Fréttablaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 1
● keflavík tók kvennaleikinn
Meistarakeppni KKÍ:
▲
SÍÐA 22
Njarðvík burstaði
Keflavík
● og gefur út plötur
Steinar Berg:
▲
SÍÐA 30
Reisir fimm
stjörnu tjaldstæði
● í ráðhúsinu
Jóhann G. Jóhannsson:
▲
SÍÐA 27
Tindar og
Pýramídar
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
MÁNUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÁFRAM HVASSVIÐRI um norð-
vestan- og vestanvert landið. Rigning
norðan til en þurrt syðra og rofar til. Hiti 2-
11 stig, svalast á Vestfjörðum. Sjá síðu 6
4. október 2004 – 271. tölublað – 4. árgangur
● hús ● fasteignir
Gamli Árbærinn
í uppáhaldi
Húbert Nói Jóhannesson:
IÐNAÐARSTÖRF ÚR LANDI Plast-
prent flytur verkefni til Eystrasaltslanda þar
sem launakostnaður er bara brot af því
sem hér er. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins
segir óstjórn í launamálum hins opinbera
íþyngja íslenskum iðnaði. Sjá síðu 2
MATARSKATTUR OG MENNTUN
Samfylkingin kynnti áherslur sínar í þing-
byrjun í Alþingishúsinu í gær. Gangi hag-
vaxtarspár eftir ætlar flokkurinn að beita
sér fyrir að hagnaðurinn verði til að matar-
skattur lækki og skólar fái meiri peninga.
Sjá síðu 4
HERNAÐUR Á GAZA Sjö Palestínu-
menn létust í átökum við Ísraelsher í gær.
Forsætisráðherra Ísraels ætlar ekki að draga
herlið sitt til baka frá norðurhluta Gaza-
svæðisins. Sjá síðu 6
OFFITA BARNA Bandaríska vísindaaka-
demían hefur skilað skýrslu um offitufarald-
ur á meðal bandarískra barna. Lagt er til að
farið verði í allsherjar herferð til að sporna
gegn útbreiðslu vandans. Sjá síðu 10
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 27
Íþróttir 18
Sjónvarp 28
KENNARAVERKFALL 159 fötluð börn
hefja aftur skólagöngu í dag eftir að
undanþágunefnd kennara og sveit-
arfélaganna veitti fimm skólum
undanþágu til kennslu á föstudag.
„Undanþágan breytir fyrst og
fremst því að lífið kemst aftur í
eðlilegt horf. Miklu skiptir að
rútína hans verði aftur eðlileg,“
segir Sunna Halldórsdóttir, móðir
Kára Freys Þorfinnssonar, sex ára
gamals drengs, sem hóf nám í
Öskjuhlíðarskóla í haust. Móðir
Sunnu kom vestan af fjörðum til að
hlaupa undir bagga og gæta Kára
Freys á morgnana meðan á kenn-
araverkfallinu stæði. Eftir hádegi
fór Kári Freyr síðan í dagvistun
eins og hann er vanur. Sunna segir
allt verða betra þegar Kári getur
farið aftur í skólann enda sé hann
ekki einn af þeim sem getur setið
kyrr fyrir framan sjónvarp eða
tölvu heldur þurfi alltaf að hafa
ofan af fyrir honum.
Undanþágurnar fengu Safamýr-
arskóli, Öskjuhlíðarskóli, Brúar-
skóli fyrir nemendur Stuðla og
barna- og unglingadeildar Land-
spítalans, skóli fyrir börn með fé-
lagsleg, geðræn og hegðunarleg
vandkvæði í Vestmannaeyjum og
Kleppjárnsreykjaskóli fyrir nem-
endur meðferðarheimilisins að
Hvítárbakka. Ellefu beiðnum um
undanþágur var hafnað. ■
EFNAHAGSMÁL Hækkandi skatt-
byrði og lakari samkeppnisstaða
eru meðal þess sem leiða mun af
vaxandi samneyslu Íslendinga að
mati Samtaka iðnaðarins. Opinber
umsvif eru óvíða meiri en á Ís-
landi en sem hlufall af þjóðar-
framleiðslu er samneyslan tæp
þrjátíu prósent.
Þorsteinn Þorgeirsson, hag-
fræðingur Samtaka iðnaðarins,
segir að engin þjóð innan vébanda
OECD láti jafn stórt hlutfall
landsframleiðslunnar fara í gegn-
um hið opinbera. Mikil aukning
hefur orðið í samneyslunni á síð-
ustu árum, ekki síst í tíð núver-
andi ríkisstjórnar, og nefnir Þor-
steinn sérstaklega mennta- og
heilbrigðisgeirann í þessu sam-
bandi. Stór hluti aukningarinnar
er vegna launahækkana opinberra
starfsmanna.
