Fréttablaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 12
14. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR
JERÚSALEM, AP Tugþúsundir ísraels-
kra landnema á Gaza og stuðnings-
menn þeirra efndu til mótmæla í
Jerúsalem, höfuðborg Ísraels, gegn
áformum Ariels Sharon forsætis-
ráðherra um að flytja landnemana á
brott frá Gaza. Mótmælin fóru frið-
samlega fram en nokkrir forystu-
menn landnema hafa varað við að
nauðungarflutningar kunni að leiða
til borgarastríðs.
Ísraelska stjórnin hefur ákveðið
að byrja á næstu dögum að greiða
landnemum bætur fyrir brottflut-
ning. Upphaflega stóð ekki til að
gera það fyrr en eftir nokkra mán-
uði. Hver fjölskylda fær á bilinu
fimmtán til 35 milljónir króna. ■
flugfelag.is
ÍSAFJARÐAR
5.199 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
5.299kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
15. - 21. sept.
EGILSSTAÐA
6.499
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
kr.
GRÍMSEYJAR
6.999 kr.Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
VOPNAFJARÐAR/
ÞÓRSHAFNAR
7.999
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
58
47
09
/2
00
4
Börn, 2ja–12 ára, í fylgd með fullorðnum,
greiða 1.833 kr. aðra leiðina.
MÓTMÆLT Í JERÚSALEM
Mótmælendur skiptu tugum þúsunda. Þar voru bæði landnemar og stuðningsmenn
þeirra.
Landtökumenn og stuðningsmenn þeirra:
Mótmæltu brotthvarfi frá Gaza
VIÐSKIPTI Kenneth Peterson kom
fyrst til Íslands haustið 1995 eftir
að hafa hitt fulltrúa iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytisins á ráðstefnu í
Bandaríkjunum um álmál. Voru
honum kynntir möguleikarnir á
byggingu álvers á Grundartanga
en leit hafði staðið um skeið að
áhugasömum fjárfestum.
Hlutirnir gengu hratt fyrir sig,
einu og hálfu ári síðar var fyrsta
skóflustungan tekin og straumi var
hleypt á kerin sumarið 1998. Tæp-
um sex árum síðar seldi Peterson
álverið til bandaríska álfyrirtækis-
ins Century Aluminum.
Menn úr viðskiptalífinu bera
honum vel söguna og segja gott að
eiga við hann viðskipti. Hann er
áhugasamur um land og þjóð og
hefur ferðast með fjölskyldu sinni
um Ísland. Peterson hefur að und-
anförnu dregið sig smátt og smátt
út úr álheimum og fært sig í ríkari
mæli yfir í veröld fjarskiptanna.
Skjótur til ákvarðana
Kenneth Peterson er rétt rúmlega
fimmtugur lögfræðingur. Hann
nam lög við Willamette-lagaháskól-
ann í Salem í Oregon-ríki í Banda-
ríkjunum og rak lögmannsstofu
fyrstu árin eftir útskrift. Afskipti
hans af álbræðslu hófust 1987 þeg-
ar hann keypti álver í Washington-
ríki en rekstur þess hafði verið
brösóttur og lokun blasti við. Peter-
son tókst að koma rekstrinum á
réttan kjöl og í framhaldinu keypti
hann eða stofnsetti nokkur málm-
vinnslufyrirtæki í fjórum ríkjum
Bandaríkjanna. Um miðjan síðasta
áratug afréð Peterson að reisa sér
nýtt álver og stóð valið lengst af á
milli Íslands og Venesúela. Nokkur
atriði réðu því að Ísland varð fyrir
valinu. Hagstætt umhverfi og festa
í þjóðfélaginu höfðu mikið að segja
en ekki síður sú staðreynd að ís-
lensk stjórnvöld voru einkar
áhugasöm um verkefnið og skjót til
ákvarðana.
Finnur Ingólfsson, sem var iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra á þess-
um tíma, ber Peterson vel söguna.
Segir hann glöggan og vinna hratt
og vel. „Það var allt öðruvísi að tala
við hann en aðra sem við höfðum
kynnst áður. Þetta gekk mjög hratt
og við lögðum okkur fram um að
vinna og hugsa eins og hann.“
Það var annars forvitnilegt að
fylgjast með fréttum af samninga-
viðræðunum á sínum tíma og á
þeim mátti glögglega sjá að bönd
Finns og Petersons styrktust með
hverjum fundinum. Í upphafi nefn-
di Finnur hann jafnan fullu nafni
en þegar leið á viðræðurnar talaði
hann um Kenneth. Undir það síð-
asta lét ráðherra nægja að kalla
viðsemjanda sinn Ken og þegar svo
var komið mátti öllum vera ljóst að
málið var í höfn.
