Fréttablaðið - 12.09.2004, Síða 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 89 stk.
Keypt & selt 22 stk.
Þjónusta 12 stk.
Heilsa 8 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 16 stk.
Tómstundir & ferðir 6 stk.
Húsnæði 20 stk.
Atvinna 33 stk.
Tilkynningar 3 stk.
Námsráðgjafi óskast í Hafnarfirði
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er sunnudagurinn
12. september,
256. dagur ársins 2004.
Reykjavík 6.43 13.24 20.03
Akureyri 6.24 13.09 19.51
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Kaupmaðurinn á horninu er orðinn að hálf-
gerðri goðsögn á Íslandi. Þó er einn og einn í
fullu fjöri og þar á meðal er Þórður Björnsson
í Hlíðakjöri við Eskihlíð. Þórður er nýlega
byrjaður í bransanum og er svo bjartsýnn að
hann er búinn að kaupa Sunnubúðina við
Lönguhlíð líka, hvorutveggja rótgrónar hverf-
isverslanir. Heildsali er að taka niður pöntun
hjá honum í Hlíðakjöri þegar blaðamaður
ranglar inn. Þórður býður samt strax góðan
dag og gerir sig kláran í afgreiðslu en er
beðinn blessaður að halda áfram að kaupa inn,
erindið sé bara að forvitnast um hvernig lífið
gangi fyrir sig í svona lítilli búð.
Þarna er ótrúlegt úrval af varningi á
fáum fermetrum, allt frá brýnustu nauð-
synjum eins og brauði og mjólk til meiri
munaðarvara eins og hlynsýróps og freist-
andi kókoskex. Meira að segja nammibar úti
í horni. Maður hélt það væri helst eldra fólk
sem verslaði í svona hverfisbúð en þá stund
sem blaðamaður staldrar við er meðalaldur
kúnnanna milli tvítugs og þrítugs. „Til ham-
ingju með nýja bílinn,” segir Þórður við einn
unga manninn og fylgist greinilega með því
sem er að gerast í lífi viðskiptavinanna. Ung
kona er spurð af blaðamanni hvort þetta sé
búðin hennar. „Mér finnst voða gott að skjót-
ast hér inn og versla um leið og ég næ í
barnið á leikskólann,” svarar hún.
Þegar um hægist hjá kaupmanninum er
hann tekinn tali. „Ég hef alltaf haft áhuga
á búðarrekstri,î segir hann. “Frændi minn
var kaupmaður. Rak Sunnukjör í húsinu
sem Fréttablaðið er nú í og átti Sunnubúð-
ina í Lönguhlíð með öðrum. Þannig að hún
er að koma aftur í fjölskylduna.î Sjálfur
kveðst Þórður einkum hafa starfað kring-
um bíla og á tímabili rekið eigin varahluta-
verslun. Hann hafi farið í nám í markaðs-
fræði hjá Endurmenntun Háskólans fyrir
fáum árum og eftir að hafa misst vinnuna
sína hafi hann farið að leita sér að fyrir-
tæki til kaups á netinu. „Þá datt ég niður á
Hlíðakjör og eftir viku var ég búinn að
taka við. Það var um miðjan desember í
fyrra.” Hann segist hafa fjölgað vöruteg-
undum en vera með lítið af öllu nema
mjólk og gosi. „Búðin er opin frá 10 á
morgnana til 11 á kvöldin þannig að þetta
er eiginlega sjoppa á kvöldin líka og þegar
gott er í sjónvarpinu þá er ég með góða
sölu!” segir hann brosandi.
Þórður tekur við Sunnubúðinni um
næstu mánaðamót. Þá verður hátíð í hverf-
inu. „Þegar ég byrjaði hér í Hlíðakjöri var
ég með línuskautamót. Nú ætla ég að efna
til ratleiks. Það verður örugglega gaman,”
segir hann og snýr sér svo að næsta kúnna.
gun@frettabladid.is
Kaupmaðurinn á horninu í útrás:
Alltaf haft áhuga
á búðarrekstri
atvinna@frettabladid.is
Atvinnulausir á landinu voru
4.492 í lok ágúst og hafði fækkað
um 220 frá því í júlílok. Kynja-
skiptingin er þannig að 2.536
konur eru atvinnulausar á landinu
en 1.956 karlar. Einkum hafði
dregið úr atvinnuleysi á lands-
byggðinni og má meðal annars
þakka það lengingu ferðamanna-
tímans. Skólafólk er farið úr sum-
arstörfunum að sinna lærdóm-
num og aðrir taka við að þjóna
hausttúristunum auk þess sem
framkvæmdir eru allsstaðar á
fullu. Slæmu fréttirnar eru þær að
atvinnulausum konum á höfuð-
borgarsvæðinu fækkar ekki. Þær
voru 1.727 í ágústlok.
Starfsmenn í framhalds-
skólum á Íslandi eru tæplega
2.300 og þar af rúmlega 1.600
við kennslu. Konur eru 54
prósent starfsmanna og karlar 46
prósent en dæmið snýst við
þegar talið er fólk sem starfar við
kennslu. Hlutastörf eru algengari
meðal kvenna
en karla
en
karlar
eru
fleiri en konur í stjórnunarstörfum
til dæmis eru 81 prósent skóla-
meistara karlar og 76 prósent að-
stoðarskólameistara.
Vestnorden kaupstefnan
hefst á morgun í Laugardalshöll.
Sýnendur eru 133 og eru Íslend-
ingar lang fjölmennastir eins og
jafnan áður. Ríflega 100 kaup-
endur frá 18 löndum eru skráðir
til þátttöku að þessu sinni, meðal
annars fyrirtæki frá Ástralíu, N.-
Ameríku og Rússlandi en flest eru
þó frá nágrannaríkjum okkar.
Í launaviðtölum við vinnuveit-
endur bera yngri Svíar fram
harðari kröfur um hærri laun en
þeir sem eldri eru að því er fram
kemur í lauslegri könnun Göte-
borgsposten. Ungir starfsmenn
halda óhikað fram kostum sínum
og eru óhræddir við að sannfæra
séffann um þá. Þetta gildir jafnt í
sænskum einkafyrirtækjum og
hjá því opinbera. Árlegt
launaviðtal er alls staðar
komið inn í samninga og
yngra fólkið er óhrætt að
færa sér það í nyt.
Þórður veitir snögga en persónulega þjónustu.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í ATVINNU
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Af hverju borða
kjúklingar með
nefinu?
Glaður og gefandi
Starfsmaður óskast í skilastöðu. Um er
að ræða 25-40% starf. Upplýsingar
gefur leikskólastjóri í síma 557 7071 og
899 2056. Sjá einnig heimasíðu
leikskólans regnbogi.is