Fréttablaðið - 14.09.2004, Síða 8
14. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Teknir fyrir kókaínsmygl:
Báðir hafa
játað
DÓMSMÁL Salvar Halldór Björnsson,
sem ákærður er ásamt Sigurjóni
Gunnsteinssyni fyrir innflutning á
tæpum 325 grömmum af kókaíni,
játaði við fyrirtöku málsins í gær að
hafa flutt inn þau 166 grömm af
kókaíni sem fundust innvortis í hon-
um. Sigurjón og Salvar voru teknir
með efnin á Keflavíkurflugvelli
annan desember í fyrra.
Salvar játaði einnig tollalagabrot
þar sem hann greiddi ekki toll af 45
boxhönskum og þremur höfuðhlíf-
um. Sagðist hann hafa staðið einn að
þeim innflutningi og var fallið ákæru
vegna tollalagabrotsins á hendur Sig-
urjóni eftir játningu Salvars.
Við þingfestingu í ágúst játaði
Sigurjón innflutning á rúmum 159
grömmum af kókaíni. Rúm 110
grömm fundust í endaþarmi og rúm
49 grömm fundu tollverðir í sokk-
um hans. Báðir segja að kókaínið
hafi þeir ætlað að nota sjálfir en
ekki selja. Báðir segjast aðeins hafa
átt og staðið að innflutningi á efn-
unum sem þeir báru hvor um sig.
Aðalmeðferð málsins verður í
lok nóvember. ■
– hefur þú séð DV í dag?
Vil dauðann
frekar en
fóstur-
foreldrana
Einn á flótta
með mömmu
sinni
KARÍBAHAF, AP Kúbverjar bjuggu
sig í gær undir miklar hamfarir
en búist var við að fellibylurinn
Ívan, sem hefur fengið viður-
nefnið grimmi eftir samnefndum
rússneskum keisara, gengi yfir
eyna í gærkvöld eða í nótt. Þá
hafði fellibylurinn, einn sá öflug-
asti sem hefur riðið yfir Karíba-
haf frá því mælingar hófust, ný-
lega látið til sín taka á Cayman-
eyjum.
Ívan olli minni skemmdum á
Cayman-eyjum en víða annars
staðar þar sem hann hefur geng-
ið yfir. Ástæðan er sú að húsnæði
þar þolir mun meiri ágang en
víða á fátækari eyjum Karíba-
hafsins. Þó bárust víða að fréttir
af því að fellibylurinn hefði feykt
þökum af húsum og að flætt hefði
inn í hús. Talið er að milli fjórð-
ungur og helmingur húsa á eyj-
unum hafi orðið fyrir skemmdum
þegar fellibylurinn gekk yfir.
Svo virðist sem íbúar Cayman-
eyja hafi sloppið við mannfall af
völdum fellibylsins. Því hefur
verið öðruvísi farið annars stað-
ar þar sem hann hefur gengið
yfir eða teygt anga sína. Í það
minnsta fimmtán létust á
Jamaíka og nær 40 á Grenada.
Fimm létu lífið af völdum felli-
bylsins í Venesúela, einn á eynni
Tobago og annar á Barbados.
Fjögur börn létu lífið í
Dóminíska lýðveldinu.
Yfirvöld á Kúbu ráðlögðu 1,3
milljónum manna að yfirgefa
heimili sín áður en fellibylurinn
kæmi til Kúbu. Á vesturhluta
eyjunnar kepptist fólk við að
taka saman helstu nauðsynjar
áður en það hélt á brott til að leita
sér öryggis
„Það fyllir mig depurð að yfir-
gefa heimili mitt en ég verð að
vernda sjálfan mig og bjarga líf-
um fjölskyldu minnar,“ sagði sjó-
maðurinn Ricardo Hernandez. ■
Segir 30 milljónir rúmmetra af jarðvegi Í Hálslóni:
Undrast leirfokstölur
Landsvirkjunar
KÁRAHNJÚKAR „Heildarrúmmál á
jarðvegi sem lendir undir vatni í
Hálslóni þegar það er í hámarki,
en er ofan vatnshæðar að vori
þegar lægst stendur í lóninu, get-
ur verið um 30 milljónir rúm-
metra, bara austan megin við lón-
ið,“ sagði Þóra Ellen Þórhallsdótt-
ir, einn af fjórum sérfræðingum
sem Skipulagsstofnun fékk til að
fara yfir matsskýrslur um Kára-
hnjúkavirkjun á sínum tíma.
Þóra kvaðst ekki geta áttað sig
á staðhæfingu Péturs Ingólfsson-
ar verkfræðings hjá Landsvirkj-
un um að mest 100 tonn af leir
gætu fokið af 40 ferkílómetra
svæði í miðlunarlóni Kárahnjúka-
virkjunar við verstu aðstæður.
„Mér finnst þetta vera mjög lág
tala og ég vil gjarnan sjá hvernig
hún er reiknuð út,“sagði Þóra.
Ljóst er af viðtölum Frétta-
blaðsins að þeir sem standa að
rannsóknum á hvernig best
muni vera að binda leirmagnið,
sem getur fokið úr lóninu þegar
lágt stendur í því og hvessir í
veðri, hafa mismunandi hug-
myndir í þeim efnum. Sveinn
Runólfsson landgræðslustjóri
nefnir áveitukerfi, svo sem
tíðkast í landbúnaðarhéruðum
erlendis. Pétur Ingólfsson verk-
fræðingur segir í athugun dreif-
ingu leirbindiefnis úr flugvél á
svæðið. ■
Á FLÓTTA UNDAN FELLIBYLNUM
Fjöldi Kúbverja pakkaði saman helstu nauðsynjum og flýði af þeim svæðum þar sem gert
er ráð fyrir að fellibylurinn Ívan gangi yfir.
FORSMEKKUR
Þegar flóðið varð í Jöklu á dögunum kom í
ljós örlítill forsmekkur þess sem koma
skal. Leirlag settist á bakka litla lónsins
sem myndaðist fyrir ofan stífluna á Kára-
hnjúkum.
Tugir látnir og
fjölmenni í hættu
Fellibylurinn Ívan heldur áfram að valda usla á Karíbahafi. Nær sjötíu
manns höfðu látist af völdum hans áður en hann gekk yfir Kúbu í gær-
kvöld. Þar var rúmri milljón manna fyrirskipað að yfirgefa heimili sín.
BÁÐIR HAFA JÁTAÐ KÓKAÍNSMYGL
Þeir Sigurjón Gunnsteinsson og Salvar Halldór Björnsson hafa báðir játað að hafa flutt inn
kókaín innvortis. Salvar segist einn hafa brotið tollalög.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M