kynni urðu svo til þess að kveikja þá löngun hjá mér að skrifa tvær skáldsögur. 1 fyrri bók minni, Láki I Skýjaborgum, sem kom út i desember 1969, bræddi ég saman nokkra persónuleika i einn, sem ég skirði Þorlák (Láka) og notaði nafnið eftir þeim atvikum, sem fyrir hann komu. Sú bók, sem hér fer á eftir.er i . raun framhald fyrri bókarinnar og tekin saman á árinu 1970. Koma þar fram nýir hæfileikar Láka og annarra, er þar koma við sögu.” Láki i Skýjaborgum verður fyrst um sinn einungis til sölu hjá höfundi og útgefanda. SJ. K> Sigurlinni Pctursson TÓNLISTARHÁTÍÐ UNGS FÓLKS Á NORÐURLÖNDUM í VETUR er leið tóku íslendingar i fyrsta skipti þátt i „Tónlistar- hátátið unga fólksins á Norður- löndum” eða „Ung Nordisk Musikfest” eins og það heitir á skandinavisku. Þá höfðu slikar hátiðir verið haldnar i 27 ár, til skiptis á hinum Norðurlöndunum fjórum. Markmið þessara hátiða hefur frá upphafi verið að gefa norræn- um tónsmiðum yngri en 30 ára kost á að fá verk sin flutt og auka samskipti ungra norrænna tón- listarmanna. Ennfremur hefur UNM (Ung Nordisk Musikfest) viljað auka skilning á samtima- tónlist af sem flestum gerðum. Til' að ná markmiðum sinum hefur UNM haldið árlega tónlistar- hátiðir og taka þátt i þeim tón- smiðir, hljóðfæraleikarar (nemendur og atvinnu-menn) og áheyrnarfulltrúar. A hátiðum þessum er einkum iðkað tónleika- hald, en auk þess „Improvisationir” fyrirlestra- hald og fleira gott. Þar er og starfrækt samnorræn sinfóniu- hijómsveit, sem nemendur skipa. í vetur barst Tónlistarskólan- um i Reykjavik boð um að senda 5nemendur sina sem áheyrnar- fulltrúa á UNM-hátiðina, sem i það skiptið var haldin i Osló. Boðið var þegið þakksamlega og skemmst er frá þvi að segja, að viðkynning var öll hin bezta. Gert er ráð fyrir áframhaldandi þátt- töku Islands i þessu samstarfi og þá væntanlega á áhrifameiri hátt en að senda áheyrnarfulltrúa til hátfðanna. Næsta UNM-hátið verður haldin sumarið 1974 i Framnesi i Sviþjóð. Til að skera úr um það hvaða verk frá Islandi skuli send á hátiðina hefur verið mynduð dómnefnd,sem i eiga sæti þeir Atli Heimir Sveinsson, Páll P. Páls- son og Ragnar Björnsson. Frest- ur til að senda inn verk (Anótur og/eða segulba.ndsupptökur) rennur út 17. septenber 1973 kl. 12 á hádegi. Verk skulu send inn undir dulnefni, en nafn látið fylgja i lokuðu umslagi. Til að hafa umsjón með þessum málum hérlendis hefur nú verið sett á laggirnar islenzk UNM- nefnd og hefur hún aðsetur að Hofteigi 21 i Reykjavik. Ef allt fer að vonum verður UNM-hátið haldin á Islandi i fyrsta sinn árið 1977. \ I Tíminn er 40 síður « alla laugardaga og J \ sunnudaga.— Askriftarsíminn er ®lp 1-23-23 Lézt af völdum meiðsl anna Konan, sem varð fyrir bifreið á Hringbraut á föstudaginn, lézt af völdum meiðslanna I gærmorgun. Hún var þegar eftir slysið flutt á Slysavarðstofuna, en hún hafði lærbrotnað og hlotið slæm höfuð- meiðsl. Siðan var hún flutt á Gjörgæzludeildina. Hún hét Elisabet Valdemarsdóttir og var 83 ára gömul. —Stp. Útboð Bæjarsjóður Keflavíkur óskar hér með eftir tilboðum i gatnagerð i Hrannargötu, Keflavik. Verkið nær til jarðvegsskipta i götustæði ásamt lögn holræsa og fleira. Útboðsgögn eru afhent á bæjarskrifstofum i Keflavik frá og með mánudegi 9. þessa mánaðar á venjulegum skrifstofutima gegn 2000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð föstudaginn 20. þessa mánaðar kl. 11 á skrifstofu bæjar- stjóra að Hafnargötu 12, Keflavik. Norðurá VEIÐIFÉLAG NORÐURAR i Borgarfirði auglýsir hér með eftir tilboðum i veiðirétt i Norðurá frá og með 1974. Tilboð skulu hafa borizt á skrifstofu Jón- asar A. Aðalsteinssonar, hrl., Laufásvegi 12 i Reykjavik fyrir kl. 17.00 hinn 1. ágúst n.k. og munu þau tilboð, sem berast, opnuð þar kl. 17.15 sama dag. Allar nánari upplýsingar, þar á meðal um fyrirhugaðan leigutima, veitir undir- ritaður. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. F.h. Veiðifélags Norðurár Jónas A. Aðalsteinsson, hrl., Laufásvegi 12, Reykjavik. ^pheytætlurna Prófaðar af Bútæknideild og þaulreyndar af hundruðum bænda um land allt ó undanförnum árum. FELLA heytætlurnar hafa reynzt afkastamiklar, velvirkar og þurfa Iftið viðhald — en þetta eru þau atriði, sem skipta meginmáli — þegar velja skal góða heyvinnuvél. Vinnubreiddir: TH-4S 3,80 m, TH-40S 4,60 m ^^sláttuþyrlan FELLA sláttuþyrlan hefur lengstu og beztu reynslu við fslenzkar aðstæður. Engin sláttuþyrla er eins örugg og afkastamikil. Öryggisbúnaður FELLA er viðurkenndur. Ný gerð, stillanleg sláttufjarlægð. Vinnubreidd: 1,60 m Afköst: 2 ha/klst. Það fæst mikið fyrir peningana þegar FEELA vélar eru keyptar. Leitið nánari upplýsinga. G/obus? LÁGMÚLI 5, SlMI 815 55 HAPPDRŒTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS A þriðjudag verður dregið í 7. flokki. 4.300 vinningar að fjárhæð 27.820.000 krónur. Á morgun er síðasti endurnýjunardagurinn. Happdrætti Háskóla tslands '7. flokkur 4 á 1.000.000 kr. 4 á 200.000 — . 240 á 10.000 — . 4.044 á 5.000 — . Aukavinningar: 8 á 50.000 kr. 4.300 . 4.000.000 kr. 800.000 — . 2.400.000 — . 20.220.000 — 400,000 — 27.820.000 —

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.