Árið 1970 nam samneyslan
fjórtán prósentum af landsfram-
leiðslunni en í dag stappar hún
nærri þrjátíu prósentum. Þor-
steinn viðurkennir að hluti skýr-
ingarinnar sé fólginn í smæð
landsins þar sem bjóða verði upp
á ákveðna lágmarksþjónustu hvað
sem stærð þjóðarinnar líður.
„Engu að síður er ástæða til að
staldra við þegar við erum komin
í efsta sætið,“ segir Þorsteinn.
Þorsteinn varar við auknum op-
inberum umsvifum meðan á stór-
iðjuframkvæmdum stendur.
„Núna verður ríkisstjórnin að
tryggja að ríkisfjármálin leiði ekki
til frekari hækkunar hagvaxtar því
þá aukast líkurnar á vaxtahækkun-
um sem geta leitt til tímabundinn-
ar gengisstyrkingar og síðan til
gengisfalls. Það er skynsamlegra
að halda aftur af samneyslu og op-
inberum útgjöldum næstu árin.
Eftir það er svo meira tilefni til að
auka útgjöldin ef við förum inn í
samdrátt því þá geta ríkisfjármál-
in haft mildandi áhrif.“ Þorsteinn
segir þessa þróun koma sér illa
fyrir allar greinar sem eru í alþjóð-
legri samkeppni því að þegar raun-
gengi er orðið mjög hátt þá versn-
ar samkeppnisstaða þeirra. Við
þetta bætist svo aukin skattbyrði.
„Við sjáum að fyrirtæki eru farin
að flytja mörg störf til útlanda af
þessum sökum,“ segir Þorsteinn
Þorgeirsson.
sveinng@frettabladid.is
Sjá einnig síðu 2
Hærri skattar
og verri afkoma
Ef hið opinbera gáir ekki fljótlega að sér mun skattbyrði aukast og af-
koma fyrirtækja versna. Samneysla sem hlutfall af landsframleiðslu er
nú hæst á Íslandi af öllum OECD-ríkjunum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
KÁRI FREYR ÞORFINNSSON Á LEIÐ Í SKÓLANN 159 fötluð börn eru á leið í skóla eftir að undanþágunefnd kennara og sveitarfé-
laga gaf fimm skólum undanþágu frá kennaraverkfalli. Kári Freyr er sex ára og byrjaði í Öskjuhlíðarskóla í haust. Nú kemst líf hans aftur í
eðlilegt horf þótt hann hafi verið svo heppinn að amma hans hafi komið vestan af fjörðum til að gæta hans meðan á verkfallinu stóð.
Ræða forseta Alþingis:
Ekki árás á
forsetann
ALÞINGI Halldór Blöndal, forseti
Alþingis, segir að hann hafi
með þingsetningarræðu sinni á
föstudaginn verið að koma Al-
þingi til varnar eftir atburði
sumarsins. Enginn vafi sé á því
að staða þingsins hafi veikst
eftir að forseti lýðveldisins
synjaði fjölmiðlalögunum stað-
festingar og við þessu verði að
bregðast svo fljótt sem auðið
er. „Ræðan mín var hvorki árás
á stjórnarandstöðuna né for-
seta Íslands því að það eina
sem ég gerði var að rekja í ör-
stuttu máli hvað gerðist í sum-
ar og setja það í sögulegt sam-
hengi,“ segir Halldór.
Sjá síðu 8
Fimm skólar sem fengu undanþágu í kennaraverkfalli:
159 fötluð börn fara í skólann í dag
Óshlíð:
Sluppu frá
aurskriðum
LÖGREGLA Nokkrir flúðu inn í svo-
kallaða vegskála vegna aurskriða
í Óshlíð milli Ísafjarðar og Bol-
ungarvíkur upp úr klukkan hálf
átta í gærkvöld. Rigning og hvass-
viðri var á Ísafirði í allan gærdag.
Fólkið sem var á tveimur bílum
varð vart við skriðurnar og náði
að flýja inn í vegskálana sem til
þess eru fallnir að leita skjóls í í
skriðum og flóðum. Aurskriðurn-
ar lokuðu vegskálunum og komst
fólkið ekki út án hjálpar. Var bæði
hringt í lögregluna á Ísafirði úr
farsíma og neyðarsíma í skálan-
um. Fólkið komst út eftir tæpan
klukkutíma þegar vegagerðin
hafði mokað það út. ■
36%50%
FYRIRLESTUR Hlutverk lyga í stjórn-
málum verður til umræðu á hádegisfundi í
Norræna húsinu sem hefst klukkan 12.05 í
dag. Jón Ólafsson heimspekingur flytur er-
indi sem hann nefnir Vald og stýring.
HALLDÓR BLÖNDAL
Halldór segir að ræða hans við setningu
Alþingis hafi fengið góðar undirtektir hjá
fólki sem hann hefur hitt.