Fréttablaðið - 07.09.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 07.09.2004, Blaðsíða 8
8 7. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR Kerry óvenju harður í gagnrýni sinni á Bush og Íraksstríðið: Rangt stríð á röngum tíma BANDARÍKIN, AP „Þetta var rangt stríð, háð á röngum stað á vit- lausum tíma,“ sagði John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, í beittustu gagnrýni sinni á inn- rásina í Írak til þessa. Kerry sagði á framboðsfundi í Pennsyl- vaníu að hann ætlaði sér að reyna að kalla bandaríska herlið- ið í Írak heim á fyrra kjörtíma- bili sínu sem forseti. George W. Bush Bandaríkja- forseti fékk að heyra það. „Þessi forseti æddi út í stríð án þess að hafa áætlun um hvernig hann ætlaði að vinna friðinn og hann hefur kostað ykkur 200 milljarða dollara (andvirði 14.500 millj- arða króna) sem hefði mátt verja í skólana, heilbrigðisþjónustuna, lyfin eða almannatryggingar,“ sagði Kerry. Honum þótti heldur ekki mikið til bandalags hinna viljugu koma og kallaði það „það falskasta sem ég hef heyrt“. Ummælin lét Kerry falla í ræðu við upphaf kosningaferða- lags um þrjú ríki eftir að nýleg skoðanakönnun sýndi ellefu pró- senta forskot Bush. ■ ÍBÚÐARLÁN „Lykilatriði er að fólk leiti ráðgjafar í banka sínum eða sparisjóði,“ segir Guðjón Rúnars- son, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, um þá kosti sem fólki standa til boða varðandi fjármögnun og endurfjár- mögnun húsnæðislána. „Mjög per- sónubundið getur verið eftir að- stæðum fólks hvað hentar best,“ segir hann og telur fólk ekki þurfa að hlaupa til í endurfjármögnun, heldur sé vænlegra að gefa sér tíma. „Einn til tveir mánuðir breyta ekki öllu,“ segir hann. Þó svo að myntkörfulán kunni við fyrstu sýn að virðast mun hag- stæðari en lán í krónum, segir Guðjón mikilvægt að hafa í huga að þau feli í sér áhættu. „Það sýnir ekki rétta mynd að reikna slíkt lán út frá óbreyttum forsendum miðað við daginn í dag. Gengið hreyfist til og frá og svo geta vextir líka breyst erlendis, rétt eins og hér heima,“ segir hann og bendir á að undanfarið hafi vaxtaþróun ytra frekar verið til hækkunar. Guðjón segir sveiflur í afborgunum jafnast út yfir lengri tíma, en bendir um leið á að ýmislegt geti orðið til að fólk þurfi að breyta láni eða selja og greiða upp og engin trygging sé fyrir hagstæðum aðstæðum á þeim tímapunkti. Þá þarf ekki að horfa lengra aftur en til ársins 2001 til að finna dæmi um gengissveiflur sem leitt hefðu getað til verulegrar aukningar afborgana hjá fólki með lán í erlendri mynt. Guðjón segir allt benda til að breytingar á lánakjörum til al- mennings nú séu bara fyrstu skref- in á langri braut þar sem eigi eftir að bætast við fleiri kostir í útlánum og samkeppni aukist enn. Hann telur jafnvel líklegt að erlend fjár- málafyrirtæki muni leitast við að bjóða hér ýmsa þjónustu, svo sem húsnæðislán, í