Tíminn - 29.07.1973, Blaðsíða 36

Tíminn - 29.07.1973, Blaðsíða 36
TÍMINN Sunnudagur 29. júlf 1973. 36 I Mesta vegagerðar áætlun sögunnar 13000 km bílabrautir í V-Þýzkalandi árið 1985 Sérfræbingar samgöngumála- rá&úneytisins i Bonn vinna nú aö framkvæmdaáætlunum um vega- mál. Bilabrautakerfi V.-Þýzka- lands, sem í árslok 1972 var um 4800 km. á aö verða komið upp i 13000 km 1985. Framkvæmd þessi er eitthvert mesta fyrirtæki sam- göngumálaráðuneytisins, enda er þetta mesta vegageröaráætlun I allri sögu Evrópu. Eitt erfiðasta vandamálið er áð komast hjá þrengslum á vegamótum, þar sem mikið álag myndast. Þar þarf að leggja af- leggjara samhliða aðalbrautun- um til að dreifa umferðinni. Þá þarf aö bæta vegakerfið milli iðnaðarhverfa og verzlunar- hverfa, svo og til útivistarsvæða og gististaða. Allt á þetta að ger- ast á þremur 5 ára áætlunartima- bilum, I áföngum, frá 1970 til 1985. Kostnaðaráætlun ráðuneytisins hljóðaruppá 125milljarða marka og á að innheimta helming þess- arar upphæöar með bensin- og brennsluoliuskatti á þessum 15 árum. Hraðbrautir til lang- ferða Sérstök áherzla verður lögö á aö fjölga bilabrautum og hraö- brautum, en þær siðarnefndu eiga aðallega aö þjóna hraöakstri og umferð á langferðaleiðum. V.- Þýzkaland er nú i þriðja sæti i vegamálum, næst á eftir Bandarikjunum og Japan. Þegar þessar þrjár 5 ára áætlanir verða komnar til framkvæmda, verður V. Þýzkaland með þétt- asta vegakerfi jarðár. Til þess að mæta þeim kröfum, sem siaukin umferð vélknúinna ökutækja gerir, hefur einnig veriö gerö áætlun um aögerðir til að leysa umferðarvandamál borganna sjálfra. Innan stórborg- anna verður hafizt handa um að leggja neðanjarðarbrautakerfi og hefur þegar nokkuð áunnizt i þvi efni. Hraðbrautakerfi mun tengja saman Rhein-Main-heruðin og Ruhr og létt á umferðinni á milli þessara stóru, þýzku iðnaðarmið- stöðva. Almenningsvagnar aðalatriði Allar þessar framkvæmdir eru miðaðar við framtiðarþarfir. Al- menningsvagnar eiga aö sjá um, aö innan fárra ára komist fólk á sem skemmstum tima inn i hjarta borganna og fljótar, en ef það notaði eigin bila, en nú á fimmti hver Þjóðverji bil. Umferð eigin ökutækja mun þá minnka að mun. Eftirfarandi upplýsingar gefa nokkra hugmynd um vandamál- ið, sem leysa þarf: Af 60 milljón- um Ibúa i V.-Þýzkalandi óku, i árslok 1970, um 17 milljónir á vélknúnum ökutækjum um vega- net landsins, þar af um 12 milljónir á fólksbílum. Reiknað er með, að um 20 milljónir fólks- bfla verði I umferö að tólf árum liönum og þá mun þriðji hver Þjóðverji eiga einkabil. Vaxandi vöruflutningar Hin gifurlega umferð fólks- flutningstækja er þó aðeins eitt af umferðarvandamálunum. Fram- leiöslan vex stöðugt og þar með vöruflutningar. Stefnt er að þvi, aö hægt verði að flytja vörur beint frá framleiðanda til kaupanda og stórum þungaflutningavögnum fjölgar þvi óðum. Þetta tefur mikiö alla umferð fólksbilanna. A sama tima standa vöruflutninga- vagnar járnbrautanna tómir og hreyfingarlausir á teinunum. Við þessu hafa stjórnvöld reynt að sjá og sett reglur um skipulag vöruflutninga á langleiðum m.a. lagt sérstakan skatt á slika flutn- inga. Af þeim tekjum er svo varið 250milljónum marka til að stuðla