Fréttablaðið - 19.09.2004, Síða 19
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 9
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 98 stk.
Keypt & selt 25 stk.
Þjónusta 17 stk.
Heilsa 10 stk.
Skólar & námskeið 4 stk.
Heimilið 13 stk.
Tómstundir & ferðir 6 stk.
Húsnæði 18 stk.
Atvinna 30 stk.
Tilkynningar 3 stk.
Kynbundnir námsstyrkir
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er sunnudagurinn
19. september,
263. dagur ársins 2004.
Reykjavík 7.03 13.21 19.38
Akureyri 6.46 13.06 19.24
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Við höfum starfrækt tyggjóhreinsun í eitt
og hálft ár og er þetta mikið þarfaþing,“
segir Erlingur Snær Erlingsson hjá fyrir-
tækinu Tyggjóhreinsun sem hann rekur
ásamt konu sinni Hildi Björk Ingibertsdótt-
ur hjúkrunarfræðingi. Ævintýrið hófst á
því að hann sá tyggjóhreinsivél auglýsta í
bandarísku blaði en endaði á því að finna
fullkomnu vélina í Birmingham í Englandi.
„Við héldum til Englands þar sem við
heilluðumst af vélinni og hófum þá rekstur-
inn upp frá því. Í fyrstu gerðum við þetta
samhliða vinnu en nú hef ég alfarið snúið
mér að rekstri þessa smáa fjölskyldufyrir-
tækis,“ segir Erlingur.
Tæknin við að losa klessurnar felst í því
að vatn er hitað upp í 100 til 150 gráður og
síðar er því skotið með lágum þrýstingi á
klessurnar. Að því loknu er vistvænu
hreinsiefni bætt við og klessan einfaldlega
burstuð í burtu, en ólíkt hefðbundinni há-
þrýstitækni leysir þessi aðferð tyggjóið al-
veg upp.
„Þetta er hljóðlaus og áreynslulaus hátt-
ur við hreinsunina og gæti í raun hentað í
ótrúlegustu hreinsunarverkefnum,“ segir
Erlingur og segir að hrein aðkoma að fyrir-
ækjum kalli á jákvæða upplifun viðskipta-
vina.
„Fólk myndi aldrei henda tyggjó á stéttina
fyrir utan heimili sitt, en það er eins og þeg-
ar það er komið á almenningssvæði sýni það
umhverfinu ekki eins mikla virðingu. Mörg-
um finnst í lagi að hegða sér með þessum
hætti en þegar fyrirtækin verða yfirþreytt á
þessu kalla þau á okkar hjálp,“ segir Erling-
ur, sem þarf að veita ýmsum fyrirtækjum
endurtekna þjónustu þar sem klessurnar
koma alltaf aftur, en hann segir það vera með
minni tilkostnaði í hvert skipti.
„Endalaust úrval af bragðtegundum eyk-
ur bara á vinsældir tyggigúmmís og eru
götur fullar af tyggjóklessum alheims-
vandamál sem ekki virðist vera að
minnka,“ segir Erlingur.
kristineva@frettabladid.is
Lítið fjölskyldufyrirtæki:
Skotið á tyggjóklessur
atvinna@frettabladid.is
Amma óskast eru orðin nokk-
uð algeng orð í atvinnuauglýs-
ingum á seinni árum. Þá er átt
við góða konu, komna til vits og
ára, sem er tilbúin
að koma inn á heim-
ili og gæta barna í
einhvern tiltekinn
tíma. Ömmur hafa
yfir sér ákveðinn
sjarma og verði
kennaraverkfallið
langt getur eftir-
spurnin eftir þeim
orðið ótrúlega mikil.
Þá þykjast þeir lík-
lega heppnir sem
eiga alvöru ömmu
að halla sér að.
Sjö til átta hundruð ný
störf geta skapast úti á landi
gangi vonir Byggðastofnunar eftir
en henni var falið að ráðstafa
500 milljónum af 700 sem ríkis-
stjórnin ákvað að verja í atvinnu-
átak á landsbyggðinni. Hún valdi
28 verkefni af um hundrað sem
sótt var um styrki til og veitti til
þeirra samtals 350 milljónum.