samkeppni eða jafn- vel samstarfi við bankastofnanir sem hér eru fyrir og segist sjálfur vita til þess að erlendar banka- stofnanir séu að hugleiða þau mál. Á heildina litið telur Guðjón bjart yfir. „Við erum að horfa upp á mikla raunvaxtalækkun auk þess sem bankar hafa stækkað tífalt frá árinu 1997. Allar líkur eru á að vaxtamunur milli Íslands og annarra landa haldi áfram að minnka,“ segir hann. olikr@frettabladid.is FASTUR KOSTNAÐUR VIÐ ENDUR- FJÁRMÖGNUN LÁNA: Lánsupphæð til endurfjármögnunar: 10.000.000 krónur Stimpilgjald 1,5 %: 150.000 krónur Lántökugjald 1 % : 100.000 krónur Heildarkostnaður: 250.000 krónur Nýju húsnæðislánin Fastir vextir Breytilegir vextir Fasteignalán Lánstími 25 eða 40 ár 25 eða 40 ár Allt að 40 ár Vextir 4,2% 4,2% (endursk. 5 ár) Fastir 5 til 7% Innágreiðsla Nei Nei Já Lántökugjald 1% 1% 1-2% Myntkörfulán Blönduð lán (krónur og gjaldeyrir) Lánstími Allt að 40 ár Allt að 40 ár Vextir Breytilegir (frá 2,5%) Breytilegir Innágreiðsla Já Já Lántökugjald 1-2% 1-2% SVONA ERUM VIÐ INNFLUTT TONN AF BENSÍNI Stúlka lamaðist í andliti eftir lýtaaðgerð – hefur þú séð DV í dag? Læknar firra sig ábyrgð BÍLVELTA Á FRÓÐÁRHEIÐI Bíll valt á Fróðárheiði á Snæfells- nesi seinnipartinn í gær. Þrír er- lendir ferðamenn voru í bílnum en engin meiðsl urðu. Bíllinn er talsvert skemmdur. BÍLVELTA VESTAN VIÐ BLÖNDUÓS Bílvelta varð skammt fyrir vestan Blönduós í fyrrinótt. Ökumaðurinn hlaut minniháttar meiðsl en hann var einn í bílnum sem skemmdist þó nokkuð að sögn lögreglu. HRAÐAKSTUR Á SUÐURLANDI Lögreglan á Selfossi tók alls sextán ökumenn fyrir of hraðan akstur í gærmorgun. Er það talsvert meira en gengur og gerist þar á bæ en mælt var bæði innanbæjar á Selfossi og eins á þjóðveginum. ■ LÖGREGLUFRÉTTIR Kona á fótboltaleik: Í fangelsi fyrir stripp LETTLAND, AP Lettnesk kona á yfir höfði sér allt að tveggja ára fang- elsisdóm fyrir að hlaupa ber- brjósta inn á völlinn þar sem Lettar og Portúgalar áttust við í fyrsta leik liðanna í forkeppni heims- meistarakeppninnar í fótbolta. Margir áhorfendur virtust kætast mjög þegar konan hljóp út á völlinn en yfirvöldum var ekki skemmt. Eitthvað virtist atvikið setja lettnesku landsliðsmennina út af laginu því Portúgalar skoruðu tvisvar fyrstu mínúturnar eftir að konan beraði brjóst sín og hljóp inn á völlinn. ■ Tölur yfir gistinætur: Fleiri túristar Gistinætur á hótelum í júlí síðast- liðnum voru 17,5 prósent fleiri en á sama tíma fyrir ári síðan, sam- kvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Gistinóttum fjölgaði í öll- um landshlutum þennan mánuð. Í fyrra voru gistinæturnar í júlí tæp- lega 128 þúsund, en voru ríflega 150 þúsund í ár. Aukningin var mest á Austurlandi, en gistinátta- fjöldinn þar jókst um 24,7%. Á höf- uðborgarsvæðinu nam aukningin 22,7%. ■ FRÁ ÍRAK Kerry réðist harkalega að Bandaríkjaforseta í ræðu á kosningafundi