Fréttablaðið - 19.09.2004, Page 17
SUNNUDAGUR 19. september 2004 17
hef séð menn verða beiska og
gamla daginn sem þeir misstu
ráðherradóm. Það truflar mig
ekki að vera fyrrverandi þing-
maður, en samt sakna ég þess því
það hamlar að ég geti unnið af
fullu mögulegu afli fyrir mitt
fólk og mitt kjördæmi og ég hef
alltaf kappkostað að vinna fyrir
landið í heild. Í Njálssögu hef ég
alltaf kunnað einna best við Þrá-
in í Holti sem átti að sitja í hefð-
arsæti í brúðkaupi Gunnars frá
Hlíðarenda en sat ystur og sagði
að fyrst hann sæti þar mættu
aðrir vel við una. Þetta er minn
stíll og minn húmor.“
Árni sér ekki ástæðu til að
ræða fangelsisdvöl sína í smá-
atriðum. „Mistök eru mistök
hver svo sem ber ábyrgð á þeim
og svo þýðir ekkert að festast í
því,“ segir Árni. „Sem blaðamað-
ur skrifaði ég allmikið um sviðs-
verkin í Þjóðleikhúsinu. Eitt af
því sem ég hafði alltaf hug á að
gera var að ganga inn í leikrit og
brjóta upp atburðarásina og
skrifa grein. Ég hefði gert það
með leyfi leikstjórans en án vit-
undar leikaranna. Þetta hefði
ekki meitt neinn en hefði hugsan-
lega getað orðið fyndið. Það varð
samt aldrei neitt úr þessu. Eitt af
því fáa sem mér hefur dottið í
hug en ekki framkvæmt. Ég
hafði líka hug á því í blaðamann-
stíð minni að dvelja tvær til
þrjár nætur í fangelsi og upplifa
hvernig það væri. Þær nætur
urðu fleiri.“
„Stóra samráðið“
„Ég átti ábyggilega að fara í
fangelsi,“ svarar Árni brosandi,
„þó það skjóti svolítið skökku við
miðað við þann urmul manna
sem sleppur við það þrátt fyrir
hvunndagsleg mistök eins og
mér urðu á og jafnvel miklu al-
varlegri. Ég leiðrétti sjálfur mín
tæknilegu mistök þótt ekki væri
leiðrétt gagnvart mér. Það er
sem betur fer ekkert fordæmi
fyrir meðhöndlun eins og á mér.
Guði sé lof. Kerfið hlýtur að hafa
verið glorhungrað og ég var ugg-
laust heppinn að hafa ekki verið
dæmdur til dauða. En „Stóra
samráðið“ er hrikalegt á Ís-
landi.“ Hann segist hugsanlega
skýra nánar frá því síðar hvað
hann á við en bætir við: „Það er
verið að gagnrýna olíufélög og
tryggingafélög fyrir samráð. Það
er smámál. Hitt er stærra mál að
réttarkerfið og hópur lögfræð-
inga eiga allt sitt undir góðu sam-
starfi innan lokaðs kerfis sem
býr sér farveg til launa og afls í
samfélaginu en hugsar ekki um
réttlæti. En fólkið í landinu er
ekki asnar og brjóstvit þess síar
úr þvæluna og kjaftæðið í svo
mörgum málum. Það hefur ekk-
ert farið á milli mála á undan-
förnum árum hvernig rannsókn-
arlögregla og dómstólar hafa
tapað trausti fólks. Venjulegt
fólk kann að lesa út úr misræm-
inu, sýndarmennskunni og vald-
níðslunni.“
Lítur hann svo á að hann hafi
fengið ómaklega meðferð í fjöl-
miðlum og innan réttarkerfisins?