Þessi kraftmikli og snaggara-
legi kaupsýslumaður hefur skipt
um kúrs í viðskiptum. Áður áttu
álframleiðsla og tengdar greinar
hug hans allan en fjarskiptin hafa
náð yfirhöndinni. Eignir hans á
álmarkaði eru því sem næst hverf-
andi en umsvifin í síma- og annarri
fjarskiptaþjónustu talsverð. Á
hann hluti í félögum sem starfa
beggja vegna Atlantsála og raunar
í Ástralíu líka, auk sæstrengs sem
liggur milli Bandaríkjanna og
Bretlands.
Hugsar um hagnaðinn
Sala Petersons á álverinu á Grund-
artanga fyrr á þessu ári kom Finni
Ingólfssyni ekki á óvart. „Það kom
oft upp í samningaviðræðunum að
hann myndi ekki eiga álverið um
aldur og ævi. Þetta var fjárfesting
og hann hugsar fyrst og fremst um
að græða peninga. Þarna sá hann
gott tækifæri og greip það.“
Það kom Finni heldur ekki á
óvart þegar Peterson festi fé í fjar-
skiptafyrirtækinu Halló. „Honum
fannst mjög gott að starfa í ís-
lensku viðskiptaumhverfi og ég
áttaði mig fljótlega á að vel gæti
verið að hann tæki þátt í fleiri
verkefnum en álverinu.“
Peterson keypti stóran hlut í
símafélaginu Halló – Frjáls fjar-
skipti fyrir sléttum fjórum árum
og voru þá uppi áform um umsvif á
erlendri grundu. Af þeim varð ekki
en félagið sameinaðist nokkru síð-
ar Íslandssíma, sem enn síðar sam-
einaðist Tali og úr varð Og Vodafo-
ne. Norðurljós, móðurfélag Fréttar
ehf., útgáfufélags Fréttablaðsins,
keyptu hlut Petersons í Og Vodafo-
ne á föstudag fyrir rúma fimm
milljarða. Þá var hermt að hann
hefði hagnast um fimm milljarða
við sölu álversins í vor. Má segja
að hann sé með fullar hendur fjár.
Bjarni Þorvarðarson starfar hjá
fyrirtæki Petersons en þeirra leið-
ir lágu fyrst saman þegar unnið
var að fjármögnun Norðuráls.
Vann Bjarni þá hjá FBA, sem kom
að verkinu. Síðar veitti hann fjár-
festingarsjóðnum Talentu forstöðu
og í gegnum þau störf hitti hann
Peterson á ný, þá vegna viðskipta
með hlutabréf í Halló – Frjálsum
fjarskiptum. Fór svo að Bjarni réð-
ist til fyrirtækis Petersons.
Í ljósi þess að stefnan á þeim
bænum er að fjárfesta í verkefnum
og fyrirtækjum á sviði fjarskipta
verður að telja harla ólíklegt að
Kenneth Peterson láti að sér kveða
á Íslandi á næstunni. „Það gefur
auga leið að fjárfestingartækifær-
in á íslenska fjarskiptamarkaðnum
eru afar takmörkuð,“ segir Bjarni
Þorvarðarson. „Hér eru tvö stór og
öflug fyrirtæki. Við áttum í öðru
þeirra og höfum því ekki verið að
leita að öðrum tækifærum á Ís-
landi.“
Sem kunnugt er hyggjast stjórn-
völd selja Símann en líkurnar á að
Peterson kaupi eru hverfandi. „Það
væri skrítið ef við seldum Og Voda-
fone til að kaupa Símann, sérstak-
lega á því verði sem nefnt hefur
verið. Þá held ég að við hefðum
bara haldið í Og Vodafone,“ segir
Bjarni.
Þó að flest bendi til að Kenneths
sögu Peterson í íslensku viðskipta-
lífi sé lokið er allt eins víst að áhri-
fa hans muni áfram gæta hér. Hann
hefur borið hróður landsins út um
heimsbyggðina og Finnur Ingólfs-
son veit að á hann er hlustað.
„Hann hefur kynnt okkur betur en
við sjálf getum gert og það má
segja að hann sé sendiherra okkar í
leitinni að erlendum fjárfestum.“
Það er því hugsanlegt að ein-
hverjir útlendingar fjárfesti hér
fyrir hans orð í framtíðinni.
bjorn@frettabladid.is
KENNETH D. PETERSON
Átti miklar eignir á Íslandi fyrr á árinu en hefur nú selt allt sitt hér. Ólíklegt verður að telj-
ast að hann fjárfesti hér á nýjan leik á næstunni.
Ameríski draumur-
inn á Íslandi
Kenneth D. Peterson yngri reisti og rak Norðurál á Grundartanga og
varð stærsti hluthafinn í Og Vodafone fyrir nokkrum árum. Fyrr á ár-
inu seldi hann álverið og á föstudag seldi hann hlut sinn í símafélaginu.