Tíminn - 29.07.1973, Qupperneq 2
tíminn
Sunnudagur 29. júli 1973.
Iiinn stolti SHnx stendur viö hliö Keopspýramidans og vakir yfir hon
Frægar byggingar:
í 5000 ár hefur pýramídinn við Gizeh í
Egyptalandi verið takmark ferðamanna
hvaðanæva að úr heiminum. Rænt hefur
verið innan úr honum, hann hefur verið
notaður sem grjótnáma, reynt hef ur verið
að sprengja hann með púðri....
En hann stendur enn jafn stoltur á Nílar-
bökkum, jafn tignarlegur og Faraó skipaði
til um á sínum tíma. Að líkindum mun
hann einnig standa sem þögult vitni um
sólguðinn Ra og syni hans löngu eftir að
menning vorra tíma er liðin undir lok.
um.
Fyrsta flokks þjónusta
Á'
Hótel Bifröst býður yður mat og gistingu í hinum
fagra Borgarfirði - Hvort sem leið yðar liggur:
Vestur, austur,
norður eða suður —
þó er Hótel Bifröst
sjólfsagður óningastaður
sem veitir
fyrsta flokks þjónustu —
á verði við allra hæfi
Máltlö frá kr. 250-270 (Dinner)
Herbergi:
Eins manna
Tveggja manna
Tveggja manna
briggja manna
Verö kr.
995
1117
1490 meö baöi
1862 meö baði
r
Verið velkominn að Hótel Bifröst
KEOPS-
i þúsundir ára hafa pýramidarn-
ir i Egyptalandi höföað til hug-
myndafiugs mannsins, einkum þó
hinn stærsti þeirra, Keopspýra-
midinn. Hann er risabygging,
geröur af slikri nákvæmni, að
erfitt er stundum aö trúa þvi aö
hann sé geröur af mannahöndum.
En það er hann. Eftir margra
ára nákvæmnisvinnu forn-
leifafræðinga hefur tekizt að
uppgötva flest leyndarmál
Keopspýramidans — hver byggði
hann, hvernig hvenær og hvers
vegna.
Við þurfum að fara næstum
fimm þúsund ár aftur i timann
allt til um 2800 fyrir Krist. Þá
höfðu egypzku Faraóarmr ráðið
rikjum i sex aldir og þrjár ættir
höfðu skipzt á um að stjórna
landinu. Allt var þetta orðið svo
rótfast og ákveðið, að konungur-
inn var ekki lengur bara konung-
ur, hann var guðinn sjálfur.
Líf eftir dauöann
Egyptar til forna höfðu sinar
eigin hugmyndir um lifið eftir
dauðann. 1 þeirra augum var
maðurinn tvöfaldur: sýnilegur
likami og annar ósýnilegur, sem
þeir kölluðu „ka”. Það var ein-
hvers konar loftkennt hylki af
sömu lögun og sýnilegi likaminn
og þar i bjó lifið, eða það, sem við
nú á timum köllum sálina.
Þegar hinn sýnilegi likami dó
og eyðilagðist, dó „ka” einnig og
ekkert af viðkomandi manneskju
var lengur til. Þess vegna var um
að gera aö vaðrveita hinn sým-
lega likama sem lengst eftir
dauðann, til aö „ka” ætti sér ein-
hvern samastaö. Þetta er talin
ein höfuðástæðan til þess að
Faraóarnir voru smuröir, þannig
að likami þeirra gat varðveitzt
næstum óendanlega viö vissar að-
stæður. .
Þar sem Faraóarnir voru ekki
taldir til venjulegs fólks, heldur
guða, hefði það verið mikið áfall
fyrir þjóðina, ef „ka” konungsins
hefði horfið. Faraóinn var
sólguðinn Ra endurfæddur og án
hans gat lifið á hörðinni ekki
þrifizt. Þess vegna varð aö
smyrja látinn Faraó eins vel og
hægt var og múmiuna varö aö
vernda fyrir grafarræningjum og
eyðileggingu. Þess vegna urðu
egypzku konungagrafirnar ein
þau mestu minnismerki, sem
heimurinn hefur þekkt. Og ekki
aðeins minnismerki, heldur hibýli
guðakonunganna einnig.
Þarna gátu þeir haldið áfram að
lifa eftir dauðann, umkringdir
gifurlegum fjársjóðum, gulli og
gimsteinum, sem þeir áttu að
taka með sér inn i næsta lif.
Orsök þess, að grafhýsin voru
byggð með pýramidalagi, var sú,
að hinn heilagi steinn, sem stóð i
innri garði musteris sólguðsins
var pýramidalagður. Hann
táknaði sólarljósið, sem sendi
geisla sina i allar áttir út yfir
jörðina. Þegar Faraóarnir urðu
einvaldir á 3. og 4. árþúsundinu
fyrir Krist, ákváðu þeir, að lif
þeirra eftir hinn jarðneska dauða
skyldi halda áfram i risavöxnu
minnismerki með sama lagi og
hinn heilagi sólsteinn.
Stærst allra bygg-
inga
Bygging á borð við
Keopspýramidann hefur væntan-
lega krafizt geysilegs mannafla
og þess vegna var aöeins hægt aö
reisa hann, þegar auðurinn var
mikill i landinu og allir nutu
allsnægta — og allt vald'var’ hjá
einum aðila — Faraó.
Slikt timabil hófst um 2780 f.
Kr„ þegar Keops, Kefren og
Mykerinos, byggingameistararn-
ir miklu reistu minnismerkin við
Gizeh.
Keopspýramidinn var reistur
fyrsturogþaðvaræðsti ráðherra
konungs og æðstiprestur,
Imhotep, sem stjórnaði verkinu.
Valinn var flatur staður á vinstri
bakka Nilar og hafizt handa við
stærstu byggingu heimsins.
Margir hafa reynt að geta sér
til þess, hvernig Keopspýramid-
inn hafi orðið til. Jafnvel meö
nútima tækni og vélvæðingu er
það ekkert smáfyrirtæki að
höggva 2,3 milljónir grjót-
hnullunga út úr klöpp og flytja
siðan steinana yfir Nil og upp að
byggingarstaönum, þar sem
hver steinn er meira en einn
rúmmetri og um 2,5 lestir að