Tíminn - 29.07.1973, Qupperneq 27
BARATTAN UM KNÖTTINN... Guöni og John Royle, miðvörður Everton, sjást hér berjast
við hann. Sennilega getur Guðni
manna helzt gefið skýringu á vel-
gengni liðsins, og skulum þess
vegna gefa honum orðið:
„Það er margt, sem hefur
hjálpazt að. 1 fyrsta lagi höfum
við átt þvi láni að fagna að eiga
góðan efnivið. t öðru lagi hefur
stjórn tþróttabandalags Kefla-
vikur, undir forustu Hafsteins
Guðmundssonar, verið styrk. Og i
þriðja lagi hafa bæjaryfirvöld
verið.
iþróttafólki i Keflavik afar hlið-
holl. Eins mætti nefna það, að við
höfum verið mjög heppnir með
þjálfara, ekki sizt með núverandi
þjálfara, Joe Hooley frá Bret-
landi, sem hefur haft mjög góð
áhrif á liðið.”
islandsmeistaratitill í
seilingarfjarlægð
Um þessar mundir hefur Kefla-
vikur-liðið fljúgandi byr i 1.
deildar keppninni, og ekkert
nema kraftaverk virðist geta
hindrað það, að Keflvikingar
verði tslandsmeistarar i ár. Vals-
menn eru hættulegustu and-
stæðingar þeirra, og e.t.v. fæst úr
þvi skorið nú um helgina, hvort
Keflvikingar verði stöðvaðir, en
þá leika þeir einmitt gegn Val,
Vist er um það, að Guðni
Kjartansson með Einar Gunnars-
son sér við hlið verða ekki auð-
veld hindrun fyrir Hermann
Gunnarsson og félaga.
Eins og fyrr segir, er Guðni
Kjartansson 26 ára gamall. Hann
er iþróttakennari að mennt og
starfar sem iþróttakennari i
Njarðvikum. Guðni er kvæntur
Erlu Ottesen.
1 LEIK GEGN REAL MADRID............ Keflvikingarnir Guðni, Steinar, Gisli og llörður Ragnarsson sjást br I leik gegn Real Madrid á Laugar-
dalsvellinum.
og verið fyrirliöi landsliðsins i
siðustu leikjum liðsins.
Skorar fá mörk
Guðni er fyrst og fremst
varnarleikmaður, þó að hann hafi
leikið i tengiliðastöðu með góðum
árangri, og lætur framlinuleik-
mennina um það að skora
mörkin, þó að það sé raunar
komið i tizku, að öftustu varna-
menn taki fullan þátt i sóknarleik,
ef svo ber undir, og skori mörk.
Guðni hefur t.d. aldrei skorað
mark i þeim 28 landsleikjum, sem
hann hefur tekið þátt i, en hins
vegar skorað nokkur mörk fyrir
Keflavik.
Af landsleikjum, sem Guðni
hefur tekið þátt i, telur hann
sigurleikinn gegn Noregi, 2:0, á
Laugardalsvellinum, eftirminni-
legastan. En af einstökum lands-
leikjaferöum erlendis segir hann,
að ferðin til Bermuda hafi verið
ánægjulegust.
Hver er ástæðan fyrir
velgengni Keflavikur-
liðsins?
Þau ár, sem Guðni Kjartansson
hefur leikið með Keflavik, hafa
verið uppgangsár fyrir knatt-
spyrnuna i Keflavik. Liðið hefur
annað hvort verið á toppnum eða
Sigraði Martin Chivers
í skallaeinvigum
Alan Ball er ekki eina stór-
stjarnan, sem Guðni hefur átt i
höggi við. t leikjum Keflavikur
gegn Tottenham i Evrópubikar-
keppninni hafði Guðni það hlut-
verk með höndum aö gæta hins
fræga sóknarmanns. Martin
Chivers, og tókst það sérlega vel,
eins og sést á umsögn iþróttasiðu
Timans eftir leikinn á Laugar-
dalsvellinum:
„Guðni Kjartansson hélt hinni
frægu stjörnu, Martin Chivers,
alveg i skefjum. Jafnvel i skalla-
einvigum, þar sem hann er talinn
sérfræðingur, varð hann að láta i
minni pokann fyrir Guðna.”
Fyrsti landsleikurinn
ekki upplífgandi
Guðni hóf að leika með
meistaraflokksliði Keflavikur
1964, en var þó lengst af vara-
maður. Hins vegar var hann
orðinn fastur leikmaður með
liðinu næsta ár á eftir. Guðni
hafði verið valinn i landsliðið,
sem skipað var leikmönnum 23ja
ára og yngri, sem þátt tók i
keppni við Norðmenn og Svia á
Laugardalsvellinum. Liðið sýndi
góða frammistöðu, sigraði Noreg,
en tapaði með litlum mun fyrir
Svium. Kjarninn úr þessu liði
myndaði landsliðið 1967, og lék
Guðni þá sinn fyrsta a-landsleik.
Þessi fyrsti landsleikur var ekki
sérlega upplifgandi, þvi að þetta
var 14-2 leikurinn frægi á Idræts-
parken i Kaupmannahöfn.Siöan
hefur Guðni leikið 28 landsleiki
A LANDSLIDSÆFINGU... Guðni
að æfa sig með knöttinn.
Guðni er
þéttur
fyrir og
sleppir
andstæð-
ingunum
ógjarnan
inn
fyrir sig
Chivers
þurfti að
lóta í
minni
pokann
fyrir
honum