„Hún var geggjuð. Og það segi
ég út frá mínu saklausa brjóst-
viti,“ segir hann. „Ég veit ósköp
vel að meðferðin var ósönn en
hún getur verið sönn fyrir þeim
sem unnu að henni. En að fjalla
7.000 sinnum um mig á einu ári
er eitthvað sem stenst ekki. Það
sér hver heilvita maður. Ég vil
ekki fjalla um þetta mál í smá-
atriðum en kannski var ég að líða
fyrir það að hafa talað tæpi-
tungulaust íslenska tungu og
gagnrýna margt í okkar kerfi um
árabil. Jón Hreggviðsson fékk
harðastan dóminn í Íslands-
klukkunni fyrir það að rífa kjaft
á íslensku. Það á ekki að vera
hægt að vinna svona í jafn litlu
samfélagi og Ísland er. Þetta var
botnlaus skrípaleikur en það er
líklega tilgangur með öllu og
kannski vex eitthvað síðar sem
skiptir máli af þessum sprotum
úr melnum sjálfum.“
Ekki dómari í eigin sök
Og spurningunni um sekt eða
sakleysi svarar Árni: „Það fjalla
ég kannski um síðar á mínum
vettvangi ef ég fæ tækifæri til.
Maður getur ekki verið dómari í
eigin sök, alveg sama hvað maður
veit. Ég er með málið í salti. Allt
hefur sinn tíma og svo er um
þetta mál. Það skiptir öllu að fólk
viti sjálft hvað það hafi gert og
hverju það ber ábyrgð á. Og það
getur verið allt annað en dómur
sem birtist á prenti eða hjá form-
legum embættismönnum. Í opin-
berri umræðu er svo mörgu snú-
ið við. Ég lít jöfnum höndum á
mig sem stjórnmálamann og
blaðamann en mér finnst það
hafa færst í aukana á síðustu ára-
tugum að verið sé að selja hluti
en ekki segja þá. Fólk heldur að
réttarkerfið á Íslandi sé í lagi og
auðvitað á maður að geta treyst
því. Í það er sett mikið fjármagn
og maður á að trúa á réttlæti
þess. En svo gerast einkennilegir
hlutir. Í fjölmiðlamálinu túlkuðu
engir tveir lögfræðingar lögin
eins. Hvaða síðdegisleikur er lög-
fræðin eiginlega? Annað dæmi er
þegar fjölskipaður dómur Hæsta-
réttar, fimm dómarar, velur einn
til að afgreiða málið. Fólk heldur
að þegar það fái fimm dómara til
að fjalla um sitt mál þá fái það
réttláta meðferð, dómarar muni
skoði plúsa og mínusa og komast
að niðurstöðu á breiðri þekkingu
og túlkun. Það er ekki þannig.
Einn dómari afgreiðir málið að
öllu jöfnu og hinir hirða launin
sín. Þetta vita allir sem þekkja
innviðina en er eitt af þeim
feimnismálum sem fróðlegt verð-
ur að fjalla um síðar. Það er sorg-
legt að marga svokallaða sér-
fræðinga vantar gáfuna til að
nota gáfurnar sínar.“
Árni segir fjölskyldu sína
hafa staðið órofa með sér í erfið-
leikunum, eins og á gleðistund-
unum. „Fjölskylda mín stendur
ætíð saman. Svo eru vinir manns
traust fólk sem svignar ekki svo
glatt. Auðvitað eru undantekn-
ingar. Stundum telur fólk sig
eiga hagsmuna að gæta og
rammar sig inn í umhverfi og
lokar sig af frá manni. Það er
ekkert skemmtilegt að upplifa
það en ég ætla ekki að dæma það
fólk. Það er sárt ef vinir manns
treysta manni ekki lengur, ótrú-
lega sárt af því að það er svo
mikil lítillækkun í því.“
Mótlæti er plús
Árni segir lífsviðhorf sitt ekki
hafa breyst eftir dóm og fangels-
isvist. „Allt mótlæti er plús
vegna þess að það er besti skól-
inn. Ég hef upplifað stórkostlega
reynslu þótt hún væri kannski
ekki það skemmtilegasta, en ég
kynntist frábæru fólki innan
múra og utan og hvað getur mað-
ur annað en fagnað því og glaðst?
