Fréttablaðið - 28.09.2004, Qupperneq 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 89 stk.
Keypt & selt 13 stk.
Þjónusta 37 stk.
Heilsa 11 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 12 stk.
Tómstundir & ferðir 4 stk.
Húsnæði 18 stk.
Atvinna 17 stk.
Tilkynningar 1 stk.
Boltar í stað stóla
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagurinn
28. september,
272. dagur ársins 2004.
Reykjavík 7.34 13.18 18.59
Akureyri 7.20 13.02 18.43
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Ég reyni að stunda nokkuð reglulega lík-
amsrækt yfir veturinn og fer þá yfirleitt í
stöðvar eins og World Class eða aðrar sem
ég get lyft lóðum í og komist á hlaupa-
bretti,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir al-
þingismaður.
Á sumrin segist hún vera óskipulagð-
ari. „Þá iðka ég meiri útiveru og fer bæði
í gönguferðir og sund mér til heilsubótar,
þramma jafnvel á fjöll. En veturinn er sá
tími sem regla er á þessum hlutum. Þó
ekki svo mikil regla því ég vil hafa það
opið hvenær ég mæti í ræktina. Fer yfir-
leitt tvisvar í viku en ekki í fasta tíma.
Bæði er það frekar erfitt í mínu starfi og
líka þegar maður er með börn. Mér finnst
best að fara fyrri partinn því heimilið
kallar þegar vinnudeginum lýkur. Þannig
að ég fer á morgnana þegar börnin eru
farin í skólann.“
Heilsurækt Bryndísar snýst ekki bara
um hreyfinguna heldur líka það hvað hún
setur ofan í sig. „Ég er farin að spekúlera
meira í hollustu fæðunnar í seinni tíð. Mér
finnst það líka partur af barnauppeldi að
hafa hollan mat á borðum og tel mikilvægt
að hráefnið sé ferskt og sem minnst unn-
ið,“ segir þingkonan sem kveðst yfirleitt
hafa gaman af að elda. „En stundum geri
ég það af nauðsyn einni saman eins og
ýmis önnur heimilisstörf,“ játar hún að
lokum. ■
Bryndís Hlöðvers lyfir lóðum:
Best að æfa á morgnana
heilsa@frettabladid.is
Hundar geta greint krabbamein í
mannfólki samkvæmt nýjustu
rannsóknum. Svo virðist sem sér-
stök lykt stafi af krabbameini og
hundarnir geta greint
þessa lykt þótt
krabbameinið sé
tiltölulega nýkom-
ið af stað. Sjúkra-
hús á Bretlandi
hefur gert tilraunir
með mis-
m u n a n d i
hundateg-
undir þar sem hundarnir
voru sérstaklega þjálfaðir í að
greina blöðruhálskrabbamein.
Hundarnir voru látnir þefa af þvag-
sýnum og tókst í tæplega helmingi
tilvika að greina þvagsýni krabba-
meinssjúklinga. Í einu tilviki grein-
du hundarnir meira að segja nýrna-
krabbamein í manni sem ekki var
vitað að væri með krabbamein.
Reykingafólk undir fertugu er í
fimmfalt meiri hættu á að fá hjarta-
áfall en fólk sem reykir ekki. Þessar
niðurstöður eru birtar í tímaritinu
Journal of Tobacco Control og
byggðar á tölum frá Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunni. Alþjóðlegur
hópur vísindamanna sem saman-
stóð af fólki frá Mið-Evrópu, Kína,
Nýja-Sjálandi, Ástralíu og Banda-
ríkjunum skoðaði 23.000 hjarta-
áföll hjá fólki sem hafði ekki látist
af völdum áfallsins á árunum 1985
til 1994. Þessi skoðun leiddi í ljós
að fjögur af hverjum fimm fórnar-
lambanna á aldrinum 35-39 voru
reykingamenn. Karlmenn á aldrin-
um 35-39 ára sem reyktu voru í
fimmfalt meiri hættu á að fá hjarta-
áfall borið saman við jafnaldra sem
ekki reykja. Áhrif reykinga voru jafn-
vel meiri hjá konum á sama aldri.
Misnotkun á áfengi drepur um
75.000 Bandaríkjamenn á hverju
ári og styttir líf þeirra að meðaltali
um þrjátíu ár samkvæmt fréttasíðu
CNN. Þetta kemur fram í
nýrri rannsókn á
vegum Banda-
ríkjastjórnar.
Of mikil
á f e n g i s -
neysla er þriðja
algengasta mein-
ið sem hægt er að koma í veg fyrir
að valdi dauða. Í fyrsta sæti eru
reykingar og öðru ofát og óheilsu-
samlegir lifnaðarhættir. Í rannsókn-
inni er tekið sem dæmi að 34.833
dóu úr lifrasjúkdómum, krabba-
meini eða öðrum sjúkdómum
vegna of mikillar neyslu á bjór, víni
og sterku víni. 40.933 dóu úr
bílslyslum og öðrum óhöppum
vegna of mikillar áfengisneyslu. 72
prósent þeirra sem létu lífið árið
2001 vegna áfengisneyslu voru
karlmenn.
Karlmenn eru mjög uppteknir af
útliti en ekki þó hjá þeim sjálfum.
Þeir mega vera feitari en gerist og
gengur en konur þeirra verða að
vera í góðu formi. Meira en tveir
þriðju hlutar karla í Bretlandi vilja
að konur hugsi mikið um útlitið
samkvæmt nýrri skoðanakönnun.
Athygli vekur að minna en helm-
ingur telur að sömu kröfur ætti að
gera til karla. Konur gerar miklar
kröfur til sjálfs síns og telja tæp níu-
tíu prósent það mikilvægt að vera
grannar.
Bryndís tekur á því í ræktinni tvisvar í viku yfir veturinn.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í HEILSU
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Ég veit
ekki hvernig
umsögnin mín er,
ég er ekki búin
að lesa hana
upphátt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
E-vítamín getur haft áhrif á skyndilegt
heyrnarleysi, samkvæmt nýlegri rann-
sókn sem gerð var í Ísrael. Niðurstöður
rannsóknarinnar voru kynntar á ráð-
stefnu háls-, nef- og eyrnalækna í New
York í vikunni.
Árlega greinast 123.000 manns í Bret-
landi með skyndilegt heyrnarleysi og í
85% tilfella er engin skýring á heyrnar-
leysinu.
Tveir þriðju sjúklinga endurheimta
heyrnina á innan við átta dögum án með-
ferðar, en nú hefur verið sýnt fram á að
E-vítamín getur hjálpað hinum sem ekki
ná bata. ■
Til sölu Suzuki RMX 50 árgerð 2003
ekið 3.130 km, mjög vel með farið, í
toppstandi, verð 280.000 kr. Einnig nýr
hjálmur, verð 12.000 kr. Upplýsingar
eru veittar í síma 892 1817, Ásgeir.
Nýjar rannsóknir:
E-vítamín við heyrnarleysi
E-vítamín getur hjálpað fólki sem á við
skyndilegt heyrnarleysi að stríða.