í Pennsylvaníu. Júlí 2000 4.434 Júlí 2001 22.511 Júlí 2002 21.656 Júlí 2003 14.750 Júlí 2004 17.342 Heimild: Hagstofa Íslands. GUÐJÓN RÚNARSSON Guðjón telur nánast ómögulegt að spá fyrir um hversu mikinn varasjóð fólk þurfi að eiga til geta mætt mögulegum gengis- sveiflum sem haft geta áhrif á afborganir lána í erlendri mynt. 10 milljónir, 4,2% vextir í 25 ár Afhent 9.748.500 krónur Heildarendurgreiðsla 24.053.648 krónur Árlegt kostnaðarhlutfall 7,55% Mánaðarleg afborgun um 54.000 krónur 10 milljónir, 4,2% vextir í 40 ár Afhent 9.748.500 krónur Heildarendurgreiðsla 39.726.805 krónur Árlegt kostnaðarhlutfall 7,4% Mánaðarleg afborgun um 43.000 krónur 10 milljónir, hefðbundið fasteignalán í 25 ár (miðað við 5,49% vexti) Afhent 9.648.500 krónur Heildarendurgreiðsla 23.827.205 krónur Árlegt kostnaðarhlutfall 9,11% Mánaðarleg afborgun rúmar 79.000 krónur 10 milljónir, hefðbundið fasteignalán í 40 ár (miðað við 5,49% vexti) Afhent 9.648.500 krónur Heildarendurgreiðsla 36.252.395 krónur Árlegt kostnaðarhlutfall 8,91% Mánaðarleg afborgun um 67.000 krónur 10 milljónir, tvískipt (50/50) krón- ur/gjaldeyrir í 25 ár (3% verðbólga, 1% gengishækkun, innl. vextir 5,49% og erlendir 3%)** Afhent 9.648.500 krónur Heildarendurgreiðsla 19.765.670 krónur Árlegt kostnaðarhlutfall 6,98% Mánaðarleg afborgun tæpar 70.000 krónur 10 milljónir, hreint gjaldeyrislán með breytilegum vöxtum í 25 ár (miðað við 1 prósent gengishækkun)** Afhent 9.648.500 krónur Heildarendurgreiðsla 15.685.205 krónur Árlegt kostnaðarhlutfall 4,56% Mánaðarleg afborgun um 60.000 krónur *miðað við 3% verðbólgu og stuðst við reiknilíkan Landsbanka Íslands. **Með fyrirvara um sveiflur sem orðið geta í gengisþróun og vaxtabreytingar erlendis ÁÆTLAÐUR KOSTNAÐUR VIÐ MISMUNANDI FASTEIGNALÁN BANKA*: ALGENGIR LÁNAKOSTIR SEM Í BOÐI ERU HJÁ BÖNKUM OG SPARISJÓÐUM: MUNUR Á LÁNUM TIL 25 ÁRA*: 25 ára lán, 10 milljónir, 6% vextir Mánaðarleg greiðslubyrði: 65.000 krónur 25 ára lán, 10 milljónir, 4,2% vextir Mánaðarleg greiðslubyrði: 54.000 krónur Mismunur á mánuði er um 11.000 krónur Mismunur á ári er um 132.000 krónur Heildarmismunur er um 3,3 milljónir króna *Heimild: Reiknivél KB banka vegna endurfjármögnunar lána. MUNUR Á LÁNUM TIL 40 ÁRA*: 40 ára lán, 10 milljónir, 5,1% vextir Mánaðarleg greiðslubyrði: 49.000 krónur 40 ára lán, 10 milljónir, 4,2% vextir Mánaðarleg greiðslubyrði: rúmar 43.000 krónur Mismunur á mánuði er um 6.000 krónur Mismunur á ári er um 72.000 krónur Heildarmismunur er um 2,9 milljónir króna *Heimild: Reiknivél KB banka vegna endurfjármögnunar lána. Lykilatriði að leita ráðgjafar um lán Misjafnt er hvernig lán henta hverjum. Framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja hvetur fólk til að leita ráðgjafar. Hann segir mikilvægt að hafa í huga að gjaldeyrislánum fylgi áhætta.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.