að betra skipulagi á flutningum með járnbrautarlestum og vöru- flutningabilum. Þúsundir banaslysa. Auk þess sem stórnvöld vinna að þvi að leysa umferðaröng- þveitið með aukinni vegagerð, er stefnt að þvi að koma i veg fyrir slys og fækka dauðsföllum. A ár- unum 1967 til 1969 fór að sjást nokkur árangur af þessum að- geröum. Fjölda dauösfalla fækk- aöi úr 17084 i 16584, en 1970 fór aftur að siga á ógæfuhliðina og á fyrra helmingi þess árs urðu 8030 dauðsföll, sem er um 1200 fleiri en var á sama tima áriö áður. Þessi aukning, um 17% krefst aukinna öryggisaðgerða og i þvi skyni var sett ný umferðarreglugerð, sem gekk I gildi vorið 1970. Krafan um strangari ákvæði um vinneyzlu, svo sem að lækka leyfilegt hámarksinnihald blóðs- ins i 0,8 pro mille, fékk byr undir vængi, þegar slysum fór aftur fjölgandi. Til þess að flýta að hjálp berist i slysatilfellum, hefur félag þýzkra bifreiðaeigenda (ADAC) haft björgunarþyrlu til taks i Suður- Þýzkalandi siðan haustið 1970 og þeim mun veröa fjölgað. Sam- bandsstjórnin greiðir verulegan hluta kostnaðarins af rekstri þyrlunnar, sem nemur um 1 milljón marka. Þar sem það hef- ur sýnt sig, að fljót læknishjálp og rétt aðhlynning getur oft riðið baggamuninn milli lifs og dauða, hefur verið lögð áherzla á að fjölga neyðarhjálparvögnum, sem nú eru búnir nýtizku tækjum og innréttingum til að sinna skyndihjálp og jafnframt er ávallt læknir með vögnunum. Til að forðast umferðaröng- þveiti var það ráð tekið að kanna umferðarþunga á vegum ag sér- staklega vöruflutninga um aðal- sumarleyfistima skólanna. Tima- bundið bann hafði að visu ekki þau áhrif, að leyst væri úr öng- þveitinu, en þó hefur það boriö nokkurn árangur, sérstaklega þar sem álag á vegum er þegar orðiö of mikið. Samgöngubætur ! þróunarlöndum Þar sem mörg þróunarlönd eru skammt á veg komin i umferðar- málum, en þörfin fyrir nýtizku samgöngukerfi vex, hefur sam- bandsstjórnin lagt nokkuð af mörkum til aðstoðar i þvi efni — variö fé úr þróunarlandahjálpar- sjóði sinum — og meðal annars kostaösérfræðinga til að vinna að samgöngubótum i þessum lönd- um. Fé þýzkra skattborgara er þvi ekki aðeins varið til samgöngu- bóta innanlands. Or sjóðum þýzku fjárhagshjálparinnar er einnig varið miklum fjármunum til vegagerðar og annarra sam- göngubóta í löndum þriðja heims- ins. (IN-Press) o Hungur trönum. Eskimóar og Indiánar á strönd Norðurkyrrahafs hafa þurrkað og reykt mikinn hluta sumaraflans af laxi frá ómuna tið. Fyrstu landnemarnir i Nýja- Englandi hefðu soltið i hel, ef þeir hefðu ekki haft þurrkaðan lax og þorsk sér til bjargar. Mjólk er ekki hægt að geyma til langframa nema hún sé hleypt. Ostur af margvislegu tagi hefur verið búinn til úr mjólk úr kúm, hryssum, sauðfé, geitum og úlföldum. Ódysseifur er látinn lýsa hellum á eyju Kýklópanna, þar sem voru óralangar hillur hlaðnar ostum og i leikriti sinu um kýklópana talar Aristófanes um osta af ýmsu tagi. Marco Polo lýsir frumstæðri ostagerð fjár- hirða i Mið-Asiu. Mysuostur var búinn til i löndunum i kringum Miðjarðarhaf löngu áður en tekið var að gera hann á Norðurlönd- um. Þjóðflokkar i Saharaeyði- mörkinni geröu osta úr úlfalda- mjólk og Lappar bjuggu sér til ost úr