Tíminn - 29.07.1973, Blaðsíða 31

Tíminn - 29.07.1973, Blaðsíða 31
Sunnudagur 29. júl! 1973. TiMINN 31 sterka í karlmanninum, fær hún oft huggun og stuðning að launum — já og stundum lika loðfeld og uppþvottavél. — Er ekki betra að herða upp hugann og koma sér upp vöðva- brynju til verndar heldur en gefa tilfinningunum lausan tauminn hvert sinn sem eitthvað gengur i mót? — Að vissu marki þurfa menn (og konur) að setja á sig hörku- grimu. En i of miklum mæli verð- ur það skaðlegt. Slikt kemur m.a. fram i sálrænum sjúkdómum, sem hafa likamleg einkenni. Ef tilfinningarnar fá ekki útrás reynir það á llkamsþrekið og mótstaðan gegn sjúkdómum veikist. Karlmönnum er hættara við sjúkdómum af þessu tagi en konum. Magasár er t.d. algeng- ara meðal karlmanna. — En svo virðist oft sem taugaóstyrkur sé algengari hjá konum en körlum? — Konur eru kannski almennt taugaóstyrkari er karlar. En jafnframt eru þær afslappaðri af þvi að þær fá að láta i ljós tilfinn- ingar sinar. Þær eru mýkri i hreyfingum og öllu fasi, af þvi að enginn krefst þess af þeim'að þær brynji sig með grimu karl- mennskunnar. Konum en ekki körlum leyfist að finna til i lifinu, hvort sem er i ótta, óvissu eða gleði. — Er þetta nú ekki að breyt- ast? — Jú, þess sjást greinileg merki að minni kröfur eru nú gerðar til að karlmenn bæli alla tið niður tilfinningar sinar og séu sterkara kynið. — Koma forystukonur sér upp samskonar karlmennskubrynju og karlar? — Já, að meira eða minna leyti. Þær neyðast oft til að bæla niður ótta sinn og öryggisleysi og herða sig upp i að ráða við starf, sem krefst mikils. — En ef maður sýnir karl- mennsku i starfi yíirfærist hún ekki á einkalifið? — Mörgum tekst prýðilega að greina á milli starfs og einkalifs. Starfshlutverk er starfshlutverk, og i þvi getum við hegðað okkur allt öðru visi en t.d. i samkvæmis- lifinu eða heima, segir sálfræð- ingurinn, sem sjálfur er f jarri þvi að vera brynjaður einhverri hörkugrimu. Paul Moxnes hefur stýrt mörg- um námskeiðum i tilfinninga- næmi, sem sótt eru af fjölmörgu fólki, sem hefur mikla ábyrgð og er önnum kafið. — A námskeiðunum lærir fólk að þekkja sinar eigin tilfinningar, sem eru að baki grimunnar, sem við berum dags daglega. Þetta á ekki aðeins við um karlmenn — konur fela lika margar af tilfinn- ingum sinum. — Það er mikilvægt að gera sér ljóst að tiifinningarnar eru til staðar, bæði þær jákvæðu og þær neikvæðu. En það er ekki endi- lega rétt að básúna þær út við hvert tækifæri, sem gefst.... Þýtt og endursagt úr norsku. -SJ. SKODA 100S KR. 288.000.00 SKODA 100L KR. 299.000.00 SKODA 110L KR. 306.000.00 SKODA 110LS KR. 350.000.00 SKODA 110R COUPÉ KR. 383.000.00 Innifolið í verði er söluskattur , vélarhlíf, aurhlífar, öryggisbelti, 1000 og 5000 km eftirlit, auk fjölmargra aukahluta. TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H.F. AUÐBREKKU 44-6 SlMI 42600 KÖPAV0GI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.