Fréttablaðið - 14.09.2004, Side 6

Fréttablaðið - 14.09.2004, Side 6
6 14. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR Heilsuefling: Akureyringar í megrun HEILBRIGÐISMÁL Einn, tveir og nú er yfirskrift heilsuátaks sem hófst í gær á Akureyri. Heilsueflingarráð Akureyrar stendur fyrir átakinu Hvetja á bæjarbúa til aukinnar hreyfingar og samveru. Virkja á börn á grunnskólaaldri og foreldra þeirra til reglulegrar hreyfingar. Heilsueflingarráð Akureyrar telur offitu og hreyfingarleysi vera eitt stærsta heilbrigðisvandamál 21. aldarinnar. Þess vegna verður fjölskyldukortum dreift til grunn- skólanema, þar sem þeim er ætlað að færa inn reglulega hreyfingu allrar fjölskyldunnar, þ.m.t. göngu- ferðir, þátttöku í íþróttum og fleira. Kortinu má skila fyrir tí- unda hvers mánaðar og úr innsend- um kortum verða dregin nokkur nöfn, sem fá verðlaun fyrir þátt- tökuna. Verkefnið mun standa yfir allt þetta skólaár. Sundlaug Akur- eyrar ætlar að þessu tilefni að bjóða öllum bæjarbúum í sund næstkomandi sunnudag. ■ Síminn verður seldur en ekki með hraði Davíð segir forsætisráðherraskipti tefja sölu Símans en áfram sé stefnt að því að ljúka henni fyrir lok kjörtímabilsins. Á morgun tekur hann við starfi utanríkisráðherra og segist kveðja miðbæinn og Kvosina með trega enda fari hann í fyrsta skipti á starfsævinni úr miðbænum „upp í sveit“. STJÓRNMÁL Davíð Oddsson for- sætisráðherra segir meintan ágreining stjórnarflokkanna hafa verið „kallaðan fram“, lítið beri í milli í helstu málum, svo sem Símamálinu, Evrópumál- um, öryrkjamáli og um fjárfest- ingar í sjávarútvegi þrátt fyrir fréttir fjömiðla um ágreining. Davíð vísar því á bug í viðtali við Fréttablaðið að hætt hafi verið við sölu Símans. „Nei, það er alltof mikið sagt, ég nefndi til sögunnar í viðtali í Morgunblaðiðinu að Ólafur Dav- íðsson myndi láta af því starfi að vera formaður einkavæðing- arnefndar og það kemur nýr fulltrúi inn í nefndina frá mér. Mér finnst eðlilegt að við þessi skipti fái nýr forsætisráðherra og formaður á hans vegum tíma til að móta hlutina. En þetta er verkefni kjörtímabilsins. Það eina sem ég sagði í Morgunblað- inu var að við værum ekki á neinni hraðferð. Við Halldór höfum orðað þetta á sama hátt, held ég, að það sé bundið í stjórnarsáttmálann að klára þetta á kjörtímabilinu og þá miðum við hvenær er hagfelld- ast fyrir ríkissjóð og alla að klára þá sölu. Það er enginn ágreiningur í þessu máli.“ Davíð gerði einnig lítið úr mis- munandi áherslum stjórnarflokk- anna um dreifikerfi Símans. „Ég heyrði haft eftir formanni þing- flokks framsóknarmanna að það þyrfti að bæta 200 milljónum í tengingar á grunnnetið til að framsóknarmenn væru sáttir. Þetta getur ekki haft áhrif á sölu Símans upp á 50-70 milljarða hvorum megin þær 200 milljónir liggja. Mannist sýnist þetta vera óskaplega lítill ágreiningur, það getur vel verið að hann eigi eftir að vaxa; ég vona það að verði meira fjör en þetta!