hreindýramjólk fyrir 1500 ár- um. Nýtizku ostagerö, þar sem aðallega er notuð mjólk úr kúm, á upphaf sitt að rekja til Hollands. Varla er hægt að hugsa sér hentugri aðferð til geymslu um langan tima en ostagerð, þegar þurrmeti er annars vegar. Þegar gerlar eru notaðir við framleiðslu á mjólkurvörum er afurðunum ekki hætt við að mygla eins og annars vildi verða. Þessu hafa menn beitt fyrir sig frá aldaöðli. Jóghúrt er eitt dæmi sliks. Stundum myndast fúkka- efnisem halda sýklum og myglu i skefjum. Mjókursýrugerjun i tengslum við salt er mikilvægust þegar not- uð er gerjun við matvæla- geymslu. A slikri aðferð byggir súrkálið, sem öldum saman hefur verið ein helzta kalk og vitamin- lind fátæklinga i Evrópu, þegar mjólk var of dýr eða hana var ekki að fá. Sojabaunir eða jarðhnetur eru uppistaðan i mat eins þriðjungs mannkynsins, þ.e. meðal þeirra þjóða em byggja Kina, Japan, Suðaustur-Asiu og Indónesiu, og til eru meira en eitt þúsund matartegundir unnar úr soja- baunum og jarðhnetum með gerj- un. Kinverjar gera mjólk úr soja- baunum og lika osta likt og Japanir. Sojasósan, sem er höfuðkryddið i Austurlöndum er til orðin við gerjun i tengslum við salt og er lika notuð við geymslu á fiski. Gerjaður fiskur Gerjaður fiskur af ýmsu tagi er mikið etinn i hitabeltislöndum. Það er saltiö sem stýrir gerjun- inni. Eggjahvitan varðveitist og við gerjunina veröa til ýmis fjör- efni. Rómverjar keyptu frá Grikklandi og Svartahafslöndúm fisk, em hafði gerjað i leirkrukk- um, þangað til hann varð allt að þvi fljótandi. Kaþólskir munkar munu á 18. öld hafa kennt þjóðum i Suöaustur-Asiu að búa til fisk- sósur á svipaðan hátt. Þannig hefur maðurinn alla tið verið ærið ráðsnjall, þegar hann þurfti að tryggja afkomu sina. Vel má vera að ýmsar þessar að- ferðir geti komiö aö góðu haldi i baráttunni viö hungrið i heimin- um, sem fer sivaxandi. Þýtt litillega stytt HHJ 0 Útlönd hinni gömlu kynslóð, sem þroskuð er samkvæmt hefð Buddha. Kinverjar hafa sjálf- ir alið þá upp I kommúnisma. Þetta er aðeins ný sönnun þess, að tibetsk þjóðernis- stefna mun ávallt segja til sin þrátt fyrir drottnun Kin- verja.” DALAI Lama var spurður, hvort honum fyndist ekki, eftir fjórtán ára útlegð, að hann hefðist litið að og biði þess eins, áð Tibetbúar heima finndu sina eigin lausn á deil- unni við Kinverja. Hann var einnig spurður, hvort hann teldi ekki, að hann hefði gegnt virkara hlutverki ef hann hefði verið kyrr i Lhasa. Dalai Lama sat um stund hljóður og hleypti i brýrnar. Siðansvaraði hann á ágætri ensku: ,,Nei, alls ekki. Umskiptin, sem orðið hafa i Tibet, hefðu orðið með sama hætti, hvar sem ég hefði verið. En rödd Tibets hefði ekki borizt til eyrna umheimsins ef ég hefði verið kyrr. Ég hefi verið þessi rödd”. HUSGAGNAVINNUSTOFA Ingvars og Gylfa Sérverzlun í hjóna- og einstaklingsrúmum, án eða með göflum. Allar breiddir og lengdir Vikulegar nýjungar Húsgagnavinnustofa Ingvars og Gylfa Grensásvegi 3 — Simar 33-5-30 og 36-5-30. 