Fréttablaðið - 22.08.2004, Page 12
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
guðleif jónsdóttir
Hjallaseli 41, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 24. ágúst kl. 13.30.
Ingibjörg Þórarinsdóttir Þorvaldur Kjartansson
Hrefna Þórarinsdóttir Ingi Kristmanns
Viðar Þórarinsson Alda Pálmadóttir
ömmu- og langömmubörn
Ólafur Þórðarson, þjálfari Skaga-
manna, hefur aðeins eitt markmið
fyrir 39 ára afmælisdaginn sinn.
„Nú, að vinna FH-ingana,“ segir
hann ákveðinn. „Ég þoli ekki að
tapa, það er alveg á hreinu að ég
ætla ekki að standa í því á afmæl-
inu.“ FH tekur á móti keppnisóð-
um ÍA-mönnum í Kaplakrika í dag
og segir Ólafur daginn að mestu
leyti fara í leikinn. „Ég ætla á
sæmilegum tíma á lappir, hugsan-
lega út í garð að smíða sólpall
svona fram að hádegi, það veitir
ekki af í blíðunni hérna á Skagan-
um. Liðið fer svo í samfloti í bæ-
inn, við byrjum á kaffi og léttu
fæði fyrir leikinn á Loftleiðum.
Þar förum við yfir stöðuna og tök-
um klukkutíma leikmannafund.
Andinn í liðinu er yfirleitt mjög
góður svona fyrir leik en misjafn
eftir á. Við ætlum okkur að vinna
FH í dag, það er alltaf mögulegt að
vinna og snýst bara um hugarfar
leikmannanna. Fáir trúðu því til
dæmis að Ísland gæti unnið Ítalíu
á Laugardalsvelli, sem sýnir bara
að það er allt hægt í fótboltanum.“
Eftir leikinn í Kaplakrika fara
ÍA-menn til síns heima og Ólafur
sér ekki fram á að það verði fyrr
en seint í kvöld. „Það er aldrei að
vita nema maður bjóði nánasta
fólki í kaffi en stórveisla verður
nú tæplega haldin.“
Vikan sem kemur verður
Skagamönnum strembin en á
fimmtudaginn takast þeir í Evr-
ópukeppninni á við sænska liðið
Hammarby, sem sigraði ÍA með
tveimur mörkum gegn engu í síð-
asta leik. „Þetta verður vinna og
aftur vinna, ekkert öðruvísi. Stíf-
ar æfingar nánast daglega alla
vikuna en við vitum að leikurinn
verður gríðarlega erfiður. Þetta
eru atvinnumenn í töluvert öðr-
um gæðaflokki en við en ég
treysti á að hjarta leikmannanna
verði á réttum stað og þeir gefi
allt sem þeir eiga. Við töpuðum
útileiknum og þurfum því að
koma á þá tveimur mörkum en
okkur dreymir um þrjú. Það verð-
ur gríðarlega erfitt.“
Ólafur segist hafa um ýmis-
legt annað að hugsa en afmælis-
daga almennt en segir þó aldur-
inn leggjast vel í sig. „Það er gott
mál að eldast svo framarlega sem
maður þroskast samhliða.“ ■
12 22. ágúst 2004 SUNNUDAGUR
SÖNGKONAN TORI AMOS
er 41 árs í dag.
ANDLÁT
Jóhann Halldórsson, útgerðarmaður,
Höfðavegi 34, Vestmannaeyjum, lést 18.
ágúst.
Dýrleif Yngvadóttir, Heiðarlundi 2,
Akureyri, lést 19. ágúst.
Friðfinnur Júlíus Guðjónsson verkstjóri,
Hrafnistu, Hafnarfirði, lést 19. ágúst.
Hörður Sigurvinsson, Safamýri 56, lést
19. ágúst.
Viggó Rúnar Einarsson lést 19. ágúst.
Í síðustu stórorrustu enska Rósa-
stríðsins var Ríkharður III, kon-
ungur Englands, sigraður og
drepinn í bardaganum við
Bosworth Field af Hinrik Tudor,
jarlinum af Richmond. Eftir bar-
dagann fannst kórónan sem Rík-
harður hafði borið í atinu í runna
og var hún sett á höfuð Hinriks.
Með krýningu Hinriks VII, kon-
ungs Englands, varð Tudor-fjöl-
skyldan höfuð Englands og var
það allt þar til Elísabet drottning
lést árið 1603.
Mikið valdastríð hófst á
Englandi á sjötta áratug 15. aldar
á milli erfingja Játvarðs III, York-
fjölskyldunnar sem bar hvíta rós
sem sitt merki, og erfingja Hin-
riks IV, Lancaster-fjölskyldunnar
sem bar rauða rós. Báðar þessar
fjölskyldur gerðu kröfu til krún-
unnar.