Starfsmenn skóla
á háskólastigi í mars
2003 voru 2.515 tals-
ins. Þótt konur séu
þar í naumum meiri-
hluta eða 52% eru
stöðugildi karla 51
fleiri en kvenna. Af
197 prófessorum eru
32 konur eða 16%,
sem er sama hlutfall
og árið áður. Karlar
eru einnig fjölmennari
í stöðum aðjúnkta og stunda-
kennara. Konur eru hins vegar
fleiri meðal lektora og í sérfræði-
störfum hvers konar og í stöðum
sem tengjast skrifstofustörfum,
ráðgjöf, bókasafni og rekstri hús-
næðis. Þar er hlutur kvenna 75%
á móti 25% hlut karla.
Erlingur Snær og Hildur Björk við tyggjóhreinsivélina góðu.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í ATVINNU
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Af hverju vill
rafmagnsmaðurinn
alltaf skoða gamla
dótið okkar
í kjallaranum?
26 ára erlendur karlmaður óskar eftir
vinnu. Er vanur smíðavinnu en skoða
allt. Uppl. í síma 899 9555.
28 ára kk. óskar eftir vinnu. Ýmsu vanur
og flest kemur til greina. Uppl. í
s: 862 0869
Verkamaður óskar eftir vinnu. Upplýs-
ingar í sími 848 5071.
„Þetta var bara æðislegt frá
a til ö,“ segir Margrét R.
Jónasdóttir, förðunarfræð-
ingur hjá Mac, sem upplifði
ævintýri lífs síns þegar hún
var ráðin til að farða lista-
fólkið sem kom fram á opn-
unarhátíð Ólympíuleikanna
í Aþenu.
„Í fyrsta lagi var svo
gaman að upplifa hvað allir
voru glaðir og jákvæðir,
ekki síst Grikkirnir sjálfir,
sem höfðu lagt allt í að gera
leikana sem glæsilegasta.
Og svo var ólýsanlega
skemmtilegt að fá að vera
þátttakandi í förðuninni og
undirbúningnum fyrir opn-
unarhátíðina.“ Gríðarlegur
hiti var í Aþenu þegar leik-
arnir voru haldnir og dag-
inn sem opnunarhátíiðin
var haldin keyrði um þver-
bak. „Ég skil núna af hverju
fólk í heitum löndum tekur
síestur,“ segir Margrét
hlæjandi.
„Við æfðum í marga
daga fyrir hátíðina og aðal-
áherslan var á að samræma
þannig að allir væru að
gera eins. Það var ákveðið
þema í gangi og það þurfti
að æfa allt oft og mörgum
sinnum. Þeir sem sáu um
sjónvarpsupptökurnar
komu daglega til að biðja
um minna silfur, meira gull
eða ný litbrigði og það var
verið að breyta og bæta
fram á síðustu stundu.“
Margrét segist ekki hafa
farðað neina fræga í Grikk-
landi nema Grikkina sjálfa
sem eru frægir í sínu
heimalandi en minna ann-
ars staðar.
„Ég sá ekki um förðun á
Björk í Aþenu, en hlotnað-
ist hins vegar sá heiður að
farða hana í síðustu viku
fyrir nýjasta myndbandið
hennar sem var tekið upp á
Mýrdalssandi. Jú, hún er
sú frægasta sem ég hef
farðað,“ segir Margrét.
„Hún er náttúrlega svo of-
boðslega fræg þó okkur
finnist hún alltaf vera bara
stelpan okkar.“
Þeir hjá Mac í New
York tókust á loft eftir að
Margrét farðaði Björk og
vildu vita allt um hvaða
efni og liti hún notaði.
„Þeir bíða spenntir og ég
sagði auðvitað Björk að
hún gæti fengið förðunar-
meistara frá Mac hvar sem
hún væri stödd í heimin-
um,“ segir Margrét og von-
ar að Björk muni nýta sér
það.
edda@frettabladid.is
Margrét R. Jónasdóttir förðunarfræðingur:
Upplifði ævintýrið í Aþenu
Margrét farðaði listamennina
sem komu fram á opnunarhátíð
Ólympíuleikanna í Aþenu.