0 Ambassador ið? Jæja — ekki svo mjög stór — aöeins 17 kg á flugu. En ég hef heldur ekki misst neinn stærri! Náttúran við norskar laxveiðiár er lika alveg einstaklega fögur. Áhyggjufullur vegna framtíðar laxins — Hvert er álit yðar á norska laxastofninum? — Ég hef áhyggjur af framtið hans. Virkjunarframkvæmdir virðast vera alvarleg ógnun norskum laxveiðiám, og ég vona að Norðmenn uppgötvi bráðlega aðrar orkulindir en veiðiárnar. önnur ógnun eru veiðarnar I sjónum við Noreg. Nú er veriö að takmarka laxveiðar á alþjóðlegu hafsvæöi við Grænland og þeim verður hætt að fullu 1976. Þá verður herjað enn meir á norska laxastofninn úti fyrir strönd Nor- egs. Þvi ætti þegar i stað að koma á svipuðum reglum um laxveiðar úti fyrir norsku ströndinni. Þaö er norskurlax, sem veiðist, og Norð-Í menn ættu að hafa sérstakan áhuga á, að tákmarkalausar lax- veiðar á alþjóðlegum siglinga- leiðum yrðu stöðvaðar, eins fljótt og unnt er. Crowe ambassador hlakkar til að setjast að heima á búgarði sin- um i Maryland eftir mörg löng ár i utanrikisþjónustunni, en við vit- um að áhugi hans á að vernda dýr, sem eiga útrýmingu á hættu, um heim allan deyr ekki. Við þökkum honum mikið framlag og óskum honum allra heilla i náttúruverndarstarfsemi hans. Þýtt og endursagt S J © 50 dagar mengað ýldufýlunni af kjötinu. Tiira sá ekki lengur uppblásinn maga hins látna félaga sins. Hon- um.létti óumræðilega. Og i fyrsta sinn á flekanum fann hann þörf hjá sér til að biðja. 22 kiló eftir 48 daga Ótrúleg sjón Hvað gerðist næstu daga, man Tiira ekki glögglega. En hann hlýtur að hafa safnað nokkru regnvatni, þvi að þegar enski flutningabáturinn „Alendi” fisk- aöi hann upp, eftir að hann hafði v erið 48 daga á flekanum, var enn svolitið vatn I plastpokanum. Nóttina, sem Tiira fannst, var kyrrt i veðri og glaða tunglskin. Skipstjórinn á „Alendi” fannst hann heyra undarlegt bankhljóð. Það var frá hinum hálfbrjálaða Tiira, sem sat og barði stöðugt i flekann með annarri árinni, og á meðan gerði hann ýmist að væla, biðja eða muldra með sjálfum sér. Það var næsta ótrúleg sjón að sjá hann. Nú gerðist það undarlega, að i stað þess að senda út bát til að ná I Tiira, kaus hann að reyna að mjaka „Alendi” hægt og hægt að flekanum. Það tók næstum þrjá tima, og i hvert skipti sem skipið sigldi framhjá, hélt Tiira, að hann myndi ekki verða tekinn um borð. Seinna sagði hann, að þetta hefði verið erfiðasti timinn alla 48 dag- ana á flekanum. Að lokum var beinagrindin, sem eitt sinn hafði verið maður, hifð um borð i „Alendi”. Klukkan var þá nákvæmlega 03:20, 12. april 1953, og það voru 48 dagar liðnir frá þvi, er Ericson og Tiira stukku af „Skaubryn” i Malakka- sundi. Astandi Tiira verður ekki lýst frekar. Það nægir að segja, að þessi 24 ára maður vóg, er hann var tekinn um borð, aðeins 22 kiló. Tiira hafði verið mun veik- byggðari er Ericson, er þeir lögðu upp i flóttann til Súmatra, engu að siður hafði hann lifað af, en sá sterkbyggði dáið. Fimm dögum seinna kom „Al- endi” til Singapore, þar sem Tiira var þegar settur á sjúkrahús. Mánuði siðar var hann á leið heim i finnsku skipi, ekki friskur, en ferðafær. Hann hafði staðizt mestu raun, sem hægt er að ganga i gegnum og lifað af svo naumlega, sem verða má. Það þarf engan að undra, þótt þessir 48 dagar standi honum enn skýrt fyrir hugskotssjónum, 20 árum seinna. —(Þýtt/endursagt — Stp)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.