Frá 1455, þegar stríðið er talið
hefjast, færist krúnan nokkrum
sinnum á milli fjölskyldna þar til
1485. Ríkharður tilheyrði York-
fjölskyldunni en Hinrik Tudor-fjöl-
skyldunni, sem var blóðtengd
Lancaster-arminum. Tudor-fjöl-
skyldan átti sterka kröfu til krún-
unnar þar sem flestir aðrir sem
komu til greina höfðu látist í þessu
þrjátíu ára stríði. Hinrik VII giftist
Elísabetu, dóttur Játvarðs IV, til að
styrkja stöðu sína og sameinaði
þannig York- og Lancaster-fjöl-
skyldurnar. Sonur þeirra, Hinrik
VIII, var faðir Elísabetar I Eng-
landsdrottningar. Enn má sjá
merki Rósastríðsins í kráarnöfn-
um í Englandi, en á þeim krám sem
báru nafnið Rose and Crown gátu
hermenn konungs vitað að þeim
væri óhætt að dvelja. ■
ÞETTA GERÐIST
BARDAGINN VIÐ BOSWORTH FIELD
22. ágúst 1485
„Sumt yndislegasta fólk í heimi er það sem
passar ekki í fyrir fram gefin mót.“
Tori Amos að lýsa aðdáun sinni á hinu óvenjulega, sem
jafnt á við óvenjulegt fólk.
Rósastríðinu lýkur
Tapar ekki á afmælinu
ÓLAFUR ÞÓRÐARSON: AFMÆLISBARNIÐ TEKST Á VIÐ FH Í KAPLAKRIKA
VIKAN SEM VERÐUR: YNGVI PÉTURSSON FER AFTUR Í SKÓLANN
Allt í föstum skorðum
Hjartkær móðir mín, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
þóra h. jónsdóttir
Hrafnistu Reykjavík, áður Dragavegi 11,
sem lést þann 14. ágúst síðastliðinn, verður jarðsungin frá Grensáskirkju
þriðjudaginn 24. ágúst kl. 15.00 Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð,
en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á
Minningarsjóð Sjómannadagsins Hrafnistu.
Sonja Berg Sverrir Sigurðsson
Sigurður Sverrisson Helga Lilja Pálsdóttir
Þóra H. Sverrisdóttir Sævar Árnason
Oddný Ósk Sverrisdóttir
langömmubörn og langalangömmubörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
anna pálína jónsdóttir
frá Sauðhúsum, Ögurási 3, Garðabæ,
verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í Garðabæ
þriðjudaginn 24. ágúst kl.13.30.
Egill Jón Benediktsson
Birgir Símonarson María Kristín Lárusdóttir
Johnny Símonarson Hugrún Ásta Elíasdóttir
Helen Gunnarsdóttir
Benedikt Egilsson Sigrún Eyjólfsdóttir
Jón Egilsson Sigurborg Valdimarsdóttir
Herdís Egilsdóttir Brynjólfur Garðarsson
ömmubörn og langömmubörn.
Það er að mörgu að huga fyrir
komandi viku hjá Yngva Péturs-
syni, rektor við Menntaskólann í
Reykjavík, en skólasetning fer
fram við hátíðlega athöfn í Dóm-
kirkjunni á mánudaginn. „Þá
göngum við frá Lækjargötunni
undir skólafána og séra Hjálmar
dómkirkjuprestur tekur á móti
okkur. Kór menntaskólans syngur
og svo set ég skólann með mjög sí-
gildri ræðu þar sem ég segi frá
væntanlegu skólastarfi, nemend-
um og starfsfólki. Loks fara nem-
endur aftur í sínar stofur, taka á
móti kennurum sínum og verða
settir fyrir.“
Yngvi játar að ýmislegt þurfi
að smella saman á næstu dögum.
„Þetta verður annasöm vika, líkt
og mánuðurinn hefur verið allur.
Ég stýri ýmsum viðhaldsverkefn-
um, það þarf að undirbúa skóla-
starfið, raða niður í bekki, ráða
inn starfsfólk og fleira. Í vikunni
hefja á annan tug nýrra kennara
störf við skólann, fjöldinn er því-
líkur vegna valgreina sem við
bjóðum upp á og því margir kenn-
arar með litla kennsluskyldu.
Annars er allt í föstum skorðum
hér í skólanum.“
Á meðan hitabylgjan ríður yfir
þykir Yngva þó ekkert erfitt að
byrja í skólanum aftur. „Ég hugsa
bara til hinna ýmsu Evrópulanda
þar sem hitinn er miklu meiri og
skólaárið lengra, þá er allt í lagi að
byrja veturinn. Mér þykir
skemmtilegt að sjá nýnemana og
taka á móti glöðum krökkum. Ég
er þeirrar gæfu aðnjótandi að
kenna alltaf einum bekk en ég er
að taka við nýjum hóp núna.“
Í vikulok tekur Yngvi þátt í
málþingi viðskiptadeildar Há-
skóla Íslands og fjallar um upp-
lýsingatækni í skólum. Hann von-
ar að MR standi sig vel á því sviði
sem öðrum. ■
YNGVI PÉTURSSON Rektor Menntaskól-
ans í Reykjavík er spenntur að sjá glaða
nemendur þegar skólinn hefst á ný í vik-
unni.
AFMÆLI
Árni Bergmann, fyrrv.
ritstjóri Þjóðviljans, er 69
ára.
Þórarinn Eldjárn rithöf-
undur er 55 ára.
Heiðar Helguson knattspyrnumaður er
27 ára.
12-13 tímamót 21.8.2004 20:19 Page 2