“ Davíð sat í gær síðasta þing- flokksfund sinn sem forsætis- ráðherra en hann hefur verið í forsæti ríkisstjórnar frá því að hann settist á Alþingi árið 1991 fyrir rúmum 13 árum. Á morgun víkur hann úr stjórnarráðshús- inu við Lækjargötu og tekur við lyklavöldum í utanríkisráðu- neytinu við Rauðarárstíg. Davíð yfirgefur stjórnarráðið og mið- bæinn með mikilli eftirsjá. „Ég var að laga til á Þingvöll- um í gær og í skrifborðinu mínu í stjórnarráðinu og í læstum hirslum í gær. Allt tekur þetta á mann því þetta eru mikil tíma- mót.“ Davíð segist eiga margar góðar minningar af ferli sínum. „Ég vann í Iðnó, í Nathans Olsen-hús- inu sem nú hýsir Apótekið, Morg- unblaðshöllinni, Ingólfsapóteki, Sjúkrasamlaginu í húsinu sem Jón Þorláksson lét reisa við Tryggva- götu og auðvitað þinghúsinu og stjórnarráðinu. Svo útskrifaðist ég úr M.R. Ég hef ekki mælt það en ætli radíusinn sé ekki svona 150 metrar og svo er maður allt í einu kominn upp í sveit! Með full- ri virðingu.“ as@frettabladid.is Morð Önnu Lindh: Fer fyrir Hæstarétt SVÍÞJÓÐ, AP Hæstiréttur Svíþjóðar hefur ákveðið að taka fyrir mál Mijailo Mijailovic sem fundinn var sekur um að myrða Önnu Lindh, þáverandi utanríkisráð- herra, fyrir ári síðan. Saksóknarar áfrýjuðu dómi undirréttar, sem komst að þeirri niðurstöðu að Mijailovic væri ekki sakhæfur og því bæri að vista hann á geðsjúkrahúsi en ekki í fangelsi. Verjendur áfrýj- uðu dómnum um að hann hefði myrt Önnu Lindh og vildu að hann yrði dæmdur fyrir manndráp en eftir sem áður vistaður á geð- sjúkrahúsi. ■ VEISTU SVARIÐ? 1Hvað er þjóðgarðurinn í Skaftafellistór eftir stækkun? 2Hvað heitir skógarvörður Skógræktarríkisins á Suðurlandi? 3Hvað geymdi Mjöll-Frigg á opnusvæði við Kópavogshöfn? Svörin eru á bls. 30 Tveir dagar til stefnu! Það má enginn missa af þjóðargjöfinni á fimmtudag! Skráðu þig strax í netklúbbinn á icelandexpress.is Ferðaþjónusta Iceland Express, Sími 5 500 600, icelandexpress.is AÐALFRÉTTIN Í SUÐUR-KÓREU Suður-Kóreubúar fylgdust vel með fréttum af sprengingunni fyrir norðan. Sprengingin mikla: Fjall sprengt í loft upp NORÐUR-KÓREA, AP Gríðarleg sprenging í Norður-Kóreu fyrir fáeinum dögum sem hefur vakið furðu manna var ekkert slys held- ur hluti af virkjanagerð. Þetta hafði breskur undirráðherra, Bill Rammell, eftir Paek Nam Sun, ut- anríkisráðherra Norður-Kóreu. Að sögn Paek þurfti að sprengja fjall til að halda verkefninu áfram. Stjórnvöld í Norður-Kóreu sögðu David Slinn, sendiherra Breta í Pyongyang, að hann mætti fara á vettvang sprengingarinnar í dag til að ganga úr skugga um að allt væri með felldu. Sprengingin vakti grunsemdir sumra um að Norður-Kóreustjórn væri að gera tilraun með kjarnorkusprengju. ■ KYNNING Á HEILSUEFLINGARÁTAKI F.v. María H. Tryggvadóttir, starfsmaður átaksins, Bryndís Arnarsdóttir, formaður heilsuefl- ingarráðs Akureyrar, Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri, Helgi T. Helgason, útibússtjóri Landsbankans á Akureyri, og ráðsmenn úr heilsueflingarráði; Þröstur Guðjónsson, formað- ur ÍBA, og Friðrik Vagn Guðjónsson heilsugæslulæknir. M YN D /G U N N AR E R N IR DAVÍÐ ODDSSON Davíð mætir til síðasta þingflokksfundar Sjálfstæðisflokksins sem forsætisráðherra í höf- uðstöðvum flokksins í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.