Það er svo lítill munur á fólki
þegar upp er staðið, kannski ein-
hver 5 prósent sérviska til eða
frá. Hitt eru sameiginlegar vonir
og þrár. Sumir geta hins vegar
ræktað í sér þetta leiðindapúka-
eðli sem maður hefur séð allt of
oft í samfélaginu. Lífsviðhorf
mitt felst í því að taka þessum
200 árum sem maður á aðgang að
með gneistandi fjöri. Það er ein-
faldlega þannig að ef maður nýt-
ir tímann vel þá nær maður 200
árum út úr þessum 70-80 sem
hinir skila sem ekkert gera,
halda sig til hlés, eru í örygginu
og skjólinu en leggja ekkert af
mörkum, taka enga áhættu. Lífið
snýst um að láta hendur standa
fram úr ermum, láta hugmyndir
verða að veruleika. Kannski
fylgja því mistök, en ég held að
maður eigi að taka þá áhættu.
Það gengur vonandi ekki það
langt að maður geti ekki leiðrétt
þau mistök. Meðan maður meiðir
engan þá held ég að maður sé að
skila betra mannlífi.“
Hann segist lítið hugsa um
það að eldast: „Ég hef aldrei
skynjað aldur. Aldur er ekki mitt
fag. Með auknum þroska safnar
maður auðvitað reynslu og hegð-
ar sér á annan hátt en áður, en ég
er ekkert viss um að það komi
aldri mikið við. Það er almenn
regla í hverju þjóðfélagi að menn
taka tillit til ákveðinna hluta og
það gera menn eftir því sem þeir
læra meira og komast að raun
um að þeir vita alltaf minna og
minna.“
Er hann bjartsýnismaður í
eðli sínu? „ Bjartsýnni en sólin að
morgni dags,“ svarar hann. „Ég
þekki ekkert annað en bjartsýni.
Hún er eina örugga kjarabótin.“
kolla@frettabladid.is
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
VERÐ FRÁ 12.240 KR. FYRIR 5 TÓNLEIKA,
eða 2.040 kr. á mánuði í sex mánuði í sætaröð 21–28
og 14.280 kr. í sætaröð 1–20 eða 2.380 kr. á mánuði
í 6 mánuði sé greitt með Visa kreditkorti.
23. & 24. SEPTEMBER Það besta af hvíta tjaldinu
28. & 29. OKÓTBER Töfrar óperunnar og tónaljóðsins
5.-8. JANÚAR Vínartónleikar
17. & 18. MARS Galdrar og goðsagnir
6. & 7. MAÍ Philharmonic Rock Night
Græna áskriftarröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands er ferðalag vítt og breitt um heim tónlistarinnar, frá háklassík
til poppsins og allt þar á milli. Fáðu þér áskrift að öruggu sæti og betra verði hjá Sinfóníuhljómsveitinni í vetur.
Gallabuxur,
kjól og hvítt
TÖFRAHEIMURTÓNLISTARINNAR
aðeins
2.040 kr.
á mánuði
Græn
tónleikaröð
Einsöngvari: Gary Williams. „Einn besti sveiflusöngvari Breta fyrr og síðar“ – Times
Einsöngvari: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir. „Er á leið á vit mikilla afreka“ – Independent
Það sem Íslendingum finnst skemmtilegast að hlusta á.
Einleikari: Liene Circene. „Einhver besti píanóleikari sem hér hefur komið fram“ – Jónas Sen
Modest Mússorgskíj, Deep Purple, Gustav Mahler, Pink Floyd, Led Zeppelin og Queen.
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.SINFONIA.IS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
FYRSTU TÓNLEIKARERU ÁFIMMTUDAG